Hækkar vexti verðtryggðra lána Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum inn-og útlána. Breytingarnar taka gildi þriðjudaginn 16. janúar. Viðskipti innlent 12. janúar 2024 15:49
Gæti vantað „einhverjar vörur í hillur“ Haga vegna afstöðu gegn verðhækkunum Forstjóri Haga sagði að í verslunum samstæðunnar verði tekin afgerandi afstaða gegn verðhækkunum sem teljist umfram það sem innistæða væri fyrir eða ógni samningsmarkmiðum komandi kjarasamninga. „Það er mögulegt að það muni vanta einhverjar vörur í hillur sem fólk er vant að geta gengið að; það væri einfaldlega vegna þess að okkar mati hafa þær hækkað of mikið.“ Innherji 12. janúar 2024 13:53
Ölgerðin hættir með Red Bull Vörumerkið Red Bull verður ekki hluti vörumerkja Ölgerðarinnar lengur en fyrirtækið sagði samningi sínum við Ölgerðina upp með sex mánaða fyrirvara. Viðskipti innlent 11. janúar 2024 19:18
Spá því að ársverðbólga verði 5,9 prósent í apríl Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í sex prósent í apríl. En til að það gerist þarf íbúðamarkaður „að vera til friðs“ og krónan að haldast stöðug. Þetta kemur fram í nýjustu spá deildarinnar sem birt var í dag. Viðskipti innlent 11. janúar 2024 11:16
Kauphöllin kallar eftir nýrri umgjörð utan um erlent eignarhald í sjávarútvegi Forsvarsmenn íslensku Kauphallarinnar mæla fyrir breytingum á umgjörð utan um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegsfyrirtækjum, sem núna dregur úr gagnsæi og girðir í reynd nánast fyrir aðkomu slíkra fjárfesta, og vilja að regluverkið um erlent eignarhald verði svipað og gildir um flugrekstur hér á landi. Núverandi fyrirkomulag hefur meðal annars valdið því að íslensku sjávarútvegsfélögin eru ekki gjaldgeng í alþjóðlegar hlutabréfavísitölur ólíkt öðrum stórum skráðum félögum. Innherji 11. janúar 2024 10:55
Ólöf tekur við kynningarmálum hjá Hampiðjunni Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf. Viðskipti innlent 11. janúar 2024 09:35
Spá töluverðum rekstrarbata hjá VÍS Greiningafyrirtækið Jakobsson Capital reiknar með töluverðum rekstrarbata hjá VÍS á árinu 2024. „Það er gert ráð fyrir lægra kostnaðarhlutfalli en töluverður kostnaður var í ár vegna sameiningar og annarra einskiptisliða. Sömuleiðis ætti toppi hagsveiflunnar að verða náð. Allt útlit er fyrir að það hægist á verðbólgunni sem mun hjálpa til við að lækka tjónahlutfallið. Iðgjöld dagsins í dag eru til að tryggja tjón framtíðar,“ segir í verðmati. Innherji 10. janúar 2024 14:41
Velur Alvotech sem eina bestu fjárfestinguna í hlutabréfum á árinu 2024 Alvotech er í „einstakri“ stöðu til að verða leiðandi í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjum, að sögn bandarísks hlutabréfagreinenda, sem hefur útnefnt íslenska félagið sem einn besta fjárfestingakostinn á hlutabréfamarkaði á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech hefur verið mikilli siglingu, upp um meira en þriðjung á innan við mánuði, en í vikunni mæta fulltrúar bandaríska Lyfjaeftirlitsins til landsins til gera úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins og mun niðurstaða hennar ráða miklu um framhaldið. Innherji 8. janúar 2024 15:31
Lífeyrissjóðir stækka við hlut sinn í Ísfélaginu eftir skráningu á markað Tveir lífeyrissjóðir, sem voru meðal umsvifamestu þátttakenda í almennu hlutafjárútboði Ísfélagsins undir lok síðasta árs, hafa stækkað talsvert við stöðu sína í fyrirtækinu með kaupum á eftirmarkaði síðustu vikur fyrir samtals vel á annan milljarð króna. Hlutabréfaverð Ísfélagsins hefur haldist nánast óbreytt frá fyrsta degi viðskipta þegar félagið var skráð á markað fyrir einum mánuði. Innherji 8. janúar 2024 10:47
Vatns- og matarskortur í skjálausri ferð heim frá Kanarí Icelandair hefur borist nokkrar kvartanir frá farþegum sem voru um borð í flugi heim til Íslands frá Gran Canaria síðastliðinn mánudag. Veitingar um borð í vélinni voru nær uppurnar, ekkert vatn var á krönum og engin afþreying í boði í fluginu, sem endaði á því að vera sjö klukkustundir vegna seinkanna. Innlent 8. janúar 2024 07:01
Kyrrsetning Max-flugvéla nær ekki til Icelandair Gat sem myndaðist í Boeing 737 Max 9-flugvél Alaska Airlines tengist búnaði sem er ekki til staðar í Max-flugvélum Icelandair. Skoðanir bandarískra flugmálayfirvalda ná því ekki til flugvéla Icelandair. Innlent 6. janúar 2024 21:51
Icelandair í samskiptum við Boeing Icelandair á í samskiptum við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing vegna farþegaflugvélar Alaska Airlines sem gat myndaðist á skömmu eftir brottför. Innlent 6. janúar 2024 12:40
Tilboð JBT kom hlutabréfamarkaðnum á flug Hlutabréfamarkaðurinn, sem er góðri siglingu, þurfti afgerandi jákvæð skilaboð til að komast úr hjólförum sem hann var fastur í en umtalsverðar lækkanir höfðu einkennt gengisþróunina lengst af á árinu sem var að líða. Þau fékk hann með yfirtökutilboði frá JBT í Marel fyrir skemmstu og jákvæðum tóni í kjaraviðræðum. Frá þeim tíma hefur mikil stemning ríkt á markaðnum. Innherji 5. janúar 2024 17:49
Icelandair leigir eina Airbus til Icelandair og SMBC hafa undirritað samning um langtímaleigu á Airbus A321LR þotu til afhendingar á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þetta er fimmta Airbus-þotan sem Icelandair semur um langtímaleigu á við SMBC. Viðskipti innlent 5. janúar 2024 16:30
JBT fær tveggja vikna frest Marel hefur verið upplýst um að fjármálaeftirlit Seðlabankans hafi veitt JBT tveggja vikna framlengingu á fresti til þess að birta lokaákvörðun um hvort það hyggist gera yfirtökutilboð í Marel. Viðskipti innlent 5. janúar 2024 15:56
„Ekki viðskiptahættir sem okkur líkar við,“ segir næst stærsti eigandi Samkaupa Lífeyrissjóðurinn Birta, sem fer með tæplega fimmtungshlut í Samkaupum, gagnrýnir forsvarsmenn KEA fyrir óvandaða viðskiptahætti við sölu á hlut sínum í matvörukeðjunni til SKEL fjárfestingafélags með því að virða ekki ákvæði í hluthafasamkomulagi sem félagið hafði undirgengist. Framkvæmdastjóri Birtu segir að sjóðurinn muni núna endurskoða afstöðu sína til samkomulagsins vegna breytts eignarhalds en það hefur meðal annars snúið að skipan í stjórn Samkaupa. Innherji 5. janúar 2024 11:36
Herdís Dröfn nýr forstjóri Sýnar Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Sýnar að loknu ráðningarferli. Hún mun hefja störf þann 11. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Páll Ásgrímsson sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði eftir brotthvarf Yngva Halldórssonar hverfur aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs félagsins. Viðskipti innlent 5. janúar 2024 09:20
Taka ekki lengur við dönskum seðlum Frá og með áramótum hætti Íslandsbanki að taka á móti seðlum í dönskum krónum. Viðskipti innlent 4. janúar 2024 10:14
Straumur frá Rapyd til Adyen Straumur, íslenskt fyrirtæki í greiðslumiðlun og dótturfélag Kviku banka, hefur skrifað undir samstarfssamning við fjártæknifyrirtækið Adyen um færsluhirðingu og vöruþróun á sviði fjártækni. Viðskipti innlent 4. janúar 2024 08:28
Útleiguhlutfall Eikar nokkuð lágt en verðmat er 45 prósent yfir markaðvirði Útleiguhlutfall Eikar er nokkuð lágt, að mati greinanda sem metur gengi fasteignafélagsins 45 prósent yfir markaðsvirði. Þriðji ársfjórðungur var „örlítið erfiðari í útleigu“ heldur en fyrstu tveir fjórðungar ársins. Innherji 3. janúar 2024 16:16
„Computer says no“ hjá Play vegna ónýts farangurs „Mér finnast þau bara alveg ömurleg,“ segir Kristján Sævald Pétursson um viðbrögð Play en hann varð fyrir því á dögunum að taskan hans eyðilagðist í flugi með flugfélaginu. Neytendur 3. janúar 2024 14:00
Skel gerði tilboð sem KEA gat ekki hafnað KEA hefur selt fjárfestingafélaginu Skel allt hlutafé sitt í Eignarhaldsfélaginu Bjarma ehf. sem haldið hefur utan um fimm prósenta eignarhlut KEA í matvörukeðjunni Samkaup hf. Viðskipti innlent 3. janúar 2024 11:45
Fordæmir viðbrögð Play eftir að taska gjöreyðilagðist í flugi „Við komuna á Kastrup fór ég eins og venja er að ná í töskuna mína en í stað þess að fá hana til baka eins og venjulega þá kom taskan til mín gjörsamlega í henglum brotin á alla kanta og hékk bókstaflega saman á lyginni einni saman.“ Neytendur 3. janúar 2024 10:16
Hlutabréf enn hátt verðlögð miðað við hagnað og áhættulausa kröfu Þetta er í síðasta skipti sem CAPE-hlutfallið er birt byggt á Úrvalsvísitölunni OMXI10 en frá og með 1. janúar 2024 mun hún bera heitið OMXI15 og innihalda fimmtán félög í stað tíu. Hagsveifluleiðrétt hlutfall verðs á móti raunhagnaði (CAPE) fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI10 endaði síðasta ár í 28,1 samanborið við 29,1 árið áður. Innherji 3. janúar 2024 09:35
SKEL byggir upp stöðu í Samkaupum í aðdraganda skráningar á markað Fjárfestingafélagið SKEL, sem á Orkuna og Heimkaup, hefur gengið frá kaupum á um fimm prósenta eignarhlut í smásölufyrirtækinu Samkaupum. Forstjóri SKEL segir yfirlýst áform Samkaupa um að fara með félagið á markað gera það að áhugaverðum fjárfestingarkosti. Innherji 2. janúar 2024 13:33
Viðskiptafréttir ársins 2023: Sala áratugarins, vandræði Marel og heljarinnar gjaldþrot Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af ítrekuðum stýrivaxtahækkunum, síhækkandi verðalagi og mikilli lækkun hlutabréfaverðs en einnig stórum sigrum í atvinnulífinu. Viðskipti innlent 29. desember 2023 15:56
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir meira en tíu milljarða á árinu Þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum undir lok síðasta mánaðar þegar fréttir af mögulegu yfirtökutilboði í Marel bárust þá var ekkert lát á áframhaldandi útflæði fjármagns úr hlutabréfasjóðum. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins hafa fjárfestar minnkað stöðu sína í slíkum sjóðum umtalsvert meira en allt árið 2022 en í tilfelli skuldabréfasjóða hefur útflæðið nærri þrefaldast. Innherji 29. desember 2023 11:19
Icelandair skýri betur fjárhæð skrópgjalds og fleira til Neytendastofa hefur beint þeim fyrirmælum til Icelandair að tilgreina í flutningsskilmálum sínum með hvaða hætti farþegar skuli senda félaginu tilkynningar um að þeir hyggist ekki nýta einhvern hluta flugmiða og fyrir hvaða tímamark. Neytendur 28. desember 2023 14:31
Yfirtaka á Marel gæti „heft“ uppfærslu á markaðnum hjá vísitölufyrirtækjum Verði af yfirtöku bandaríska fyrirtækisins JBT á Marel er hætt við því að það myndi „hefta“ frekari hækkun á gæðaflokkun íslenska markaðarins hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn forstjóra Kauphallarinnar, enda sé ólíklegt að þau myndu telja íslensku kauphöllina vera heimamarkað sameinaðs félags. Stjórnendur Kauphallarinnar hafa haft væntingar um að markaðurinn gæti fengið uppfærslu í flokk nýmarkaðsríkja hjá MSCI á árinu 2024. Innherji 27. desember 2023 12:29
Uppbygging í ólgusjó á hlutabréfamarkaði Lengst af ársins 2023 var íslenskur hlutabréfamarkaður í ólgusjó. Þar skipti mestu máli hátt vaxtastig, knúið áfram af þrálátri verðbólgu og háum verðbólguvæntingum, sem var dragbítur á markaðinn. Þá bárust fréttir af stærstu skráðu félögunum sem fóru illa í fjárfesta. Áhyggjur af köldu efnahagslífi og heitum kjarasamningunum á næsta ári vofðu yfir markaðnum og alvarlegt stríðsástand í heiminum bætti ekki úr skák. Umræðan 27. desember 2023 10:58