Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Hlaðvarpsstjarnan Alex Cooper, sem stýrir hinu gríðarlega vinsæla hlaðvarpi Call Her Daddy, er orðin móðir í fyrsta sinn. Cooper, sem er gjarnan kölluð daddy eða pabbi af aðdáendum sínum, deildi tímamótunum á samfélagsmiðlum í dag. Lífið 20.10.2026 15:42
Ranglega greind með MS-sjúkdóm Leikkonan Christina Applegate segist hafa verið ranglega greind með MS-sjúkdóm. Hún hætti að leika fyrir fimm árum eftir greininguna og hefur síðan þá verið ötull talsmaður fyrir fólk með sjúkdóminn. Leikkonan segir tíðindin vera vonbrigði því hún glími enn við alvarleg einkenni og viti ekki hvað ami að sér. Lífið 20.10.2026 13:30
Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Bandaríska stórstjarnan Jennifer Lopez og breski leikarinn Brett Goldstein, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Ted Lasso, eru að stinga saman nefjum. Sambandið er á algjöru frumstigi. Lífið 19.10.2026 22:22
Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Kvikmyndin The Social Reckoning, sem fjallar um stóra Facebook-lekann árið 2021 sem afhjúpaði varhugaverða stjórnunarhætti fyrirtækisins, hefur fengið dræmar viðtökur hjá bæði gagnrýnendum og áhorfendum. Viðtökurnar hafa verið svo dræmar að hætt var við sýningu á kvikmyndinni á Íslandi, um þremur vikum fyrir frumsýningu. Bíó og sjónvarp 16. október 2026 13:12
Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Leikstjórinn Steven Soderbergh mun klára kvikmyndina The Batman: Part II vegna fjölskyldumála leikstjórans Matt Reeves. Fyrri myndin kom út vorið 2022 og átti framhaldið að koma út þremur árum síðar en útgáfunni hefur verið seinkað í þrígang til ársbyrjunar 2028. Ekki hefur komið fram hvers vegna Reeves steig til hliðar en um alvarlegt mál virðist vera að ræða. Bíó og sjónvarp 16. október 2026 11:24
Ólétt 52 ára Bandaríska leikkonan Hillary Swank og eiginmaður hennar, Philip Schneider, eiga von á sínu þriðja barni í desember. Swank, sem varð 52 ára í sumar, varð fyrst móðir fyrir rúmum þremur árum þegar hún eignaðist tvíbura. Leikkonan frysti egg sín 37 ára gömul til að geta einbeitt sér að leiklistarferlinum. Lífið 15. október 2026 10:47
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Söng- og fjölmiðlakonan Kelly Clarkson stendur í stríði við galdrabúð í Brooklyn eftir að henni fannst starfsmaður gefa í skyn að hún hefði ekki efni á vélrænum fugli í búðinni. Eigendur búðarinnar sögðu í yfirlýsingu að fuglinn væri varanleg útsetning og ekki til sölu en annar sambærilegur fugl væri falur. Það væri miður að Clarkson hefði upplifað sig óvelkomna og enn leiðinlegra að aðdáendur hennar hefðu ráðist á búðina á samfélagsmiðlum. Lífið 14. október 2026 16:42
Stelpurnar snúa aftur Gamanþættirnir Girls eftir Lenu Dunham munu snúa aftur á HBO og hefjast tökur á næsta ári, tíu árum eftir að sjötta serían kom út. Nýja þáttaröðin verður fimm þættir og snúa aðalstelpurnar fjórar allar aftur þó óvíst sé með Hollywood-stjörnuna Adam Driver. Bíó og sjónvarp 14. október 2026 10:21
Horfa fram á sögulegt tap Diggers Stórmyndin Digger stefnir í að skrá sig á spjöld sögunnar vegna dræmrar aðsóknar. Heildartap myndarinnar gæti numið allt að 29 milljörðum króna þegar kostnaður markaðsherferðar og hlutur bíóhúsa af tekjum myndarinnar er tekinn inn í jöfnuna. Fari svo gæti hún skipað sér í flokk með stærstu floppum kvikmyndasögunnar. Bíó og sjónvarp 13. október 2026 15:23
„Ég mun sakna þín, sonur“ Hollywood-stjarnan Bryan Cranston syrgir leikarann RJ Mitte sem féll frá í gær en þeir léku feðga í fimm þáttaraðir af sjónvarpsþáttunum Breaking Bad. Cranston fer fögrum orðum um Mitte og segir það harmafregn að leikarinn hafi stytt sér aldur. Hann hafi elskað Mitte og muni sakna hans. Lífið 13. október 2026 10:48
RJ Mitte er látinn Bandaríski leikarinn RJ Mitte, sem er þekktastur fyrir leik sinn í þáttunum Breaking Bad, er látinn en hann var aðeins 34 ára þegar hann lést. Hann lætur eftir sig unnustu en biðlað hefur verið til fólks að gefa ástvinum hans næði til að syrgja í friði. Lífið 12. október 2026 21:43
Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Bandaríska leikkonan Selma Blair var í dag handtekin og hefur verið ákærð fyrir í það minnsta tvær líkamsárásir, annars vegar gegn lögreglumanni og hjúkrunarfræðingi, en tvær flugfreyjur hlutu einnig áverka þegar Blair veittist að þeim um borð í flugvélinni. Á hún meðal annars að hafa bitið aðra þeirra og kýlt hina en Alríkislögreglan (FBI) er með málið á sínu borði. Lífið 12. október 2026 20:45
Digger grefur sína eigin gröf Stórmyndin Digger tæklar ýmis áleitin málefni samtímans: yfirstandandi hamfarahlýnun, hlutverk listar fyrir samfélagið og andvaraleysi nútímamannsins sem deyfir sig með afþreyingu meðan hann flýtur sofandi að feigðarósi. Þó að kafað sé ofan í fjölmörg mál er of grunnt farið og tapast sagan á endanum í frásagnarföndri. Gagnrýni 9. október 2026 07:05
Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct. Bíó og sjónvarp 7. október 2026 16:12
Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Jeremy Dufrene, eiginmaður heimsfrægu poppstjörnunnar Lönu del Rey, hafnar orðrómum um að hann hafi haldið framhjá eiginkonu sinni. Hann leggur sjálfur orð í belg í kommentakerfinu á samfélagsmiðlum og hjólar í netverja sem vænir hann um framhjáhald. Lífið 2. október 2026 23:32
Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til David Ellison, forstjóri Paramount Skydance segir að þegar kaupin á Warner Bros. Discovery ganga í gegn, muni fyrirtækið fá nafnið Skydance. Þannig munu vörumerkin Paramount og Warner heyra sögunni til, eftir að hafa verið áhrifamikil vörumerki í Hollywood í marga áratugi. Viðskipti erlent 2. október 2026 16:27
Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikarinn Michael Douglas hefur loksins gengist við því að hafa átt í leynilegu ástarsambandi með mótleikkonu sinni, Kathleen Turner, þegar þau tóku upp stórmyndina Romancing The Stone í Mexíkó árið 1984. Þau hafa alla tíð neitað fyrir sambandið sem Douglas ljóstrar nú upp um í nýrri ævisögu sinni. Bíó og sjónvarp 2. október 2026 16:04
Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Dómari hefur samþykkt tímabundið nálgunarbann sem franski leikarinn Olivier Martinez fór fram á gegn fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Halle Berry. Martinez óskaði eftir nálgunarbanninu í kjölfar þess að hafa sakað Berry um að kyrkja tólf ára son þeirra og beita þá feðga áralöngu ofbeldi. Lífið 2. október 2026 10:54
Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Klukkan er að ganga eitt og allir farnir að sofa en þú situr við tölvuskjáinn og stráfellir óða uppvakninga. Ein mistök skilja milli lífs og dauða, hjartað þitt slær á milljón en þú getur ekki hætt. Nýjasta aðlögun tölvuleiksins Resident Evil að stóra skjánum fangar þessar tilfinningar með því að senda áhorfendur í blóðuga, taugatrekkjandi og meinfyndna rússíbanareið um veirusýkta borg. Gagnrýni 2. október 2026 07:01
Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Rapparinn Lil Wayne hefur staðfest að hann sé trúlofaður 23 ára áhrifavaldinum Madison Cannon en 21 ár skilur parið að. Dægurmálamiðlar fjölluðu um trúlofunina fyrr á árinu en rapparinn þvertók fyrir það í sumar og sagði leiðir hafa skilið hjá parinu. Lífið 1. október 2026 12:13
Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Hvernig tilfinning ætli það sé að stoppa Alexander Skarsgård á leiðinni í mat með Björk og segja honum að hann sé hvergi nærri búinn að veita viðtal? Það er óþægileg tilfinning enda þekki ég það frá fyrstu hendi frá fundi okkar á Edition-hótelinu í fyrrakvöld. Í lokin neyddist ég til að viðurkenna fyrir honum að ég kæmist ekki á hátíðarsýningu nýju kvikmyndar hans því ég ætti stefnumót vegna sölu á notuðu teppi. Lífið 1. október 2026 10:09
Misstu þrettán ára dóttur sína Bandaríski leikarinn Chad Lowe og framleiðandinn Kim Painter hafa misst dóttur sína Fiona Hepler Lowe. Fjölskyldan staðfestir þetta í tilkynningu til fjölmiðla en stúlkan var einungis þrettán ára gömul. Lífið 30. september 2026 07:22
Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust. Bíó og sjónvarp 30. september 2026 07:01
Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Dansk-írakski leikarinn Dar Salim er staddur á landinu og virðist njóta þess vel miðað við færslu hans á samfélagsmiðlum. Hann segist þakklátur fyrir frídag og virðist því líka vera hér við vinnu miðað við færsluna. Lífið 29. september 2026 08:36