
Áfall fyrir Kanada að missa Formúlu 1 mótið
FIA tilkynnti í gær að ekkert mótshald verði í Montreal í Kanada á næsta ári og ákvörðunin virðist hafa komið skipuleggjendum mótsins á óvart.
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
FIA tilkynnti í gær að ekkert mótshald verði í Montreal í Kanada á næsta ári og ákvörðunin virðist hafa komið skipuleggjendum mótsins á óvart.
Forseti FIA, Max Mosley telur að framtíð Formúlu 1 sé í hættu, leiti forráðamenn keppnisliða ekki leiða til að minnka rekstrarkostnað. FIA vill að keppnislið komu með hugmyndir til að minnka kostnað verulega fyrir árið 2010.
Þriðja síðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram í Japan um helgina og fyrstu æfingar verða á aðfaranótt föstudags. Fimm ökumenn eiga enn möguleika á titlinum.
FIA gaf í dag út dagatal fyrir Formúlu 1 mótaröðina á næsta ári. Átjan mót verða á dagskrá og nýr mótsstaður í Abu Dhabi verður í lok ársins.
Ferrari hefur ákveðið að hætta notkun ljósabúnaðar sem átti þátt í því að Felipe Massa fékk engin stig í síðasta móti. Mikil hætta skapaðist þegar þjónustumaður gerði mistök og ræsti Massa af stað þó þjónusuhléi væri ekki lokið.
BMW Formúlu 1 liðið staðfesti í dag að Þjóðverjinn Nick Heidfeld og Pólverjinn Robert Kubica verða áfram hjá liðinu á næsta ári.
Fyrsta Formúlu 1 mótið í Abu Dhabi í mið austurslöndum fer fram á næsta ári. Skipuleggjendur þess er að skoða að flóðlýsa mótið eins og gert var í Sínapúr.
Nick Fry framkvæmdarstjóri Honda segist vilja Þjóðverjann Nick Heidfeld í sínar raðir, ef það bregst að Fernando Alonso lítist á samning við lið sitt.
Kazuki Nakajima hjá Williams var staðfestur ökumaður Williams árið 2009 í gærlvöldi. Hann er þakklátur fyrir það traust sem Frank Williams sýnir honum, en Nakajima er eini Japaninn í Formúlu 1.
Formúlu 1 lið Williams tilkynntii í kvöld að Nico Rosberg og Kazuki Nakajima verði áfram hjá Williams liðinu 2009.
Brasilíumaðurinn Bruno Senna, systursonur hins fræga Ayrton Senna gæti verið á leið í Formúlu 1.
Ferrari liðið hefur tekið þá ákvörðun að núverandi heimsmeistari skuli styðja Felipe Massa í síðustu þremur Formúlu 1 mótum ársins. Raikkönen keyrði á vegg um helgina og möguleikar hans á titli eru hverfandi.
Þrátt fyrir sigur Fernando Alonso í Singapúr um helgina þá segir Flavio Briatore, framkvæmdarstjóri Renault ekki víst að Spánverjjinn verði hjá liðinu 2009.
Lewis Hamilton varð að lúta í lægra haldi fyrir Fernando Alonso, fyrrum liðsfélaga sínum hjá McLaren á Singapúr brautinni í gær. En Hamilton jók hinsvegar forskot sitt í stigakeppninni eftir tvöfalt klúður Ferrari í mótinu.
Spánverjinn Fernando Alonso á Renault gerði sér lítið fyrir og vann Formúlu 1-mótið í Síngapúr í dag.
Forystumennirir í stigamótinu í Formúlu 1 ræsa fremstir af stað í kappakstrinum í Singapór í dag og stefna allir á sigur. Bein útsending frá mótinu hefst kl 11.30 á Stöð 2 Sport.
Rásröðinni í Formúlu 1 mótinu í Singapúr var breytt eftir tímatökuna vegna brots í brautinni. Dómarar töldu að Nick Heidfeld hefði hindrað Rubens Barrichello í tímatökunni.
Brasilíumaðurinn Felipe Massa náði besta tíma í tímatökum á götum Singapúr í dag. Hún fór fram að kvöldlagi að staðartíma á flóðlýstri götubraut. Lewis Hamilton á McLaren varð annar og Kimi Raikkönen á Ferrari þriðji.
Spánverjinn Fernando Alonso á Renault kom köppunum í titilslagnum aftur í opna skjöldu í Singapúr í dag.
Ítalinn Jarno Trulli fékk 1,3 miljóna sekt fyrir brot í brautinni í gær. Hann snarsnerist í upphafi beinasta kafla brautarinnar ók síðan gegn akstursstefnu bílanna í smástund til að komast útaf brautinni
Eftir tvær æfingar á Singapúr Formúlu 1 brautinni í dag, þá eru ökumenn harðir á því að laga þurfi brautina fyrir mótsdag. Ökumenn sátu öryggisfund í dag.
Spánverjinn Fernando Alonso stal senuni á lokamínútu annarrar æfingar Formúlu 1 liða á Síngapúr brautinni í dag. Hann náði besta tíma á Renault.
Bretinn Lewis Hamilton náði besta tíma í fyrstu æfingu keppnisliða á nýju Formúlu 1 brautinni í Singapúr í dag. Efstu menn í stigamótinu röðuðu sér í næstu sæti á eftir.
Nokkrir ökumenn sem keppa í Formúlu 1 mótinu í Síngapúr um helgina telja nokkra hættu á ferðum í einni af erfiðari beygjum brautarinnar.
Robert Kubica er meðal þeirra sem eiga enn möguleika á meistaratitilinum í Formúlu 1, þegar fjórum mótum er ólokið.
Felipe Massa hjá Ferrari er aðeins einu stigi á eftir Lewis Hamilton hjá McLaren í stigakeppni ökumanna. Þeir leiða saman hesta sína á fyrstu æfingum keppnisliða á morgun, en kappaksturinn verður á sunnudaginn á flóðlýstri braut.
Bretinn Lewis Hamilton spáir hörðum slag um meistaratitilinn í síðustu fjórum mótum ársins í Formúlu 1. Hann hefur þegar rölt brautina í Singapúr sem er ekin um helgina.
Hinn ungi Sebastian Vettel frá Þýskalandi sem vann óvænt síðasta Formúlu 1 kappakstur segist ekki búast við sigri á nýju brautinni í Singapúr um helgina.
Fjórfaldi Ameríkmeistarinn í kappakstri, Sebastian Bourdais segir nýju Formúlu 1 brautina í Singapúr magnað mannvirki. Hann rölti brautina fyrstur ökumanna sem komnir eru á staðinn.
Samtök Formúlu 1 ökumanna vill fá betri skýrari reglur á borðið frá FIA, eftir að áfrýjunardómstóll FIA staðfesti dóm yfir Lewis Hamilton frá Spa mótinu í Belgíu.