Schumacher nær toppnum en úrslit sýna Michael Schumacher er ekkert að fara af límingunum þó hann hafi aðeins náð tíunda sæti í ástralska kappakstrinum. Keyrt var á hann í fyrstu beygju mótsins og hann þurfti aukahlé sem kostaði hann dýrmætan tíma. Formúla 1 30. mars 2010 15:46
Engin örvænting þrátt fyrir áföll Christian Horner hjá Red Bull segir að engin örvænting sé hjá liðinu þó tæknilegar bilanir hafi í tvígang stöðvað framgöngu Sebastian Vettel á leið í fyrsta sæti í fyrstu tveimur mótum ársins. Formúla 1 29. mars 2010 14:03
Button sæll með McLaren sigur Bretinn Jenson Button var kampakátur með sigurinn í Formúlu 1 mótinu í Melbourne í dag. Hann fagnaði liðsmönnum sínum vel og kærustu sinni sem var á staðnum. Formúla 1 28. mars 2010 14:09
Spennutryllir þegar Button vann Bretinn Jenson Button á McLaren Mercedes vann spennuuþrunginn Fornúlu 1 kappakstur í Ástralíu í dag. Með útsjónarsemi sá hann við keppinautum sínum og fagnaði fyrsta sigrinum með McLaren liðinu, sem hann gekk til liðs við í vetur. Formúla 1 28. mars 2010 09:26
Schumacher fannst Alonso hindra sig Þjóðverjinn Michael Schumacher ræddi við Fernando Alonso strax eftir tímatökuna og spurði hann hvort Ferrari liðið hefði beðið hann að tefja fyrir sér í tímatökunni á einhvern hátt. Formúla 1 27. mars 2010 16:42
Vettel: Frábær úrslit fyrir liðið Þjóðverjinn Sebastian Vettel er fremstur á ráslínu fyrir Formúlu 1 mótið í Ástralíu sem fer fram snemma morguns. Bein útsending á Stöð 2 Sport hefst kl. 5.30. Formúla 1 27. mars 2010 16:14
Vettel og Webber í fremstu röð Red Bull ökumennirnir Sebastian Vettel og Mark Webber náðu fyrsta og öðru sæti í tímatökunni í Mlebourne i Ástralíu í morgun, en Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji. Formúla 1 27. mars 2010 07:18
Hamilton ánægður með spretthörkuna Bretinn Lewis Hamilton er hamingjusamur með McLaren fák sinn eftir æfingar föstudagsins. Hann náði besta tíma á undan Jenson Button, liðsfélaga sínum á seinni æfingunni, en Robert Kubica var fljótari á þeirri fyrri. Formúla 1 26. mars 2010 16:39
Breytt tímasetning á Formúlu 1 keppni Formúlu 1 mótið í Melbourne í Ástralíu verður í beinni útsendingu kl. 5.30 á sunnudag, á Stöð 2 Sport en ekki 6.30 eins og hefur verið kynnt víða í vikunni. Formúla 1 26. mars 2010 15:56
Alonso: Red Bull menn mjög fljótir Fernando Alonso var í basli á æfingum í morgun og náði ekki að nýta sér þurra braut á seinni æfingu af tveimur, þegar rigningarskvetta truflaði æfinguna oftar en eini sinni. Hann náði aðeins fimmtánda besta tíma og skorti því æfingatíma á brautinni Formúla 1 26. mars 2010 10:04
Hamilton fljótastur á votri æfingu Lewis Hamilton á McLaren reyndist allra manna fljótastur á seinni æfingu keppnisliða á götum Melbourne í morgun. Hann var einn fárra sem náði að aka á þurri braut, en rigning hefti framför margra annarra. Formúla 1 26. mars 2010 07:58
Kubica sneggstur á götum Melbourne Pólverjinn Robert Kubica á Renault var fljótastur allra á fyrstu æfingu keppnisliða í Mlebourne í Ástralíu í nótt. Hann ekur Renault, en Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Jenson Button þriðji á McLaren Mercedes. Formúla 1 26. mars 2010 04:04
Webber: Heimasigur væri kærkominn Ástralinn Mark Webber var meðal ökumanna á formlegum blaðamannafundi FIA með nokkrum keppendum. Hann er með bíl sem gæti náð toppsæti, en telur að árangur í tímatökum skipti höfuðmáli, en hann vann tvö mót í fyrra. Formúla 1 25. mars 2010 14:41
Schumacher: Engin skömm af árangrinum Þjóðverjinn Michael Schumacher náði sjötta sæti í fyrsta móti ársins og segist hafa náð hámarks árangri í sinni fyrstu keppni með Mercedes. Hann varð á eftir Nico Rosberg á samskonar bíl. Formúla 1 25. mars 2010 13:22
Sögulegur samningur Ferrari Ferrari tilkynnti í dag framlengingu samnings við Shell, sem hefur verið í gangi frá árinu 1929. Ferrari liðið mun starfa áfram til ársins 2015 með Shell, en saman hafa fyrirtækin unnið fjölda titla og sigra í Formúlu 1, ekki síst með Michael Schumacher á sínum tíma. Fyrirtækin tvö hafa starfað saman í 450 mótum um helgina. Formúla 1 25. mars 2010 13:04
Engir örðugleikar milli Schumacher og Rosberg Nico Rosberg segist gæta orða sinna sem liðsfélagi Michael Schumacher þar sem hætt sé við því að orð hans sé mistúlkuð af pressunni, til að búa til spennandi fréttir. Formúla 1 25. mars 2010 10:38
Formúlu kappi nærri gini hákarls Paul di Resta sem keyrir Formúlu 1 bílí fyrsta skipti á æfingum í Melbourne á föstudag fékk aðra frumraun í flasð í dag. Hann stóð nærri hákarli á strönd við Melbourne, sem var kannski ekki besta auglýsingin fyrir ferðamennskuna á staðnum. Hákarlinn hafði fest sig í flæðarmálinu. Formúla 1 24. mars 2010 17:30
Hamilton horfir til sigurs Ástralir virðast gera í því að leyfa Formúlu 1 ökumönnum að upplifa eitthvað meira en kappakstur þessa mótshelgina, því Lewis Hamilton var settur á stýrið á skútu í Sydney eftir að hafa flogið til Ástralíu. Það er ágæt upphitun fyrir kappaksturinn á sunnudag og hann svaraði síðan spurningu á kynningu hjá Vodafone eftir túrinn. Formúla 1 24. mars 2010 11:15
Vettel lærði kasta bjúgverpli Sebastian Vettel og Mark Webber eru liðsfélagar hjá Red Bull og þykja líklegir til afreka á götum Melbourne á heimavelli Webbers. Vettel voru kennd réttu handtökin við að kasta bjúgverpli, sem er vinsælt atferli í Ástralíu. Formúla 1 24. mars 2010 10:17
Alonso: Fjögurra liða slagur framundan Spánverjinn Fernando Alonso sem vann fyrsta Formúlu 1 mót ársins telur að fjögur lið verði í slagnum um sigur í Ástrralíu um helgina. Hann vann fyrsta mót ársins og ræddi málin á vefsíðu sinni. Formúla 1 24. mars 2010 09:10
Heimavöllurinn gæti hjálpað Webber Ástralinn Mark Webber verður í faðmi heimamanna í Melbourne í Ástralíu um næstu helgi og á Red Bull sem talinn er brjálæðislega fljótur að einum keppinaut hans, Lewis Hamilton. Þeir aka báðir Albert Park brautina í Melbourne um helgina. Formúla 1 23. mars 2010 15:15
McLaren verður sterkt í Melbourne Formúlu 1 meistarinn Jenson Button telur að McLaren verði sterkara í Melbourne, en í fyrsta mótinu í Barein á dögunum. Formúla 1 23. mars 2010 12:47
Schumacher nýtur mests stuðnings Formúlu 1 áhugamenn um heim allan tóku þátt í víðtækri könnun á vegum FOTA, samtaka keppnisliða og F1 racing tímaritsins í vetur. Samkvæmt henni er Michael Schumacher með mest fylgi ökumanna. Formúla 1 23. mars 2010 11:40
Gott forskot Ferrari í stigamótinu Gott forskot Ferrari í stigamótinu Ferrari er með gott forskot í stigamóti keppnisliða eftir fyrsta mótið af 19 á þessu keppnistímabili í Formúlu 1. Formúla 1 22. mars 2010 16:31
Rússar fagna nýliðanum í Formúlu 1 Vitaly Petrov frá Rússlandi keyrði í sínu fyrsta Formúlu 1 móti í Barein á dögunum og stökk úr sautjánda sæti á ráslínu í það ellefta. En svo bilaði bíllinn eftir góða spretti. Formúla 1 22. mars 2010 14:26
Hamilton: Red Bull fáránlega fljótur Lewis Hamilton segir að keppnisbíll Red Bull liðsins sé fáránlega fljótur og því erfiður viðureignar. Hann sagði þetta í spjalli við breska blaðamenn. Formúla 1 22. mars 2010 13:12
Formúla 1 styður umferðarátak Formúlu 1 lið hafa ákveðið að styðja við alþjóðlegt umferðarátak sem kallast Make Roads Safe og verða allir bílar merktir átakinu frá og með ástralska kappakstrinum. Formúla 1 19. mars 2010 17:26
Webber: Ekkert lið er skothelt Mark Webber segir að ekki sé spurning að áreiðanleiki Red Bull bílanna verði eins og best verður á kosið, þó lið hans hafi lent í ýmsum vandræðum í fyrsta móti ársins. Sebastian Vettel, félagi Webber missti af mögulegum sigri, þegar vélin bilaði í Red Bull bíl hans. Hann hafði leitt mótið i Barein frá byrjun. Formúla 1 19. mars 2010 13:32
FIA heimtar breytingu á toppbílum FIA hefur sent tilmæli til allra keppnisliða varðandi búnað keppnisbíla, sem kallast loftdreifir og er aftan á bílunum. Formúla 1 19. mars 2010 11:40
Hamilton slær Button ekki út af laginu Bretinn Jenson Button, núrverandi meistari., segir að Lewis Hamilton hafi ekkert slegið sig útaf laginu þó að hann hafi náð betri árangri í fyrsta móti ársins með McLaren. Formúla 1 18. mars 2010 13:16