

Ferðalög
Greinar um ferðalög, ferðasögur og frábæra staði til að heimsækja.

Komdu í veg fyrir bitglaðar blóðsugur í sumar!
Öflug flugnafæla er staðalbúnaður fyrir ferðalagið því góð útilega eða bústaðarferð getur hratt orðið fúl ef maður vaknar útbitinn og að tapast í meðfylgjandi kláða.

Einstök upplifun í sveitasælu
Hótel Grímsborgir er sannkölluð perla við Gullna Hringinn, staðsett á bökkum Sogsins með mikla náttúrusýn í allar áttir. Í ár voru opnuð ný og glæsileg fimm herbergja Deluxe hús sem hægt er að leigja fyrir hópa sem og einstaklinga.

Ekki gera þessi mistök í sumarfríinu!
Á þeim allt of mörgu klukkutímum sem ég hef eytt í að skoða samfélagsmiðla og fréttasíður síðustu ár, hef ég tekið eftir því hvað óskaplega margir hafa áhyggjur af því að ég geri mistök.

„Komin upp í þak“ í verðlagningu
Markaðssetja þarf Ísland með öflugari hætti en síðustu ár, að sögn leiðtoga ferðaþjónustufyrirtækja, sem segir Ísland hafa náð ákveðnum toppi í verðlagningu. Dregið hefur úr fjölda ferðamanna hingað til lands miðað við síðasta ár.

Finna vel fyrir fækkun ferðamanna en láta ekki deigan síga
Gistinætur á Íslandi í maí voru færri en á sama tíma á síðasta ári. Hlutfallslega mestur samdráttur í gistinóttum var á Austurlandi, en framkvæmdastjóri hagsmunastofnunar þar segist þrátt fyrir það bjartsýn, og sér tækifæri í veðrinu sem leikur nú við Austfirðinga.

Rúmlega tuttugu þúsund færri ferðamenn í júní
Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi í gegnum Keflavíkurflugvöll voru um það bil 212 þúsund í nýliðnum júnímánuði, en það er um 21 þúsund færri brottfariar en mældust í fyrra, eða lækkun um níu prósentustig.

Óbrjótanleg lúxusglös í útileguna
Koziol Superglas glösin eru gerð úr óbrjótanlegu hátækniplasti sem á sér engan líkan hvað varðar endingu og styrkleika. Superglas eru einstök nýsköpun frá þýska vörumerkinu Koziol sem margir hönnunarunnendur kannast við.

Stjörnulífið: Dauð mús og djamm í Mykonos
Síðastliðin vika var viðburðarík að vanda en veðrið stendur sannarlega upp úr hjá samfélagsmiðlastjörnunum, hvort sem það hafi verið í bongó blíðu á höfuðborgarsvæðinu, í kulda fyrir norðan eða í suðrænni sól.

Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol
Borgarstjórn í Marbella-borg á Spáni hefur neitað ásökunum um að bráðlega muni fólk vera sektað fyrir að kasta af sér þvagi í sjóinn á vinsælustu ferðamannaströndum Costa del Sol. Strendurnar eru gríðarlega vinsælar meðal Íslendinga.

Ferðatryggingar og val á kreditkorti
Stundum er ég spurð að því hvort ferðatryggingar kreditkorta séu ekki óþarfi þar sem margir eru með heimilistryggingar sem fela einnig í sér tryggingavernd á ferðalögum.

Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar
Réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári.

Áhersla á öryggi viðskiptavina
Bylgjan, Vísir, Stöð 2 og Samgöngustofa standa fyrir umferðarátaki í sumar og er Bílaleiga Akureyrar einn þeirra samstarfsaðila sem taka þátt í átakinu.

Fimmtán ómissandi hlutir í útileguna
Hvað er dásamlegra en sólríkar sumarnætur í guðs grænni náttúrunni í góðum félagsskap? Að mati margra er það ómissandi þáttur af sumrinu. Þegar kemur að því að pakka niður fyrir ferðalagið er að mörgu að huga fyrir utan þann grunnbúnað sem fylgir útilegunni.

Haldin Cher-legri aðdáun á Jökli og félögum
Íslenska hljómsveitin Kaleo hitti bandarísku stórstjörnuna Cher á dögunum á tónleikaferðalagi þeirra um Norður Ameríku. Hljómsveitin birti mynd af þeim með tónlistarkonunni á Instgram.

Fyrirsætan Alessandra Ambrosio hitti Rúrik á Íslandi
Brasilíska ofurfyrirsætan Alessandra Ambrósio hefur verið á ferðalagi um Ísland síðastliðna daga. Ambrósio er hvað þekktust fyrir að ganga pallana á árlegri tískusýningu fyrir nærfatarisann Victoria's Secret.

Ein helsta perla Ítalíu lokuð ferðamönnum
Bæjarstjóri Capri-eyju á Ítalíu fyrirskipaði að ferðamönnum yrði meinaður aðgangur að eyjunni klukkan níu í morgun. Neyðarástand ríkir á eyjunni vegna skorts á vatni.

Banna skammtímaleigu til túrista í Barcelona
Í Barcelona verður ekki hægt að leigja íbúðir til ferðamanna frá árinu 2028. Borgarstjóri Barcelona Jaume Collboni tilkynnti í gær að fyrir þann tíma myndi borgin afturkalla leyfi um tíu þúsund íbúða til að leigja til skamms tíma. Barcelona er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna í Evrópu og hefur það um langa hríð haft mikil áhrif á húsnæðismarkað í borginni.

Fann fyrir nærveru hinna látnu í Auschwitz
„Það tók virkilega á að sjá þennan stað og upplifa þá skelfilegu sögu sem þarna fór fram,“ segir ljósmyndarinn Hilmar Þór Norðfjörð. Hann heimsótti á dögunum útrýmingarbúðir nasista í Auschwitz með myndavélina við höndina.

Ólga í Öxarfirði vegna lokunar sundlaugar
Ólga er meðal íbúa í Öxarfirði og Kelduhverfi vegna þeirrar ákvörðunar byggðaráðs Norðurþings að loka sundlauginni í Lundi. Aðilar í ferðaþjónustu í héraðinu lýsa einnig megnri óánægju sinni. Sundlaugin er aðeins sjö kílómetra frá Ásbyrgi og hefur verið vinsæl meðal ferðafólks sem sækir heim náttúruperlur Jökulsárgljúfra.

Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi
Meðlimur í Facebook-hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi vekur athygli á að samlokur á stærð við rúnstykki á matsölustaðnum við Geysi kosti tæpar 2500 krónur. Eigandi staðarins segir samlokurnar matarmiklar og nýsmurðar með áleggi beint frá býli.

Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær
Björgunarsveitir á Suður- og Vesturlandi brugðust við tveimur útköllum í tengslum við útivist í gær, annars vegar vegna reiðslyss í Borgarfirði og hins vegar vegna gönguslyss í Þórsmörk.

Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin
Ráðuneyti Svandísar Svavarsdóttur og Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið, áttu bæði aðild að undirritun þjónustusamnings við Isavia í síðustu viku þar sem félaginu var veitt heimild til innheimtu bílastæðagjalda á flugvöllum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir þetta hafa verið leynigjörð á sama tíma og fyrir lá lögfræðiálit þar sem efast var um lögmæti gjaldtökunnar.

Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti
Bandarískur karlmaður lét lífið eftir að hafa orðið fyrir rafstuði í heitum potti á íbúðahóteli í borginni Puerto Peñasco í Sonora-ríki í Mexíkó.

Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi
Ástralskur ferðalangur sem heimsótti Ísland nýlega vekur athygli á því að engar almenningssamgöngur ganga frá Reykjanesbæ að Keflavíkurflugvelli á næturnar og þar af leiðandi hafi hún ákveðið að ganga á flugvöllinn, þar sem hún átti bókað morgunflug, í stað þess að borga fyrir leigubíl.

Skelltu þér í sólina í sumar
Þetta sumarið býður Úrval Útsýn upp á marga spennandi áfangastaði í sólina. Hvort sem ætlunin er að slaka á, hreyfa sig, skemmta sér eða njóta matar og menningar, þá eru valkostirnir margir.

Tómas hitti sofandi hjartaskurðlækninn
Tómas Guðbjartsson hjartalæknir er staddur í Varsjá á ráðstefnu um hjartaskurðlækningar. Þar hitti hann einn fremsta hjartaskurðlækni Pólverja, Romual Cichon, sem var sofandi úti í horni á einni frægustu mynd sem tekin hefur verið í hjartaaðgerð og var valin mynd ársins 1987 í National Geographic.

Siggi stormur stendur við spána
Besta veðrið um helgina verður á sunnanverðu landinu að sögn Sigga storms, sem segist standa við spá sína um sólríkt sumar þó það eigi sennilega ekki við um júnímánuð. Hann bindur vonir við að júlí og ágúst verði landanum hliðhollari.

„Eins og þetta hafi gerst í gær á þessum stöðum“
Áttatíu ár eru liðin frá árásinni í Normandí, þar sem herlið Bandamanna réðst inn í Frakkland til að frelsa Evrópu undan oki nasismans. Séra Þórhallur Heimisson stendur fyrir ferð á þessar sögulegu slóðir.

Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni
Ferðaþjónustan er að stefna í öfuga átt miðað við það markmið að hver ferðamaður skili meiri verðmætum í stað stöðugrar fjölgunar ferðamanna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir aukna markaðssetningu einu leiðina til að snúa þessari öfugþróun við.

Pula í Króatíu er paradís heim að sækja
Nýjasti áfangastaður Íslendinga er paradísin Pula í Króatíu. Aventura mun bjóða upp á beint flug þangað í sumar.