Brenndur Bismark Einhver tiltekin iðja verður í sjálfu ekki góð eða réttmæt við það eitt að vera kennd við list – og svo sem ekki heldur vond eða ómerkileg. Fastir pennar 10. júní 2013 09:02
Árshátíð þvermóðskunnar Kæru velunnarar þrjóskunnar, senn líður að árshátíð okkar. Tilgangur þessa fréttabréfs er að minna ykkur á að allt verður samkvæmt hefðunum. Þessi orð eru nákvæmlega þau sömu og þið lásuð í fyrra og ekkert ætti að koma ykkur á óvart. Bakþankar 10. júní 2013 09:00
Skítareddingar Orkuveitunnar "Það hefur alltaf verið mín skoðun, og það er ekkert nýtt, að það hefði átt að byggja Hellisheiðarvirkjun í áföngum. En í mínum huga skiptir það ekki máli í dag. Virkjunin er þarna og ég er að leita að lausnum. Það er mitt starf,“ segir hann í Fréttablaðinu í dag. Fastir pennar 10. júní 2013 08:53
Að eilífu, amen Frá því var greint í vikunni að Landsbankinn hefði skrifað gamla bankanum bréf og óskað eftir að endursemja um kjör og lánstíma á þrjú hundruð milljarða króna skuldabréfi. Lengi hefur verið vitað að hvorki bankinn né þjóðarbúið eiga gjaldeyri til að greiða þessa skuld á réttum tíma. Fastir pennar 8. júní 2013 06:00
Piltur og stúlka Eftir sveitaball sem haldið var í Njálsbúð sumar eitt undir lok síðustu aldar móðgaðist ég. Þetta sumar var ég, eins og fjöldi annarra sunnlenskra ungmenna, að störfum í SS svo landinn fengi nægju sína af pylsum og grillmeti. Bakþankar 8. júní 2013 06:00
Feður undir smásjá? Ég fékk nýlega skyndilegan áhuga á ýmsum álitaefnum tengdum fæðingarorlofi. Áhuginn barst til mín í skömmtum, í formi nokkurra bréfsendinga frá Fæðingarorlofssjóði á Hvammstanga, þar sem ég var beðinn um skýringar á hinu og þessu. Við þessum bréfum hef ég samviskusamlega brugðist, vitanlega með bréfpósti. Því ekki á ég fax. Gaman að því. Fastir pennar 7. júní 2013 08:44
Hvað má vitleysan kosta? Nýverið var upplýst að Ísland hefði fallið um þrjú sæti í árvissri mælingu á samkeppnishæfni þjóða. Skortur á framtíðarstefnu í gjaldeyrismálum þjóðarinnar til lengri tíma hjá þeirri ríkisstjórn sem nú hefur tekið við er tæpast til þess fallinn að auka fólki bjartsýni um að í vændum sé betri tíð. Fastir pennar 7. júní 2013 07:00
Tittlingadýrkun Strákar dýrka á sér tittlinginn. Það er alkunna. Og ekki bara strákar, heldur karlar á öllum aldri. Þeir vilja veg hans sem mestan og eru reiðubúnir í alls kyns heimskulegar typpakeppnir til að vinna honum brautargengi. Bakþankar 7. júní 2013 06:00
Bienvenue en Islande Frakkland varð í síðasta mánuði þrettánda ríki heims til að leyfa hjónabönd samkynhneigðra, er ný hjúskaparlög gengu í gildi. Fyrsta hjónavígsla samkynhneigðra fór fram í Montpellier í síðustu viku. Einhver henti reyksprengju að ráðhúsinu þar sem athöfnin fór fram. Fastir pennar 6. júní 2013 08:51
Ekkert stress, bara gleði Blessuð sé minning Hermanns Gunnarssonar. Blessuð sé minning einlægrar lífsgleði, blessaður sé þessi eftirminnilegi hlátur og þetta einstaka bros. Elsku Hemmi Gunn. Hemmi var einn af örfáum Íslendingum sem heilu kynslóðirnar geta talið til "icon-a“ sinna. Hann skipar sér umsvifalaust á bekk með þröngum hópi eftirminnilegustu persónuleika síðari ára. Bakþankar 6. júní 2013 08:49
"Hættið að geraða“ Þegar ég fór í starfskynningu á Morgunblaðið í 10. bekk og skartaði dragtarjakka af mömmu og hátíðlegri svip en páfinn á jólunum sá ég fyrir mér framtíð fulla af ábúðarfullum skrifum um hluti eins og verðbólgu, stýrivexti og aflaheimildir. Fastir pennar 5. júní 2013 08:59
Óvissa og bið í Evrópumálum Í atvinnulífinu vænta margir mikils af nýju ríkisstjórninni. Fólk sem á og rekur fyrirtæki vonast augljóslega til að hún geti rofið kyrrstöðu og skapað umhverfi sem hvetur til athafna, fjárfestinga og atvinnusköpunar. Fastir pennar 5. júní 2013 08:59
Pappírsfáni á priki Við skulum sjá,“ sagði mamma og þá vissi ég að útséð var með að nokkuð yrði úr. Orðin „seinna“ og „kannski“ höfðu sömu merkingu við ákveðnar aðstæður, þau þýddu í rauninni „nei“. Bakþankar 5. júní 2013 08:59
Hoppað yfir þriðja tuginn Jæja, þá er dagurinn sem ég hef kviðið fyrir síðustu 364 daga runninn upp. Dagurinn sem var í svo mikilli órafjarlægð fyrir tíu árum. Já, í dag hoppa ég yfir í nýjan tug. Ég er 30 ára í dag. Fertugsaldurinn ógurlegi hefur bankað að dyrum. Ég er ekki viss um að ég þori til dyra. Bakþankar 4. júní 2013 09:05
Facebook breytir verkferlum Forsætisráðherra Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, lét hafa það eftir sér í gær að samfélagsmiðlar væru mesta ógnin við nútímasamfélög. Ásakar hann öfgaöfl um að nýta sér Facebook og Twitter til að æsa til mótmælanna gegn honum sem nú grassera í landinu. Fastir pennar 4. júní 2013 09:05
Konur og kynlíf Opinber umræða um kynlíf er oftast feimnismál og oft er erfitt að koma orðum að því sem kann að angra viðkomandi. Við vitum að það á við um slíkar umræður við maka, vini, kunningja og að sjálfsögðu heilbrigðisstarfsfólk. Því getur verið snúið að fá aðstoð eða leita sér upplýsinga. Í þessu efni er ekki sérlega mikill munur á milli kynja, en mögulega eru konur þó opnari og reiðubúnari að tjá sig en karlar. Fastir pennar 4. júní 2013 09:05
Ævintýraleg ferð Óvænt stóð ég og handfjatlaði forna skinnbók, nánar tiltekið frá því um 1300. Fallegt lítið handrit, sem fjallar um jafn þurrt efni og skáldskaparfræði. Bókin kennir það hvernig túlka skuli gamlar sögur og ljóð. Bakþankar 3. júní 2013 06:00
Ennþá lefir menningin Þorsteinn Gylfason sagði að menning væri "að gera hlutina vel“ og hitti naglann á höfuðið eins og hans var von og vísa. Fastir pennar 3. júní 2013 06:00
Fleiri að bjarga, minni peningar Giftusamlega tókst að bjarga franskri ferðakonu sem týndist fyrir helgina og var á gangi í 30 tíma áður en hún fannst í fyrrinótt. Fastir pennar 3. júní 2013 06:00
Tækifærin sem urðu til í hruninu Frá hruni hafa flest ný störf orðið til í ferðaþjónustu og fiski. Fiskiðnaðurinn einn og sér hefur skapað yfir ellefu hundruð ný störf og bara í hótel- og veitingahúsarekstri hafa skapast átján hundruð ný störf síðan árið 2008. Flest þessara starfa urðu til hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þetta kom fram í úttekt í Markaðnum sem fylgdi Fréttablaðinu fyrr í vikunni. Fastir pennar 31. maí 2013 12:00
Mest lesið dálkurinn Þegar netið kom fyrst til sögunnar voru margir íhaldssamir blaðamenn pirraðir á því hversu mikil áhersla var lögð á nýjustu fréttirnar hjá netmiðlunum. Nýjustu fréttirnar eru ekki endilega merkilegastar, en þær fengu mesta plássið. Í dag er þetta að breytast en við erum sannarlega að fara úr öskunni í eldinn. Í dag er það "mest lesið dálkurinn“ sem allt snýst um. "Heilbrigðari kynfæri með meira kynlífi“, "Loftsteinn á leiðinni“, "Á gólfinu var allt í viðbjóði“. Þetta voru mest lesnu fréttirnar á stærstu netfréttamiðlum landsins síðasta þriðjudag. Bakþankar 30. maí 2013 12:00
"Það er frábært að geta valið“ Áskorun um styttingu skólagöngu skaust upp á yfirborðið nýlega. Í þetta skiptið gerðist það í kjölfar útgáfu skýrslu samráðsvettvangs um aukna hagsæld. Þar var lögð fram tillaga um að stytta skólagöngu um tvö ár til að auka framleiðni í skólakerfinu. Því er ekki að neita að umrædd framleiðni mætti vera mun betri enda er fimm ára meðalnámstími til stúdentsprófs allt of langur tími. Að auki er erfitt að útskýra af hverju íslenskir nemendur eru tveimur árum eldri en nágrannaþjóðir okkar að loknu framhaldsskólaprófi. Áskorunin er því réttmæt. Fastir pennar 30. maí 2013 10:30
Tvöfalt heilbrigðiskerfi Á Íslandi bólusetjum við ekki við hlaupabólu, en í fréttum okkar á Stöð 2 í gær og Fréttablaðinu í dag kemur fram að árlega lenda nítján einstaklingar á spítala vegna alvarlegra einkenna af völdum hlaupabólu. Mikill fjöldi barna fær hlaupabólu árlega, með tilheyrandi kláða og óþægindum. Það tekur flesta krakka um tíu daga að jafna sig og mamma og pabbi þurfa að sjálfsögðu að taka sér frí frá vinnu til að sinna börnunum. Hlaupabóla getur verið alvarlegur sjúkdómur hjá börnum. Sjúkdómurinn getur nefnilega farið illa í börn líkt og fullorðna. Fastir pennar 30. maí 2013 07:00
Barnafjölskyldur fluttar með valdi Í gær voru 27 manns fluttir nauðugir með leiguflugi til Króatíu. Þetta voru fjölskyldur með börn sem höfðu selt aleigu sína til að freista gæfunnar á Íslandi. Fastir pennar 29. maí 2013 07:00
Sigmundur og sundurlyndið Önnur málsgrein í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar nýju hljóðar svo: ?Ríkisstjórnin mun leitast við að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið.? Hvað þetta þýðir í framkvæmd er frekar erfitt að ráða í, en ekki er hægt að segja að forsætisráðherrann hafi farið á undan með góðu fordæmi þá sex daga sem hann hefur verið í embætti. Þykja yfirlýsingar hans um umhverfismál bera vott um fádæma hroka og lítilsvirðingu á sjónarmiðum Fastir pennar 28. maí 2013 07:00
Að bíða í ofnæmi Ég heyrði þennan frasa og stafarugl fyrst hjá vini mínum fyrir mörgum árum og er ákveðin kímni í honum, en þegar maður horfir til ofnæmis og þeirra einkenna sem einstaklingar glíma við er manni enginn hlátur í huga. Það að vera með ofnæmi, hvaða tegund sem það kann að vera, getur verið allt frá því að finna til minniháttar óþæginda við ákveðnar kringumstæður yfir í að glíma við lífshættulegan sjúkdóm. Þegar við erum að ræða þessi atriði er ágætt að skilgreina á milli þess sem í daglegu tali kallast ofnæmi, eða á ensku allergy, og þess sem mætti kalla Fastir pennar 28. maí 2013 07:00
Í þágu almennings ekki sérhagsmuna Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar er æði loftkenndur og hefði mátt stytta hann um helming (5 bls. ) án þess að raska efnislegu inntaki. Ég lýsti þessari skoðun við formann Sjálfstæðisflokksins sama dag og ný stjórn var kynnt undir sterkum þjóðernisblæ á Laugarvatni. Fastir pennar 27. maí 2013 15:59
Vill einhver elska 49 ára gamla konu? Það er margt sem ég óttast í lífinu. Ég óttast stöðugt að fá raflost nálægt innstungum og brauðristum, ég held mig fjarri fólki sem spyr mig til vegar, ég hef áhyggjur af því að pabbi minn komist að því að ég sprengdi dekkið á hjólinu hans, aftur, og svo óttast ég að verða miðaldra kona. Bakþankar 27. maí 2013 07:00