Mikel Arteta missti af möguleikanum Met José Mourinho lifir áfram vegna þess að Manchester City vann enska meistaratitilinn i fótbolta í gær en ekki Arsenal. Enski boltinn 20. maí 2024 12:52
Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Jürgen Klopp kvaddi Liverpool í gær og fullvissaði alla um það að hann væri með engin plön um endurkomu í þjálfun. Enski boltinn 20. maí 2024 12:32
23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Phil Foden kórónaði stórkostlegt tímabil sitt í gær með tveimur mörkum í lokaleik Manchester City á móti West Ham. Mörkin tryggðu liðinu 3-1 sigur og enska meistaratitilinn fjórða árið í röð. Enski boltinn 20. maí 2024 11:46
Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Pep Guardiola gerði Manchcester City að Englandsmeisturum fjórða árið í röð í gær og jafnfram í sjötta sinn á sjö árum. Hann ræddi framtíð sína hjá félaginu eftir 3-1 sigur á West Ham í lokaumferðinni. Enski boltinn 20. maí 2024 10:31
Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Aldrei áður hafa verið skoruð eins mörg mörk í ensku úrvalsdeildinni eins og á tímabilinu sem lauk í gær. Enski boltinn 20. maí 2024 10:16
„Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Enski landsliðsmaðurinn Phil Foden lauk frábæru tímabili í ensku úrvalsdeildinni með tveimur mörkum er lokaumferðinni sem fram fór í gær. Fótbolti 20. maí 2024 08:01
Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Jürgen Klopp stýrði Liverpool í síðasta sinn í dag þegar liðið vann 2-0 sigur gegn Wolves í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 19. maí 2024 20:00
Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Alls voru 37 mörk skoruð í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Manchester City tryggði sér titilinn fjórða árið í röð og í sjötta sinn á síðustu sjö árum. Enski boltinn 19. maí 2024 17:15
Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Manchester City tryggði sér sinn fjórða Englandsmeistaratitil í röð er liðið vann 3-1 sigur gegn West Ham í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 19. maí 2024 14:30
United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Manchester United vann 2-0 útisigur er liðið heimsótti Brighton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Þetta var síðasti leikur Roberto De Zerbi sem knattspyrnustjóri Brighton. Fótbolti 19. maí 2024 14:30
Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Arsenal vann 2-1 sigur er liðið tók á móti Everton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Liðið þurfti á sigri að halda til að halda titilvonum sínum á lífi, en sigur Manchester City þýðir að Arsenal þarf að gera sér annað sæti að góðu. Enski boltinn 19. maí 2024 14:30
Klopp kvaddi með sigri Jürgen Klopp og lærisveinar hans í Liverpool unnu 2-0 sigur er liðið tók á móti Wolves í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Fótbolti 19. maí 2024 14:30
Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Gærdagurinn var sannarlega góður fyrir Emmu Hayes, fráfarandi knattspyrnustjóra Chelsea. Hún missti þó af því að fá sér í glas með sjálfum Sir Alex Ferguson. Enski boltinn 19. maí 2024 13:00
Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, telur að eftirmaður sinn, Arne Slot, muni gera góða hluti hjá félaginu. Enski boltinn 19. maí 2024 11:30
Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að liðið sé í betri stöðu en fyrir ári síðan. Enski boltinn 19. maí 2024 10:30
Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur samþykkt að greiða 29 milljónir punda fyrir Estevao Willian frá Palmeiras. Fótbolti 19. maí 2024 08:00
Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Félögum Jóns Daða Böðvarssonar í Bolton mistókst í dag að vinna sér inn sæti í ensku B-deildinni í knattspyrnu er liðið mátti þola 2-0 tap gegn Oxford United á Wembley. Enski boltinn 18. maí 2024 17:17
Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Chelsea tryggði sér enska meistaratitilinn fimmta árið í röð með stórsigri á Manchester United, 0-6, á Old Trafford í dag. Enski boltinn 18. maí 2024 16:08
De Zerbi hættir hjá Brighton Roberto De Zerbi yfirgefur Brighton eftir tímabilið. Hann stýrir liðinu í síðasta sinn gegn Manchester United í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Enski boltinn 18. maí 2024 14:54
Foden valinn bestur á Englandi Phil Foden hjá Manchester City var valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 18. maí 2024 14:30
Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Mikel Arteta og strákarnir hans í Arsenal þurfa að treysta á hjálp frá West Ham United í lokaumferðinni á morgun til að verða Englandsmeistarar. Enski boltinn 18. maí 2024 12:00
Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Eins og við sögðum frá fyrr í dag mun íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta. Jóhann Berg Guðmundsson leika sinn síðasta leik fyrir Burnley á morgun. Jóhann Berg er á förum frá félaginu sem hann hefur varið tíma sínum hjá undanfarin átta ár og auðsjáanlegt í viðtali, sem hefur nú birst á samfélagsmiðlareikningum Burnley, hversu mikils virði þessi tími hefur verið fyrir Jóhann Berg. Enski boltinn 18. maí 2024 11:22
Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Jóhann Berg Guðmundsson yfirgefur Burnley þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar. Enski boltinn 18. maí 2024 10:20
Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Jürgen Klopp, fráfarandi knattspyrnustjóri Liverpool, segir að hann myndi kjósa með tillögu Wolves um að hætta notkun myndbandsdómgæslu í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 17. maí 2024 23:00
Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Southampton tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik gegn Leeds um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er liðið vann 3-1 sigur gegn WBA. Fótbolti 17. maí 2024 20:56
Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Liverpool mun ekki bjóða Thiago og Joel Matip samningsframlengingu að tímabilinu loknu. Enski boltinn 17. maí 2024 16:30
Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Hollendingurinn Arne Slot staðfesti í dag að hann myndi taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Liverpool af Þjóðverjanum Jurgen Klopp sem lætur af störfum eftir lokaumferð deildarinnar á sunnudaginn kemur. Enski boltinn 17. maí 2024 15:47
Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Richard Masters, framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar mun vera viðstaddur leik Arsenal og Everton á Emirates leikvanginum í Lundúnum í komandi lokaumferð deildarinnar þar sem að baráttan um Englandsmeistaratitilinn ræðst. Það gerir Masters þrátt fyrir að líklegra þyki að Englandsmeistaratitillinn verði afhentur í Manchesterborg. Enski boltinn 17. maí 2024 15:30
Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 James Maddison er ekki á jólakortalista Jürgens Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool. Þjóðverjinn hefur ekki enn fyrirgefið honum atvik fyrir fimm árum. Enski boltinn 17. maí 2024 08:00
Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Leeds United er komið í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 4-0 sigur á Norwich City í síðari leik liðanna í undanúrslitum umspilsins. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli en í kvöld var aldrei spurning um hvort liðið væri á leið á Wembley. Enski boltinn 16. maí 2024 21:05
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn