Ísland í dag - Solla slær í gegn með vinsælasta baunaréttinum í Krýsuvík
Hinn margverðlaunaði heilsukokkur Sólveig Eiríksdóttir er enn og aftur að slá í gegn en nú sem kokkur á meðferðarheimilinu Krýsuvík þar sem hún eldar bæði sína frægu grænmetis og vegan rétti og svo einnig dýrindis fisk og kjötrétti. En Solla hefur sérhæft sig í dásamlega góðum grænmetisréttum og þar eru til dæmis baunaréttir eins og eru svo vinsælir í Blue Zone löndunum svokölluðu þar sem fólk verður hundrað ára gamalt. Og Solla er einnig með námskeið sem hún kallar Meira grænt ásamt dóttur sinni Hildi sem er með BS í næringarfræði. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti Sollu í eldhúsið í Krýsuvík.