Saga systranna frá Lómatjörn

Systurnar þrjár frá Lómatjörn, þær Sigríður, Valgerður og Guðný Sverrisdætur, voru viðmælendur þáttarins „Um land allt“ á Stöð 2 í haust. Þáttinn má nú sjá í heild sinni hér á Vísi. Þær ólust upp á sveitabæ skammt frá Grenivík við utanverðan Eyjafjörð og lýsa þeirri erfiðu reynslu að missa móður sína þegar þær voru enn á barnsaldri. Allar völdust til forystu; ein varð oddviti, önnur alþingismaður og ráðherra, sú þriðja sveitarstjóri. „Við trúum því að við getum allt,“ sagði Valgerður og hló. Með eiginmönnum sínum fóru þær í kartöflurækt og loðdýraeldi og nú er það ferðaþjónustan. „Allir velkomnir til mín,“ sagði ráðherrann fyrrverandi.

12778
24:24

Vinsælt í flokknum Um land allt