Loðnuvertíðin hafin og mikið í húfi
Loðnuvertíðin er hafin en fyrsta loðnan veiddist í dag út af Austfjörðum og er stefnt að því að henni verði landað á Norðfirði á morgun. Þá héldu fimm skip á miðin í dag til loðnumælinga á vegum Hafrannsóknastofnunar en niðurstöðurnar ráða miklu um það hversu stór loðnukvótinn verður.