„Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. nóvember 2026 12:56 Íris Helga fylgdist með þegar brotaþoli, sambýliskonan og fjölskyldan báru vitni. Vísir Brotaþoli í máli Írisar Helgu Jónatanasdóttur, sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti, sagði hana hafa valdið sér og fjölskyldu sinni mikilli hræðslu og ótta. Sambýliskona hans brast í grát þegar hún lýsti meintu umsátri.
Annar dagur aðalmeðferðar í máli Írisar Helgu fer fram í dag. Dagurinn hófst með framburði karlmanns sem er ákærður ásamt Írisi Helgu. Hann játaði að hafa farið á heimili umrædds brotaþola og sambýliskonu hans og makað saur á hurðarhún. Sjá frétt að neðan. Brotaþoli, sem er einn þriggja manna sem Íris Helga er sökuð um brot gegn, sagðist hafa kynnst henni fyrst árið 2021 og þau átt í óformlegu sambandi. Það hafi síðan flosnað upp úr því ári síðar en hún svo sagst vera þunguð eftir hann. Íris sendi síðan skilaboð í febrúar þar sem hún sagðist hafa misst fóstrið. Nokkrum vikum síðar hafi þau hist í boði í heimabæ þeirra og farið saman í eftirpartý. Degi síðar heyrði hann frá sameiginlegri vinkonu að Íris hefði biðlað til fylgjenda sinna á Instagram að ræða ekki við manninn þar sem hún ætlaði að sækja um nálgunarbann. Þrátt fyrir þetta hafi Íris Helga ítrekað mætt heim til hans, reynt að komast inn og brotið vasa fyrir utan. Vegna þessa hafi hann fest kaup á öryggismyndavél. „Svo í lok febrúar kemur hún með poka sem segir að þetta sé krukka með fóstrinu okkar og lét mig hafa hana,“ sagði maðurinn. Þegar Íris var spurð út í krukkuna á fyrsta degi aðalmeðferðarinnar neitaði hún því að það hefði gerst. Íris tók einnig fram í gær að maðurinn hefði verið rekinn af fyrrverandi vinnustað sínum eftir að hann var sakaður um kynferðislega áreitni. Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar, spurði manninn út í starfslokin en hann svaraði ekki spurningunni beint. Eftir endurteknar spurningar um málið skarst dómarinn í leikinn en verjandinn sagði manninn ítrekað trufla spurningar verjanda. Fór svo að maðurinn var ekki spurður sérstaklega út í starfslokin. Sleit vinkonusambandinu Maðurinn lýsti því að fyrst um sinn hefði Íris Helga sent á sameiginlega vini að hann væri „klikkaður“. „Þegar fólk var ekki að svara henni og trúa þá komu falskir aðgangar. Svo komu Messenger-spjall og Tinder-aðgangskóðar.“ Það hafi aðeins aukist með vikum og mánuðum sem liðu og Íris hafi byrjað að senda á fjölskyldumeðlimi hans. Til að mynda sagði hann hana hafa sent skilaboð á son sinn. Einnig hafi Íris sent á sambýliskonu hans, sem er fyrrverandi vinkona hennar, sem er meðal brotaþola. Hún bar einnig vitni fyrir dómi. Þær hafi verið vinkonur en sagðist konan hafa slitið vinkonusambandinu. „Hún var að ljúga endalaust um barnsföður sinn, hitta einhvern mann í Noregi og aðra menn. Hún var að segja að allir væru að berja sig,“ sagði sambýliskonan meðal annars. Brast í grát þegar hún lýsti atburðum Sambýliskonan sagðist hafa fengið skilaboð um að hún væri ömurleg vinkona en það hafi byrjað eftir að hún hóf samband við brotaþola. „Svo byrjuðu að hrannast inn skilaboð, símhringingar, hún kastaði ekki í húsið okkar, rispar bíl og er að keyra kringum og labba í kringum húsið okkar,“ sagði sambýliskonan. „Þetta var allt mjög mikið í hótunum. Hún sagðist ætla að drepa hundinn okkar og bræður mínir voru alltaf að fá skilaboð að þeir ættu að kveðja mig og alls konar.“ Þá virðist sem málið sem varðar saurinn á hurðarhún nýja heimilisins þeirra sem hafi snert hana sérstaklega. Hún lýsti því að í seinna skiptið sem maðurinn mætti til að maka saur á hurðarhúninn hafi hún verið ein heima um miðja nótt. Hún hafi fyllst skelfingu þegar hún sá mann fyrir utan heima hjá sér og hafi síðan átt erfitt með svefn þegar hún sé ein heima. „Við fórum að tala um hvort við þyrftum að fara að skipta um vinnu og hætta að vera á vaktavinnukerfi til þess að vera heima allan sólarhringinn,“ sagði maðurinn aðspurður um afleiðingar málsins. Málið vakti sérstaklega mikinn óhug hjá sambýliskonunni og sagðist hún enn upplifa mikinn kvíða. „Maður hugsar bara hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira.“ Gerðu sátt í meiðyrðamáli Meiðyrðamál sem Íris höfðaði á hendur parinu hefur einnig verið til umræðu en það var í kjölfar þess að konan birti færslu á Facebook þar sem hún lýsti sinni sögu. Málið endaði með dómsátt og sagði sambýliskonan að hún hefði skrifaði undir þá sátt einungis þar sem hún þurfti samt sem áður ekki að eyða færslunni. Niðurstaða sáttarinnar var samt sem áður sú að ekkert þeirra mætti ræða málið opinberlega. Íris Helga ræddi einnig meiðyrðamálið í skýrslutöku sinni í gær og þar sakaði hún parið um að hafa rofið dómssáttina. Geti ekki farið út með barnabörnin Foreldrar sambýliskonunnar komu einnig fyrir dóm sem vitni. Þau sögðust einnig hafa fengið fjölda skilaboða frá fölskum aðgöngum um dóttur sína og sambýlismann hennar. Málið hafði mikil áhrif á fjölskylduna í heild sinni. Móðirin nefndi til að mynda að hún mætti ekki fara með barnabörnin út að ganga vegna ótta foreldranna og faðirinn sagði málið hafa valdið honum hræðslu og kvíða fyrir hönd dótturinnar og tengdasonar. Keyrði fram hjá heimili Írisar Bróðir sambýliskonunnar bar einnig vitni. Hann sagðist hafa fengið nokkur skilaboð frá konu sem hann teldi hafa verið Írisi Helgu. „Ég hef orðið fyrir áreiti á Facebook-prófíl þar sem send voru óviðeigandi skilaboð á mig,“ sagði hann. Um ljót skilaboð hafi verið að ræða þar sem systir hans, sambýliskonan, hafi verið kölluð ljótum orðum og maður hennar einnig. Bróðirinn gekkst við því að hafa haft beint samband við Írisi Helgu og játaði því að hafa svarað skilaboðum frá fölskum aðgangi. „Íris, ég held þú vitir ekki hvernig mann ég geymi og ég held þú verðir að hætta áður en ég tek málið í mínar hendur,“ stóð í skilaboðunum. Íris hafi einnig ákært hann fyrir umsáturseinelti og talaði sjálf um það í sinni skýrslutöku að bróðirinn hefði setið fyrir henni fyrir utan heimili hennar og meinað henni aðgang úr innkeyrslunni. Það mál var fellt niður vegna skorts á sönnunargögnum. Bróðirinn neitaði öllum þeim ásökunum en tók fram að hann hefði einu sinni keyrt fram hjá húsi Írisar Helgu þegar hann var á leið heim til frænda síns sem bjó í næstu götu. Málið hafi haft mikil áhrif á hann og alla fjölskylduna.
Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Dómsmál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Erlent Fleiri fréttir „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Sjá meira