Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar 2. nóvember 2026 12:45 Mikið er rætt um gervigreind þessi misserin og möguleg áhrif hennar á efnahag og atvinnulíf. Hver fréttin á fætur annarri fjallar um hraðar framfarir gervigreindarinnar og hefur um helmingur íslenskra fyrirtækja nú þegar tekið gervigreind í notkun. Á sama tíma kalla loftslagsbreytingar og aðgerðir til að stemma stigu við þeim á breytta framleiðsluhætti og nýja nálgun við verðmætasköpun. Flest fyrirtæki hafa orðið vör við auknar kröfur í umhverfismálum, hvort sem þær koma frá íslenskum stjórnvöldum, frá Evrópusambandinu, neytendum eða í gegnum þrýsting frá öðrum fyrirtækjum sem versla við þau og leita leiða til að draga úr umhverfisáhrifum í starfsemi sinni og í allri framleiðslukeðjunni. En á meðan mikið er rætt um tækniframfarir, samkeppnishæfni fyrirtækja og græna atvinnuuppbyggingu er minna rætt um hvaða þýðingu loftslags- og tæknibreytingar hafa fyrir launafólk. Hvaða áhrif hafa loftslags- og tæknibreytingar á launafólk? Þegar rætt er um tvíþætt umskipti er átt við samspil loftslags- og tæknibreytinga og þau umskipti sem þær hafa í för með sér fyrir samfélag og efnahag. Þær hafa áhrif á hvernig við lifum, störfum, framleiðum og sköpum verðmæti og munu hafa áhrif á fjölda starfa, samsetningu þeirra og innihald. Þær móta einnig ákvarðanir stjórnvalda og rekstur fyrirtækja og hafa þar bein áhrif á stöðu launafólks, kjör, starfsöryggi, afkomu og lífsgæði. Þessar breytingar snerta okkur öll, með einum eða öðrum hætti. Þær munu hafa áhrif á mig og þig. Áhrifin verða þó ekki þau sömu fyrir alla. Starfsfólk í minni bæjarfélögum á landsbyggðinni hefur færri atvinnutækifæri ef störfum fækkar, t.d. vegna aukinnar sjálfvirkni eða notkunar gervigreindar, og getur reynst erfitt að finna nýja vinnu í heimabyggð. Þurfa þau sem missa vinnuna þá að flytja búferlum til að tryggja afkomu sína og fjölskyldu sinnar? Og hvað með verkafólk sem býr yfir áralangri starfsreynslu en hefur litla formlega menntun? Hefur það raunveruleg tækifæri til að afla sér þeirrar færni sem þarf til að takast á við breyttar aðstæður á vinnumarkaði? Umskiptin geta einnig haft mikil áhrif á sérfræðinga, stjórnendur, skrifstofufólk og annað sérmenntað starfsfólk. Gervigreind getur nú sinnt flóknum verkefnum og breytt því hvernig störf eru unnin, jafnvel þannig að verkefni eða hluti þeirra flytjist frá fólki yfir til tækninnar. Áhrif tvíþættra umskipta geta einnig verið mismunandi eftir kyni, stétt og stöðu fólks á vinnumarkaði. Konur eru fjölmennar í ýmsum skrifstofu-, þjónustu- og umönnunarstörfum þar sem tæknibreytingar geta breytt verkefnum og vinnulagi. Karlar eru hins vegar fjölmennir í ýmsum greinum sem tengjast mannvirkjagerð, orku og iðnaði, þar sem orkuskipti og græn atvinnuuppbygging geta haft mikil áhrif. Þá starfar stór hópur innflytjenda í atvinnugreinum á borð við ferðaþjónustu, byggingariðnað, sjávarútveg og þjónustu, þar sem starfsöryggi og aðgengi að nýjum tækifærum geta verið mismunandi. Breytingarnar snúast ekki aðeins um hvaða störf hverfa og hvaða störf verða til í staðinn. Þær snúast líka um hvernig störfin breytast, hvaða færni verður eftirsótt og hvort launafólk fái tækifæri til að þróa þekkingu sína og hæfni í takt við nýjar aðstæður. Þær snúast líka um hvernig tæknin verður nýtt. Mun hún auðvelda okkur að sinna störfum okkar og bæta vinnuaðstæður eða leiða til aukins vinnuálags og meira eftirlits? Mun aukin framleiðni skila sér í betri kjörum og styttri vinnutíma eða fyrst og fremst í auknum ávinningi fyrirtækja og eigenda þeirra? Og ef störf hverfa, hvaða tækifæri hafa þau sem missa vinnuna til að finna ný störf og tryggja áfram afkomu sína? Af hverju þurfum við að bregðast við? En þurfum við virkilega að hafa áhyggjur? Við búum í landi þar sem ríkir mikil velsæld, atvinnuleysi hefur að jafnaði verið lítið og aðgengi að endurnýjanlegri orku er gott. Við höfum einnig atvinnuleysistryggingar og velferðarkerfi sem grípur okkur ef við lendum í áföllum. Það eru vissulega margir þættir sem spila með okkur. Við getum hins vegar ekki gengið út frá því að þau kerfi sem við höfum byggt upp fram að þessu, við allt aðrar aðstæður, dugi okkur nú. Umfang, hraði og samspil þessara breytinga er slíkt að þau kerfi sem við höfum skapað gætu verið ófullnægjandi til að tryggja atvinnuöryggi og afkomu. Það er því ekki nóg að bregðast við eftir á. Við þurfum að undirbúa okkur áður en vandinn verður að veruleika og móta þróunina frá byrjun. Framtíðin ræðst af ákvörðunum okkar í dag Höfum eitt á hreinu. Umskiptin fela ekki aðeins í sér áskoranir heldur einnig mikil tækifæri. Þau geta skapað ný verðmæti og tækifæri og aukið lífsgæði launafólks, skilað aukinni framleiðni, bættum kjörum og styttri vinnutíma. Orkuskipti og græn atvinnuuppbygging geta skapað fjölbreytt störf, dregið úr umhverfisáhrifum, aukið verðmætasköpun og bætt lífsgæði. Það er hins vegar ekki sjálfgefið að þessi sviðsmynd verði að veruleika, að breytingarnar hafi jákvæð áhrif og að ávinningurinn skili sér til launafólks en ekki einungis stórfyrirtækja. Það ræðst af ákvörðunum okkar í dag hvort breytingarnar skili sér í góðum störfum og bættum lífsgæðum launafólks eða hvort ávinningurinn safnist fyrst og fremst á fárra hendur hjá stórfyrirtækjum og fjármagnseigendum. Það ræðst líka af því hvort fólk fái tækifæri til að þróa færni sína, finna sér nýjan farveg á vinnumarkaði ef starf þess hverfur og taka þátt í að móta breytingarnar sem hafa áhrif á líf þess. Um þetta snúast réttlát umskipti, að sjá breytingarnar fyrir, hafa áhrif á hvernig þær verða og tryggja að ávinningurinn af þeim skili sér til launafólks og samfélagsins alls. Ísland hefur góðar forsendur til að nýta sérþekkingu sína á sviði endurnýjanlegrar orku og grænna lausna til að skapa ný verðmæti og fjölbreytt, vel launuð störf. En það krefst markvissrar stefnumótunar, langtímahugsunar og samstarfs stjórnvalda, atvinnurekenda og launafólks. Við þurfum að greina hvar breytinganna er að vænta, undirbúa fólk og byggðarlög fyrir þær og tryggja að ákvarðanir séu teknar með hagsmuni launafólks að leiðarljósi. Á nýafstöðnu þingi Alþýðusambands Íslands komu fulltrúar launafólks saman og mótuðu stefnu um góð störf, réttindi og öryggi á breyttum vinnumarkaði2. Þar var lögð áhersla á að launafólk þurfi að vera virkur þátttakandi í mótun framtíðarinnar. Það sjónarmið þarf að endurspeglast í stefnumótun og ákvörðunum stjórnvalda. Launafólk á ekki aðeins að þurfa að aðlagast breytingunum eftir á. Það þarf að eiga sæti við borðið þegar ákvarðanir eru teknar sem móta þróunina. Höfundur er sérfræðingur í umhverfis- og neytendamálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein ASÍ Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun