Körfubolti

Tryggvi hafði betur gegn Rubio

Valur Páll Eiríksson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan dag,
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan dag, Getty/Dennis Agyeman

Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason átti frábæran leik í naumum sigri Bilbao á Joventut í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Leikur dagsins var spennandi og réðist ekki fyrr en á lokakaflanum. Bilbao hafði betur 81-78 þar sem Tryggvi var næst stigahæstur í liði Bilbao gegn stórstjörnunni Ricky Rubio og félögum.

Tryggvi Snær skoraði 13 stig, tók átta fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Stigahæstur Bilbainga var Kaninn Darrun Hilliard með 17 stig.

Bilbao er eftir sigurinn með átta stig eftir sex leiki í fimmta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×