Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 30. október 2026 06:53 Ekki liggur fyrir hver getur leitt nýja ríkisstjórn í Ísrael að loknum kosningum. Vísir/EPA Talningu atkvæða eftir þingkosningarnar í Ísrael er lokið. Niðurstöður sýna að Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels og bandalagsflokkar hans hlutu 53 sæti og Gadi Eisenkot, helsti keppinautur hans, hlaut, ásamt stuðningsflokkum, 48 þingsæti.
Þá hlutu arabaflokkarnir svonefndu 19 þingsæti og stórjuku fylgi sitt. Þannig er ljóst að hvorki bandalag Netanyahu né Eisenkot-liðar hefðu unnið meirihluta á þinginu, sem telur 120 sæti. Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvort þurfa stuðning stjórnarandstöðuflokks eða flokka eða starfa með flokkum ísraelskra araba, sem er hæpið. Stjórnarandstaðan er í sömu stöðu, þar sem hvorug fylking fékk nægilega mörg þingsæti til að mynda meirihluta. Fyrir kjörtímabilið sem er nú að ljúka þurftu Ísraelar að halda fimm kosningar á fjórum árum vegna langavarandi þráteflis. Til að mynda ríkisstjórn þarf að minnsta kosti 61 þingmann af þeim 120 sem eru á ísraelska þinginu, Knesset. Í gær fullyrti Netanyahu að arabaflokkarnir hefðu haft rangt við og kosningasvindl með aðkomu stjórnvalda í Katar og Tyrklandi hefði leitt til þess mikla fylgis sem þeir fengu. Talsmenn beggja arabísku flokkanna hafa vísað þeim ásökunum á bug. Fjallað var um það á Vísi í gær að formaður yfirkjörstjórnar Ísrael hafnaði ásökunum um að umfangsmikið kosningasvindl hafi átt sér stað í kosningunum á þriðjudaginn. Hann segir ásakanirnar grunnlausar og að ekkert bendi til svindls eða þess að kerfisbundin frávik hafi átt sér stað.
Ísrael Kosningar í Ísrael Tengdar fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Plötusnúðurinn Mellí Þorkelsdóttir, eða Mellí 777, hefur hætt við að hita upp fyrir bandarísku tónlistarkonuna Azealiu Banks í Austurbæjarbíói þann 3. desember. Í kjölfar úrslita forsetakosninganna í Brasilíu síðustu helgi ákvað Mellí að taka afstöðu gegn síónískum skoðunum Banks og með Palestínu og hætta við að hita upp fyrir hana. 29. október 2026 15:15 Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Kjörstjórn Ísraels hóf talningu utankjörfundaratkvæða í nótt. Gert er ráð fyrir að talningin standi fram á fimmtudagskvöld, en telja þarf um 500.000 atkvæði frá hermönnum og stjórnarerindrekum. Í frétt Guardian segir að ekki sé búist við því að niðurstöður talningar breyti niðurstöðunum. 29. október 2026 06:29 Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrverandi forsetafrú, er stödd á Acadia-strönd í Ísrael og birti þaðan mynd af kakkalökkum. Hún veltir fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort kakkalakkarnir valdi fólki skaða því þeir hafi tekið á móti henni með vængina útbreidda. 28. október 2026 09:55 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Plötusnúðurinn Mellí Þorkelsdóttir, eða Mellí 777, hefur hætt við að hita upp fyrir bandarísku tónlistarkonuna Azealiu Banks í Austurbæjarbíói þann 3. desember. Í kjölfar úrslita forsetakosninganna í Brasilíu síðustu helgi ákvað Mellí að taka afstöðu gegn síónískum skoðunum Banks og með Palestínu og hætta við að hita upp fyrir hana. 29. október 2026 15:15
Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Kjörstjórn Ísraels hóf talningu utankjörfundaratkvæða í nótt. Gert er ráð fyrir að talningin standi fram á fimmtudagskvöld, en telja þarf um 500.000 atkvæði frá hermönnum og stjórnarerindrekum. Í frétt Guardian segir að ekki sé búist við því að niðurstöður talningar breyti niðurstöðunum. 29. október 2026 06:29
Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrverandi forsetafrú, er stödd á Acadia-strönd í Ísrael og birti þaðan mynd af kakkalökkum. Hún veltir fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort kakkalakkarnir valdi fólki skaða því þeir hafi tekið á móti henni með vængina útbreidda. 28. október 2026 09:55