Viðskipti innlent

Vaxta­munur jókst og hagnaður árs­fjórðungsins 7,3 milljarðar

Eiður Þór Árnason skrifar
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka.
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Hreinar vaxtatekjur námu 15,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 og hækkuðu um 2,6 milljarða samanborið við tímabilið í fyrra.

Vaxtamunur, það er mismunurinn milli þeirra vaxta sem bankinn rukkar vegna útlána og þeirra sem hann greiðir út vegna innlána, jókst milli ára og fór úr 3,1 prósenti í 3,5 prósent á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallar.

Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 19,3 milljarða króna á sama tímabili 2025. 

Hreinar þóknanatekjur, sem ná yfir ýmis gjöld sem rukkuð eru fyrir þjónustu bankans, voru 3,3 milljarðar króna á ársfjórðungnum samanborið við 3,2 milljarða á sama tímabili í fyrra.

Eigið fé nam 215,4 milljörðum króna í lok þriðja ársfjórðungs og minnkar lítillega en það var 225,4 milljarðar í lok árs 2025. Arðsemi eigin fjár á þriðja ársfjórðungi var 13,6 prósent á ársgrundvelli samanborið við 12,2 prósent á þriðja ársfjórðungi 2025.

Haft er eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, að rekstur bankans hafi „áfram þróast vel í samræmi við stefnu hans.“ Hann gerir athugasemdir við fyrirætlanir stórnvalda um aukna skattheimtu. 

„Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að bankaskattur hækki úr 0,145% í 0,254%, sem jafngildir um 75% hækkun. Því hefur verið haldið fram að lækkun bankaskattsins árið 2020 hafi ekki skilað sér til viðskiptavina, en gögnin benda til annars. Síðan þá hefur vaxtamunur gagnvart heimilum dregist saman þrátt fyrir mikla hækkun stýrivaxta og þjónustugjöld hafa lækkað að raunvirði. Sérstakir skattar á íslenska banka eru nú þegar meira en fimmfalt hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu. Það veikir samkeppnisstöðu íslenska fjármálakerfisins nú þegar og fyrirhuguð hækkun myndi draga enn frekar úr samkeppnishæfni þess,“ segir Jón í tilkynningu bankans. 

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×