Innlent

Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun

Árni Sæberg skrifar
Daði Már Kristófersson er fjármálaráðherra- og efnahagsráðherra. 
Daði Már Kristófersson er fjármálaráðherra- og efnahagsráðherra.  Vísir/Ívar Fannar

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ákveðið að setja á fót nýja ráðuneytisstofnun um stafræna þjónustu og upplýsingatækni undir heitinu Stafrænt Ísland.

Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að uppbygging ráðuneytisstofnunarinnar nýju sé liður í innleiðingu stefnu um opinbera þjónustu og styðji við markmið um betri, aðgengilegri og hagkvæmari þjónustu, sem mæti þörfum fólks og atvinnulífs. Ný ráðuneytisstofnun taki til starfa 1. janúar næstkomandi.

Ráðuneytisstofnun er sérstök starfseining ráðuneytis sem er verkefnalega og stjórnunarlega aðgreind frá aðalskrifstofu ráðuneytis en gegnir þó ekki sjálfstæðum stjórnsýsluverkefnum.

Verkefnastofa verður að ráðuneytisstofnun

Í tilkynningu segir að verkefni verkefnastofu um Stafrænt Ísland verði flutt til nýju ráðuneytisstofnunarinnar við upphaf starfseminnar. Þá sé stefnt að því að upplýsingatækniverkefni Umbru, rekstrarfélags Stjórnarráðsins, verði flutt þangað á fyrstu mánuðum ársins 2027. Samhliða þessum breytingum verði öðrum verkefnum Umbru fundinn farvegur innan Stjórnarráðsins og starfsemi Umbru í núverandi mynd lögð niður.

Ný og öflug ráðuneytisstofnun fái þannig styrkan grundvöll til að leiða áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu og styðja opinbera aðila við að nýta nýja tækni til að bæta þjónustu og rekstur. Með breytingunni verði byggt á þeirri þekkingu og reynslu sem hafi orðið til við uppbyggingu Íslands.is.

Innleiða gervigreind

Aukin áhersla verði lögð á gagnamál hins opinbera og upplýsingatækni, samhliða áframhaldandi uppbyggingu þjónustu á Íslandi.is. Markmiðið sé að efla getu ríkisins til að nýta gögn og gervigreind með markvissum hætti og skila ávinningi til samfélagsins með betri þjónustu og aukinni skilvirkni.

Þessi áhersla falli vel að tillögum starfshóps um málefni gervigreindar, sem kynntar hafi verið fyrr í október. Þar sé markviss innleiðing gervigreindar hjá hinu opinbera eitt þriggja forgangsverkefna. Starfshópurinn leggi meðal annars áherslu á sameiningu rekstrar upplýsingatækni ríkisins og eflingu gagnamála til að styðja við innleiðingu gervigreindar hjá stofnunum og ráðuneytum.

Starf framkvæmdastjóra Stafræns Íslands verði auglýst í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×