Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir og Þorkell Heiðarsson skrifa 28. október 2026 14:03 Í gær var fimmtíu starfsmönnum vísað á dyr hjá Reykjavíkurborg. Við þetta tækifæri sagði yfirmaður þeirra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, að með þessari ákvörðun séu þau „bara að minnka þetta kerfi“, að „pólitíkin tekur þarna ákvörðun um að setja þetta viðmið um 7,5 prósent og svo fólum við sviðsstjórum að útfæra á sínum sviðum hvernig þeir næðu þessu markmiði.“ Borgarstjóri hefur lagt áherslu á nauðsyn þess að taka til í rekstri Reykjavíkurborgar og að hún hafi verið kosin til þeirra verka. En það er grundvallarmunur á ábyrgri hagræðingu og því að láta starfsfólk bera allan þungann af síendurteknum niðurskurði eins og nú er gert. Grundvallarmunur á hagræðingu og niðurskurði Það er auðvelt að tala um hagræðingu þegar það er einhver annar sem missir vinnuna. Þegar lífsafkoma fólks er í húfi verða kröfur um vandaðan undirbúning, skýran rökstuðning og manneskjulega framkvæmd að vega þyngra en almenn fyrirheit um sparnað. Borgarstjóri getur ekki látið nægja að vísa til erfiðrar fjárhagsstöðu án þess að sýna fram á að ákvarðanir um fjöldauppsagnir séu nauðsynlegar og byggðar á traustum forsendum og leggja fram gögn því til stuðnings. Viska og FÍN kalla eftir því að borgarstjórn geri ítarlega grein fyrir forsendum þeirra ákvarðana sem hún hefur tekið varðandi fjöldauppsagnir starfsfólks. Af hverju fá sum að snúa aftur til starfa? Það vekur sérstaka athygli að Reykjavíkurborg virðist þegar hafa boðið einstaklingum sem áður fengu uppsagnarbréf að snúa aftur til starfa, sumum þó tímabundið. Það kallar á áleitnar spurningar um undirbúning og forsendur uppsagnanna. Var búið að meta hvaða störf borgin gæti verið án? Hvaða þekking hefur tapast, hvaða þjónusta hverfur og hver mun sinna verkefnum starfsfólksins sem sagt hefur verið upp? Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni borgarstjórnar. Það er óásættanlegt að segja fólki upp, sjá hvernig til tekst og kalla það síðan aftur til starfa þegar þörfin kemur í ljós. Viska og FÍN kalla eftir því að borgarstjórn birti greiningu á þeim verkefnum sem unnin voru af starfsfólki sem sagt hefur verið upp, sem og hvaða skerðing hefur orðið á þjónustu borgarinnar í kjölfarið. Við krefjumst greiningar á ætluðum sparnaði Borgarstjóri hefur talað um háar fjárhæðir í ætluðum sparnaði en starfsfólk og borgarbúar eiga rétt á að sjá heildarmyndina. Hvað sparast í raun þegar tekið hefur verið tillit til uppsagnarkostnaðar, endurráðninga og útvistaðrar þjónustu? Verkefnin hverfa ekki þótt fólkinu sem sinnti þeim sé sagt upp. Þau færast einfaldlega á færri hendur eða eru keypt annars staðar frá. Hagræðing er aðeins árangursrík ef hugsun býr að baki henni. Ekki nægir að hún líti pólítiskt vel út á blaði. Viska og FÍN kalla eftir því að borgarstjórn birti heildstæða greiningu á raunverulegum sparnaði þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til. Traust rofið milli borgarstjóra og starfsfólks Hildur Björnsdóttir er ekki aðeins kjörinn fulltrúi. Hún er jafnframt framkvæmdastjóri stærsta vinnuveitanda landsins og ber í því hlutverki sérstaka ábyrgð á velferð og líðan starfsfólks borgarinnar. Þær uppsagnir sem farið hafa fram undanfarna mánuði einkennast öðru fremur af fullkomnu virðingarleysi við starfsfólk og hörku í framkvæmd. Þegar hver uppsagnarhrinan rekur aðra og óvissa um framtíð starfa er viðvarandi rofnar traust milli borgarstjóra og starfsfólks hennar. Viska og FÍN gera sér grein fyrir því að góð fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er samofin hagsæld borgarbúa. Við krefjumst þess hins vegar að borgin vandi undirbúning, virði réttindi starfsfólks og komi fram við það af virðingu. Enn fremur að borgin upplýsi borgarbúa um raunverulegan sparnað og áhrif fjöldauppsagna á þjónustu við íbúa. Þessu hefur ekki verið svarað. Reykjavíkurborg verður sterkari með ábyrgri stjórnun, vönduðum ákvörðunum og starfsfólki sem getur treyst yfirmanni sínum, ekki illa ígrunduðum og flötum niðurskurði. Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki skiptimynt í hagræðingaráformum borgarstjórnar. Opinberir starfsmenn búa við lakari launakjör en starfsfólk á almennum markaði. Í áraraðir hefur þessi launamunur verið réttlættur með því að vísa í starfsöryggi á opinberum markaði. Þessi tilraunastarfsemi borgarstjórnar staðfestir að allt tal um starfsöryggi opinberra starfsmanna er hjóm eitt. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður Visku – stéttarfélags Þorkell Heiðarsson formaður FÍN Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun