Innlent

Þyrlan kölluð til vegna gruns um að maður hafi fallið í Ölfus­á

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að beiðni lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar, lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir sinna nú aðgerð við Ölfusá vegna gruns um að maður hafi fallið í ána.

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að þyrla Gæslunnar hafi verið kölluð til að beiðni Lögreglunnar á Suðurlandi. Þeim hafi borist beiðnin um tuttugu mínútum fyrir klukkan fimm.

Þorsteinn Matthías Kristinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að lögreglu hafi borist ábending frá vegfaranda á svæðinu um að maður hafi fallið í Ölfusá. Lögregla sé að kanna málið. Hann segir svæðið sem um ræðir sé nærri Ölfusárbrúnni á Selfossi. 



Fréttin verður uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×