Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar 27. október 2026 13:31 Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir. Skoska leiðin sem fyrirmynd Fyrirmyndin er skoska leiðin, sem hafði verið kynnt hér á landi sem lausn á háum kostnaði íbúa landsbyggðarinnar við innanlandsflug til að sækja miðlæga þjónustu. Í Skotlandi fá íbúar á tilteknum afskekktum svæðum 50% afslátt af grunnfargjaldi á þeim flugleiðum sem kerfið nær til, án takmarkana á fjölda ferða. Hér á landi var ákveðið að veita 40% afslátt af heildarfargjaldi, en aðeins fyrir sex flugleggi á ári. Ríkisstjórnin hefur nú kynnt að föst niðurgreiðsla komi í stað 40% afsláttar. Upphaflega var kynnt 7.000 króna niðurgreiðsla á fluglegg, en eftir hörð viðbrögð virðist vera til skoðunar að hækka hana í 9.000 krónur. Með fastri krónutölu fjarlægjumst við skosku fyrirmyndina. Stuðningurinn rýrnar hlutfallslega þegar fargjöld hækka og heimili á landsbyggðinni bera allan kostnað af frekari hækkunum. Jafnvel 9.000 króna niðurgreiðsla verður minni en núverandi stuðningur þegar fargjald fer yfir 22.500 krónur á fluglegg. Bent hefur verið á að panta eigi flug með lengri fyrirvara, en fólk ræður ekki alltaf hvenær það þarf að ferðast. Rannsóknir, aðgerðir, veikindi og áföll geta kallað á flug með skömmum fyrirvara. Sömu skattar en ólíkt aðgengi að þjónustu Íbúar landsbyggðarinnar greiða jafnháa skatta og aðrir landsmenn. Lög um heilbrigðisþjónustu setja jafnframt fram það markmið að allir eigi kost á bestu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita. Í byggðaáætlun stjórnvalda er einnig lögð áhersla á að jafna aðgengi að þjónustu og efla byggðir um land allt. Uppbygging ríkisins á þjónustu á landsbyggðinni er hins vegar ekki nægileg og íbúar þurfa því áfram að ferðast langar leiðir til að sækja víðtæka þjónustu á suðvesturhornið. Aðgengi að nauðsynlegri þjónustu á því ekki að ráðast af búsetu eða fjárhag. Mikilvægt er því að styrkja Loftbrúna með því að hafa skosku leiðina áfram sem fyrirmynd. Boðuð breyting yfir í fasta krónutölu á hvern fluglegg er skref aftur á bak. Höfundur er formaður byggðaráðs Múlaþings og varaþingmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Harpa Svavarsdóttir Byggðamál Flug Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Sjá meira
Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir. Skoska leiðin sem fyrirmynd Fyrirmyndin er skoska leiðin, sem hafði verið kynnt hér á landi sem lausn á háum kostnaði íbúa landsbyggðarinnar við innanlandsflug til að sækja miðlæga þjónustu. Í Skotlandi fá íbúar á tilteknum afskekktum svæðum 50% afslátt af grunnfargjaldi á þeim flugleiðum sem kerfið nær til, án takmarkana á fjölda ferða. Hér á landi var ákveðið að veita 40% afslátt af heildarfargjaldi, en aðeins fyrir sex flugleggi á ári. Ríkisstjórnin hefur nú kynnt að föst niðurgreiðsla komi í stað 40% afsláttar. Upphaflega var kynnt 7.000 króna niðurgreiðsla á fluglegg, en eftir hörð viðbrögð virðist vera til skoðunar að hækka hana í 9.000 krónur. Með fastri krónutölu fjarlægjumst við skosku fyrirmyndina. Stuðningurinn rýrnar hlutfallslega þegar fargjöld hækka og heimili á landsbyggðinni bera allan kostnað af frekari hækkunum. Jafnvel 9.000 króna niðurgreiðsla verður minni en núverandi stuðningur þegar fargjald fer yfir 22.500 krónur á fluglegg. Bent hefur verið á að panta eigi flug með lengri fyrirvara, en fólk ræður ekki alltaf hvenær það þarf að ferðast. Rannsóknir, aðgerðir, veikindi og áföll geta kallað á flug með skömmum fyrirvara. Sömu skattar en ólíkt aðgengi að þjónustu Íbúar landsbyggðarinnar greiða jafnháa skatta og aðrir landsmenn. Lög um heilbrigðisþjónustu setja jafnframt fram það markmið að allir eigi kost á bestu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita. Í byggðaáætlun stjórnvalda er einnig lögð áhersla á að jafna aðgengi að þjónustu og efla byggðir um land allt. Uppbygging ríkisins á þjónustu á landsbyggðinni er hins vegar ekki nægileg og íbúar þurfa því áfram að ferðast langar leiðir til að sækja víðtæka þjónustu á suðvesturhornið. Aðgengi að nauðsynlegri þjónustu á því ekki að ráðast af búsetu eða fjárhag. Mikilvægt er því að styrkja Loftbrúna með því að hafa skosku leiðina áfram sem fyrirmynd. Boðuð breyting yfir í fasta krónutölu á hvern fluglegg er skref aftur á bak. Höfundur er formaður byggðaráðs Múlaþings og varaþingmaður.
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun