Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. október 2026 13:01 Lula da Silva ávarpar mannskara eftir sigur sinn í forsetakosningum. EPA/ISAAC FONTANA Kosningaúrslit í Brasilíu eru áfall fyrir Donald Trump Bandaríkjaforseta og þá eru úrslitin í Serbíu það einnig fyrir Vladimír Pútín Rússlandsforseta, að sögn stjórnmálafræðings.
Sitjandi forseti Brasilíu Lula Da Silva bar sigur úr býtum í seinni umferð forsetakosninga í landinu í gær, hann fékk 51,79 prósent atkvæða en andstæðingur hans Jair Bolsonaro fékk 48,21 prósent atkvæða. Þetta er í fyrsta sinn sem frambjóðandi ber sigur úr býtum eftir að hafa tapað fyrri umferð forsetakosninga sem fór fram 4. október. Í gær fóru einnig fram þingkosningar í Serbíu þar sem Alexander Vucic leiðtogi Serbíu til tólf ára og formaður Serbneska framfaraflokksins laut í lægra haldi gegn Mótmælahreyfingu námsmanna sem hlaut þingmeirihluta. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir úrslitin bæði í Brasilíu og Serbíu töluverð tíðindi. „Þetta hefur auðvitað mikla þýðingu fyrir þessi lönd hvort fyrir sig en að sínu leyti eru úrslitin í Brasilíu áfall fyrir Donald Trump og úrslitin í Serbíu áfall fyrir Vladimir Pútín, þannig að það er líka svona alþjóðapólitískur vinkill á þessu öllu saman.“ Stjórnmál í Brasilíu sveiflist milli tveggja mjög ólíkra stjórnmálaafla, harðrar vinstristefnu Lula Da Silva og þjóðernispopúlisma Jair Bolsonaro sem er sonur fyrrverandi forseta. Eiríkur segir ljóst að aukin kjörsókn í seinni umferð hafi skilað Da Silva sigrinum. Athygli hefur vakið að ekkert hefur heyrst frá Hvíta húsinu um niðurstöður kosninganna í Brasilíu. „Nei, nei, þeir voru auðvitað að vonast til þess, Donald Trump hefur vonast til þess að hans maður, Bolsonaro-feðgar, að að þeir snúi aftur sem svona stuðningsmenn Trump-stjórnarinnar og bandamaður þá í Rómönsku Ameríku. Það má ekki gleyma því að Brasilía er langstærsta og langmikilvægasta ríki í Suður-Ameríku. Það skiptir öllu máli fyrir stöðu Bandaríkjanna á svæðinu, hver er þar við völd. Þannig að þetta er auðvitað áfall fyrir Hvíta húsið sem að hafði alveg örugglega ráðgert að Bolsonaro-ættin sneri aftur.“ Á meðan hafi stjórn þjóðernispopúlista Alexander Vucic sem hallir eru undir Rússa beðið ósigur í Serbíu gegn stúdentahreyfingu sem Eiríkur segir stórmerkilega. Hreyfingin var stofnuð fyrir um tveimur árum í kjölfar slyss á lestarstöð, sem rakið var til vanrækslu og spillingar. Víðtæk mótmæli gegn sitjandi stjórn hafa verið áberandi síðan og var boðað til kosninga í ljósi þeirra. „Þetta er auðvitað algjörlega stórmerkilegt fyrirbæri sem á sér stað þarna í Serbíu. Þetta er svona stúdentahreyfing sem rís upp í rauninni gegn spillingu heima fyrir. Þar hefur verið svona harðræn þjóðernispopúlistastjórn við völd núna yfir mjög langan tíma sem verulega höll undir Moskvuvaldið og verið að fjarlægast þessi frjálslyndu lýðræðisgildi Evrópu. En núna kemur þessi stúdentahreyfing algjörlega á öldu hins frjálslynda lýðræðis Evrópu. Grunnurinn í stjórnmálakerfi Evrópu er hið frjálslynda lýðræði, hið opna frjálsa samfélag sem heldur betur hefur verið sótt að og það hefur verið gerð atlaga að þessu frjálslyndiskerfi álfunnar yfir langa hríð og Serbía hefur verið einhver erkitýpa þeirrar andstöðu en núna snýst dæmið algjörlega við.“ Bandalagið sé hinsvegar laustengt og óvíst hvernig þeim muni ganga að stjórna. Um sé að ræða menntamenn, prófessorar og situr læknir efstur á lista hreyfingarinnar sem er án eiginlegs leiðtoga. „Þannig að það er eitt að sigra kosningar, hrífa fólkið með sér, en það er annað að stýra landinu þegar að til þess kemur, en það verður alveg feikilega spennandi að fylgjast með því.“
Serbía Brasilía Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Sjá meira