Fótbolti

Ný­búin að vera valin best á Ís­landi og skoraði tvö í Sví­þjóð

Andri Broddason skrifar
Ída Marín Hermannsdóttir var valin besti leikmaður Bestu deildar kvenna í gær þrátt fyrir að hafa farið til Hammarby í Svíþjóð um mitt tímabil.
Ída Marín Hermannsdóttir var valin besti leikmaður Bestu deildar kvenna í gær þrátt fyrir að hafa farið til Hammarby í Svíþjóð um mitt tímabil. Hammarby IF

Íslensku stelpurnar voru heldur betur á skotskónum í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar 23. umferð deildarinnar fór fram. Ída Marín Hermannsdóttir skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Hammarby, Hlín Eiríksdóttir skoraði og lagði upp í 2-1 sigri Malmö og Sigdís Eva Bárðadóttir skoraði í 5-0 stórsigri Norrköpping.

Ída Marín er að uppskera eftir að hafa lagt inn mikla vinnu þar sem hún var valin besti leikmaður Bestu deildar kvenna í gær þegar deildin kláraðist. Hún hélt til Hammarby í sumar og hefur hún náð að halda áfram góðu gengi þar.

Hammarby mætti Djurgården í leik dagsins og sýndi Ída Marín sömu gæði og hún gerði á Íslandi. Hún skoraði tvö mörk fyrir Hammarby en Djurgården skoraði einnig sjálfsmark sem innsiglaði 3-0 sigur Hammarby. Guðrún Arnardóttir stóð í vörn Hammarby og passaði að ekkert færi inn fyrir vörn Hammarby.

Hafði betur í Íslendingaslagnum

Eftir að hafa verið á skotskónum með íslenska landsliðinu fyrir stuttu hélt Hlín því áfram fyrir Malmö þegar liðið mætti Íslendingaliðinu Kristianstad. Bæði Alexandra Jóhannsdóttir, Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Guðný Árnadóttir voru í byrjunarliði Kristianstad í dag.

Hlín kom gestunum í Malmö yfir strax í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik náði hún að leggja upp mark fyrir Larkin Russell. Malmö virtist ætla að vinna leikinn örugglega 2-0 en undir lok leiks náði Viktoria Persson að minnka muninn fyrir Kristanstad.

Þurfti ekki langan tíma til að skora

Norrköping vann stórsigur á Uppsala í dag þar sem leikurinn endaði með 5-0 sigri. Sigdís Eva Bárðardóttir byrjaði leikinn á bekknum en var ekki lengi að setja svip sinn á leikinn eftir að hún kom inn á.

Hún kom inn á þegar aðeins tíu mínútur voru eftir af leiknum en hún var aðeins inn á í sex mínútur þegar hún skoraði fjórða mark Norrköping. Þetta var mikilvægur sigur fyrir liðið þar sem liðið er sem stendur í umspilssæti um að halda áfram í sænsku úrvalsdeildinni.

Liðið er í tólfta sæti með 23 stig en Rosengård er í sætinu fyrir ofan með jafn mörg stig en liðið á leik til góða og getur því bætt stöðu sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×