Erlent

Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Tólf klukkustundum eftir að eldur kviknaði í húsinu sögufræga hefur ekki enn náðst að slökkva eldinn.
Tólf klukkustundum eftir að eldur kviknaði í húsinu sögufræga hefur ekki enn náðst að slökkva eldinn. Getty

Enn logar eldur í Arnarhreiðri Adolfs Hitler, einu sögufrægasta húsi Þýskalands, eftir að kviknaði í því í gærkvöldi. Einn hefur verið handtekinn grunaður um íkveikju. 

Í umfjöllun Bild er haft eftir lögreglumanni að mikið tjón hafi orðið á húsinu og ólíklegt sé að hægt verði að bjarga því. Brunavarnarkerfi hafi farið í gang  um níuleytið á staðartíma í gærkvöldi og þegar viðbragðsaðila bar að garði hafi húsið staðið í ljósum logum. 

Um 200 slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkviliðsstarfi vegna eldsins. Haft er eftir Lisu Maier, talsmanni lögreglu, í umfjöllun The Guardian að eldurinn sé erfiður viðureignar vegna staðsetningar hússins, sem er í 1.834 metra hæð. Boðað verði til blaðamannafundar seinna í dag vegna atviksins. 

Sjá einnig: Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum

Mynd úr vefmyndavél á svæðinu frá því í gær. bergfex.de

Einn hefur verið handtekinn og yfirheyrður grunaður um íkveikju en eldsupptök eru þó enn óljós. Enginn er talinn hafa verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. 

Á síðu hússins segir að því hafi verið lokað, sem og þjónusta við gesti, um ókominn tíma vegna mikils eldsvoða.

Einn vinsælasti ferðamannastaður Þýskalands

Húsið, sem heitir á þýsku Kehlsteinhaus, er staðsett á fjallinu Kehlstein í Bæjaralandi ofan við bæinn Berchtesgaden, sem er við Alparætur. Um er að ræða einn vinsælasta ferðamannastað Þýskalands.

Það var byggt á árunum 1937 til 1938 sem sumarhús fyrir háttsetta nasista, þar á meðal Adolf Hitler. Hann er þó sagður hafa dvalið þar sjaldan, heldur hafi markmiðið með byggingunni verið að heilla erlenda gesti og diplómata.

Húsið komst nokkuð óskaddað í gegnum seinni heimsstyrjöldina. Á síðustu árum hefur það verið notað sem safn um Þýskaland nasismans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×