Sport

Dag­skráin: Skipti­borðið, stórleikur í körfunni og Ís­lendingar í Evrópu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
DeAndre Kane er mættur og Grindvíkingar þurfa sigur í kvöld.
DeAndre Kane er mættur og Grindvíkingar þurfa sigur í kvöld. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum en mikið er af körfubolta og fótbolta í beinni í kvöld.

Þriðja umferð Bónus deildar karla í körfubolta hefst í kvöld með fjórum leikjum.

Skiptiborðið mun fylgjast með öllum leikjum í einu og Tilþrifin fara síðan yfir alla leikina strax á eftir.

Stórleikur kvöldsins er á milli Íslandsmeistara síðustu tveggja ára þegar Grindavík tekur á móti Stjörnunni. Njarðvíkingar fá sjóðheita Valsmenn í heimsókn, ÍR heimsækir Hött á Egilsstöðum og KR tekur á móti Ármanni í Reykjavíkurslag.

Það verður einnig fullt af Evrópuleikjum í beinni í bæði Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni. Bournemouth tekur á móti AC Milan í Evrópudeildinni og Orri Steinn Óskarsson og félagar í Real Sociedad heimsækja Lilleström í Noregi í sömu keppni. Viktor Daðason og félagar í FC Kaupmannahöfn sækja líka Rauðu Stjörnuna heim.

Það verða einnig tvö golfmót í beinni í nótt.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19.10 hefst Skiptiborðið þar sem fylgst verður með öllum fjórum leikjum kvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.

Klukkan 21.15 hefjast Tilþrifin þar sem farið verður yfir alla fjóra leiki kvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Grindavíkur og Stjörnunnar í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Hattar og ÍR í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 4

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik KR og Ármanns í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport Ísland 5

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Njarðvíkur og Vals í Bónus deild karla í körfubolta.

Sýn Sport

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Juventus og Rennais í Evrópudeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Lilleström og Real Sociedad í Evrópudeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 2

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Rauðu Stjörnunnar og FCK í Sambandsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 3

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik AGF og Egnatia í Sambandsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 03.00 hefst bein útsending frá Genesis Championship-golfmótinu á DP World Tour.

Sýn Sport 5

Klukkan 02.00 hefst bein útsending frá BMW Ladies Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 16.35 hefst bein útsending frá leik Lech Poznan og Sunderland í Evrópudeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Bournemouth og AC Milan í Evrópudeildinni í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×