Innlent

Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði

Agnar Már Másson skrifar
Slökkviliðið vinnur nú að reykræstingu í verslunarhúsnæðinu.
Slökkviliðið vinnur nú að reykræstingu í verslunarhúsnæðinu. Vísir/Anton Brink

Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld í verslunarhúsnæði við Norðurbakka í Hafnarfirði.

Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en búið sé að slökkva eldinn. Nú sé unnið að reykræstingu. 

Hann kveðst ekki vita í hverju hafi kviknað, né hvaða verslun um sé að ræða.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×