Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 19. október 2026 10:51 Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner vakti athygli á tískusýningu nærfatarisans Victoria's Secret. Taylor Hill/FilmMagic Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner vakti mikla athygli á tískusýningu nærfatarisans Victoria's Secret í gærkvöldi. Er þetta í fyrsta sinn sem Jenner gengur tískupallinn fyrir þessa geisivinsælu sýningu.
Fyrsta tískusýning Victoria's Secret fór fram árið 1995 og hefur ár hvert vaxið í vinsældum. Heimsfrægar fyrirsætur ganga tískupallinn fáklæddar í nærfötum og eru þekktar sem „Englarnir“ eða Victoria's Secret Angels. Poppstjörnur taka gjarnan vinsæl lög á sviðinu og englarnir ganga seiðandi fram hjá þeim. Í ár steig kanadíska söngkonan Tate McRae á stokk en áður hafa meðal annars Rihanna, Justin Bieber og The Weeknd tekið þetta verkefni að sér. Kylie Jenner stal senunni á sýningunni í gær og kom mörgum viðstöddum á óvart. Hún klæddist „fantasy“-brjóstahaldaranum svokallaða sem hefur verið órjúfanlegur hluti af tískusýningunni frá árinu 2018. Á brjóstahaldaranum eru 4410 demantar umkringdir 75,54 karata gulum demanti. Það tók fimmtán hönnuði yfir þúsund klukkutíma að sauma þá í og gripurinn er metinn á rúma sex milljarða íslenskra króna. View this post on Instagram A post shared by Victoria's Secret (@victoriassecret) Jenner er hvað þekktust fyrir að tilheyra Kardashian-Jenner fjölskyldunni og hefur frá blautu barnsbeini verið hluti af raunveruleikaþáttunum Keeping Up With The Kardashians og síðar The Kardashians. Kendall Jenner systir hennar er auðvitað ein þekktasta fyrirsæta heimsins í dag en Kylie hefur sjálf aðeins verið að stíga skref inn í tískubransann og lokaði meðal annars tískusýningu franska merkisins Coperni í Disney-landi í París fyrir tveimur árum.
Tíska og hönnun Bandaríkin Hollywood Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Staðráðnar í að koma sterkari til baka Minningar um mömmu það allra verðmætasta Sól sló í gegn á tískuviku í London Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Allir og amma þeirra mættu í þjóðbúningi Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Sjá meira