Sport

„Þetta er keppni í því að vinna“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Viðar, þjálfari Hattar, var að vonum ánægður með sigur liðsins í kvöld.
Viðar, þjálfari Hattar, var að vonum ánægður með sigur liðsins í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar, var afar sáttur eftir 103-98 sigur á Stjörnunni í Bónus-deild karla í kvöld. Hann var sérstaklega sáttur með hvernig liðið brást við þegar Stjörnumönnum tókst að vinna sig aftur inn í leikinn í fjórða leikhluta.

„Bara svona heilt yfir þá vorum við að búa okkur til góð skot, sóknarlega, og varnarleikurinn var svona þokkalega þéttur á löngum köflum. Þannig að frammistaðan var bara nokkuð góð,“ sagði Viðar um frammistöðu liðsins eftir leikinn.

Viðar var allt annað en sáttur eftir tap gegn Álftanesi í fyrstu umferð og fór ekki leynt með óánægju sína í viðtali við Sýn eftir leikinn. Hann var því spurður hvort hann væri sáttari með frammistöðu liðsins í kvöld.

„Þetta er keppni í því að vinna. Þó að frammistaðan hefði verið ömurleg þá væri ég samt sáttari. En hún var bara fín.“

Viðar var sérstaklega ánægður með lokakafla þriðja leikhluta og viðbrögð liðsins þegar Stjarnan náði að saxa á forskotið.

„Auðvitað mjög ánægður með hvernig við lokuðum þriðja leikhlutanum og náðum okkur í gott forskot. Stjörnuliðið gerði vel, þeir settu þarna fjóra þrista í röð og ég er ánægður með mína menn, hvernig við brugðumst við þessari sveiflu og snerum þessu aftur til okkar og stjórnuðum þessu undir lokin.“

Þegar Viðar var spurður hvað hann væri sáttastur með hjá sínu liði var svarið einfalt.

„Að við unnum. Þetta er keppni í því og við ætlum að reyna að vinna eins marga leiki og við getum. Þótt það sé ljótt eða hvernig sem það er þá þarf að finna leiðir til þess.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×