Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir og Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifa 16. október 2026 11:31 Verðlaunaleikritið Högg (e. Punch) er nú til sýninga á fjölum Þjóðleikhússins. Það er dæmi um verk sem hægt er að njóta en um leið læra af – og kynnast nýjum leiðum sem geta stuðlað að betra samfélagi. Sýningin Högg byggir á sannsögulegum atburði sem átti sér stað í Bretlandi árið 2011 og sýnir með áhrifamiklum hætti hvernig eitt högg getur breytt lífi einstaklinga. Bæði þess sem veitir höggið og þess sem verður fyrir því. Í þessu tilviki lést sá sem fékk þetta eina högg. Mörg okkar myndu eflaust telja sanngjarnt að sá sem ber ábyrgð á slíkum verknaði þurfi að lifa með alvarlegum afleiðingum hans. En sagan sem Högg segir vekur jafnframt upp aðra og erfiðari spurningu: Þarf annað líf líka að fara forgörðum? Foreldrar mannsins sem lést völdu aðra leið. Þau vildu ekki að enn eitt líf eyðilegðist vegna þess sem hafði gerst. Það þýddi ekki að þau gerðu lítið úr missi sínum eða því sem hafði verið gert. Þvert á móti. Þau vildu að sá sem olli skaðanum horfðist í augu við afleiðingar gjörða sinna, skildi hvaða áhrif þær höfðu haft og axlaði ábyrgð. Þar kom uppbyggileg réttvísi inn í söguna. En hvað er uppbyggileg réttvísi? Uppbyggileg réttvísi (e. Restorative Justice) er leið til að bregðast við skaða með ábyrgð, samtali og uppbyggingu að leiðarljósi. Í stað þess að einblína á það sem gerðist er sjónum beint að þeim sem urðu fyrir áhrifum þess sem gerðist og því sem þarf til að vinna úr afleiðingunum. Spurt er: Hver varð fyrir skaða? Hvaða áhrif hafði það sem gerðist? Hverjar eru þarfir þeirra sem málið varðar? Hver ber ábyrgð og hvað þarf til að skapa forsendur fyrir því að halda áfram? Uppbyggileg réttvísi snýst ekki um að afsaka það sem gerðist, draga úr ábyrgð eða ætlast til fyrirgefningar. Þvert á móti snýst hún um að gangast við skaðanum sem varð, takast á við afleiðingarnar og axla ábyrgð á því sem gerðist. Sá sem varð fyrir skaða fær tækifæri til að láta rödd sína heyrast, segja frá því hvaða áhrif atburðurinn hafði á hann og, þegar það á við, fá svör við spurningum sem annars gætu staðið ósvaraðar. Sá sem olli skaðanum þarf jafnframt að vera tilbúinn til að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna og axla ábyrgð á þeim. Uppbyggileg réttvísi snýst um að gangast við því sem gerðist og skaðanum sem af því hlaust og styðja við þann sem olli skaðanum við að axla ábyrgð á gjörðum sínum. Aðferðin er ekki lausn á öllum vanda og hentar ekki öllum eða öllum málum. Hún kemur heldur ekki í stað þeirra úrræða sem þegar standa fólki til boða eftir að það hefur orðið fyrir afbroti eða öðrum skaða. Hún er viðbót, önnur leið sem getur staðið þeim til boða sem vilja og geta nýtt sér hana. Kannski er einmitt þar stærsti lærdómurinn í Höggi. Réttlæti þarf ekki aðeins að snúast um það hvaða refsingu sá sem braut af sér fær. Það getur líka falist í því að spyrja hvers sá sem varð fyrir skaða þarfnast, hvernig sá sem olli honum getur axlað raunverulega ábyrgð og hvað þarf til að takast á við afleiðingarnar og finna leið áfram. Það sem gerðist verður ekki tekið til baka. Sumt verður aldrei bætt. En það þýðir ekki að við getum ekki haft áhrif á það sem tekur við. En hvað með Ísland? Uppbyggileg réttvísi er ekki hugsuð sem staðgengill fyrir þau úrræði sem við höfum þegar byggt upp í samfélaginu. Hún er viðbót við þau. Við þurfum áfram rannsóknir mála, dómstóla, heilbrigðisþjónustu, félagslegan stuðning og önnur úrræði fyrir fólk sem orðið hefur fyrir skaða. En þarf ein leið að útiloka aðra? Þarfir fólks eftir alvarlegan atburð eru ólíkar. Sum vilja fyrst og fremst geta haldið áfram með líf sitt án frekari tengsla við þann sem olli skaðanum. Önnur sitja eftir með spurningar sem enginn nema sá sem olli skaðanum, getur svarað. Fyrir suma skiptir mestu máli að fá að segja frá því, með eigin orðum, hvaða áhrif atburðurinn hafði á líf þeirra. Enn aðrir vilja vita hvort sá sem olli skaðanum geri sér raunverulega grein fyrir afleiðingum gjörða sinna. Við getum ekki ákveðið fyrir fólk hvað það þarf til að vinna úr afleiðingum þess sem gerðist. En það er á okkar ábyrgð sem samfélags að tryggja að fleiri leiðir standi því til boða. Á Íslandi hefur þegar verið unnið að því að byggja upp þekkingu og reynslu á sviði uppbyggilegrar réttvísi. Nú er tímabært að ræða af alvöru hvort hún eigi að verða raunverulegur og aðgengilegur valkostur fyrir þau sem vilja nýta sér hana. Ekki í stað þess sem fyrir er heldur til viðbótar. Högg segir sögu um skelfilegan atburð og afleiðingar hans. En hún segir líka sögu um það sem getur gerst þegar fólk fær tækifæri til að horfast í augu við skaðann, spyrja erfiðra spurninga og leita annarrar leiðar áfram. Kannski er það einmitt það sem góð menning getur gert. Hún getur hreyft við okkur, ögrað hugmyndum okkar og fengið okkur til að spyrja hvort hlutirnir þurfi alltaf að vera eins og þeir hafa verið. Og þegar ljósin kvikna aftur í salnum eftir leikverkið Högg væri vert að velta einu fyrir sér: Ef uppbyggileg réttvísi getur verið ein þeirra leiða sem hjálpa fólki að takast á við afleiðingar alvarlegs skaða og finna leið áfram, ættum við þá ekki að tryggja að sú leið standi líka til boða hér á Íslandi? Höfundar starfa hjá Domus Mentis Geðheilsustöð. Þóra er sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, Kristín er félagsráðgjafi og handleiðari. Báðar eru þær miðlarar Uppbyggilegrar réttvísi, með réttindi til að vinna að viðkvæmum og alvarlegum málum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun