Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. október 2026 14:20 Kópavogsbær fer fram á tæpa fjóra milljarða. Kópavogsbær hyggst sækja fullar heimtur vegna vanefnda verktaka við byggingu Barnaskóla Kársness. Krafan er upp á tæpa fjóra milljarða.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Þar segir að árið 2021 hafi Kópavogsbær gert samning við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher um endurbyggingu við Skólagerði. Um er að ræða Barnaskóla Kársness sem er í dag samrekinn leik- og grunnskóli. Bærinn gerði ráð fyrir því að verja 4,8 milljörðum í verkið við útboðið árið 2020 sem eru að núvirði 6,7 milljarðar. Verksamningsupphæðin nam 3,2 milljörðum króna og átti verkinu að vera lokið 15. maí 2023. Verksamningnum var rift árið 2023 vegna „alvarlegra vanefnda“. Þá hefði átt að vera komið að skilum á verkinu en það einungis hálfnað og hafði hann fengið greidda tvo milljarða króna á núvirði. „Auk tafanna hafði Kópavogsbær verulegar áhyggjur af gæðum verksins en mannvirkið hafði staðið opið fyrir veðri og vindum. Einnig lá þá fyrir að undirverktakar höfðu lagt niður störf. Gallar á verkinu reyndust umfangsmiklir og leiddi það einnig til mikilla tafa. Byggingartíminn, sem átti að vera rúm tvö ár, varð að fimm árum með tilheyrandi óhagræði og kostnaði,“ segir í tilkynningunni. Verkinu sé nú að fullu lokið og var heildarkostnaðurinn 8,7 milljarðar króna, tveimur milljörðum yfir kostnaðaráætlun bæjarins. Það sé að mestu leyti vegna áðurnefndra vanefnda. „Kópavogsbær hefur unnið að því síðustu mánuði að taka saman kröfugerð og gögn vegna þess viðbótarkostnaðar sem féll til vegna verktakaskipta, tafa og stórfelldra galla á verkinu,“ segir í tilkynningunni. Kröfugerðin var kynnt fyrir gerðardómi og bæjarráði í vikunni. Hún nemur tæpum 3,9 milljörðum króna og krefst bærinn þess að verktakinn greiði þann kostnað að fullu.
Kópavogur Grunnskólar Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent „Þetta situr náttúrulega í manni“ Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Sjá meira