Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2026 07:36 Björgunarmaður heldur á slösuðu barni sem fannst í rústunum. Vísir/AP Að minnsta kosti tuttugu og sjö nemendur og einn kennari eru látnir eftir að þak skóla í borginni Peshawar í Pakistan hrundi. Fleiri nemendur eru slasaðir og þá er óttast að einhverjir séu enn þá fastir í rústum byggingarinnar.
Börnin sem létust og slösuðust eru flest undir þrettán ára aldri en á vef BBC er greint frá því að á annan tug barna hafi slasast og einhver þeirra flutt á sjúkrahús alvarlega slösuð. Fréttastofa Reuters skrifar á vef sínum að óttast sé að tala látinna eigi eftir að hækka. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á sjúkrahúsi borgarinnar vegna slyssins. Slysið varð í Al-Khair Education Center-skólanum í borginni Peshawar norðarlega í Pakistan. Viðbragðsaðili á staðnum segir í viðtali við Reuters að þak á efri hæð hafi hrunið ofan á þak fyrstu hæðar byggingarinnar sem síðan hrundi á nemendur í skólastofum. Sjúkrabíll kemur að skólnum þar sem þakið hrundi.Vísir/AP Á sjónvarpsmyndum megi sjá sjúkrabíla á leið á vettvang og björgunarfólk draga nemendur úr rústunum. „Við höfum hingað til náð að minnsta kosti fjörutíu og fimm börnum úr rústunum,“ er haft eftir Iftikhar Khan, yfirmanni neyðaraðgerða á svæðinu, á vef Reuters. Óttast er að fleiri börn séu grafin í rústunum. Í yfirlýsingu frá Asif Ali Zardari, forseta Pakistans, segist hann vera í áfalli vegna atburðarins í Peshawar. „Atvikið hefur orðið til þess að öll þjóðin er í áfalli,“ segir í tilkynningu forsetans en skrifstofa forsetaembættisins segir að Zardari hafi komið á framfæri samúðarkveðjum til fjölskyldna sem eiga um sárt að binda. „Forsetinn lagði einnig áherslu á nauðsyn þess að fram fari ítarleg rannsókn til að leiða í ljós orsakir slyssins sem og að öryggisstaðlar í skólabyggingum verði tryggðir til að koma í veg fyrir að slíkur harmleikur endurtaki sig í framtíðinni,“ segir í yfirlýsingu embættisins.
Pakistan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira