Fótbolti

Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Rooney gagnrýnir hegðun fyrrverandi félaga síns Ronaldo harðlega.
Rooney gagnrýnir hegðun fyrrverandi félaga síns Ronaldo harðlega.

Wayne Rooney setur stórt spurningamerki við hegðun fyrrverandi félaga síns Cristiano Ronaldo í nýliðnu landsleikjahléi. Hún nái út fyrir öll mörk og hann hafi vart séð annað eins.

Það vakti töluverða athygli þegar Ronaldo yfirgaf félaga sína í portúgalska landsliðinu í miðju landsleikjahlé eftir að hafa setið allan leikinn á bekknum í 2-1 sigri Portúgals á Noregi.

Ronaldo flaug með einkaþotu frá Kaupmannahöfn þar sem Portúgalir áttu fram undan leik við Danmörku og áttu einnig eftir annan leik við Norðmenn á heimavelli. Ronaldo hafði byrjað fyrsta leikinn við Wales en setið á bekknum í öðrum leiknum við Noreg.

Portúgal vann alla fjóra leikina í landsliðsglugganum sem var fyrsta verkefni nýs þjálfara, Jorge Jesus, sem tók við eftir HM í sumar.

Ronaldo sakaði Jesus um að hafa svikið sig og lofað sér leiktíma sem hann fékk ekki í leiknum við Noreg. Honum þótti vandræðalegt að hafa verið sendur að hita upp en ekki komið inn á.

Í hlaðvarpinu United Stand gagnrýndi Rooney sinn gamla liðsfélaga fyrir hegðun sína.

„Mín skoðun á Ronaldo er hreinlega bara: Hvers vegna? Þetta var sama dag og Messi var að hætta með Argentínu og fyrir hann að segja sig frá portúgalska liðinu með þessum hætti, og síðan birta þessa yfirlýsingu. Það er bara allt rangt við þetta,“ segir Rooney.

„Frá fótboltalegu hliðinni, frá því að vera liðsfélagi og þjálfari, þá er þetta ekki gott að sjá.“

Hvað heillanga yfirlýsingu Ronaldo varðar, þar sem hann sakaði þjálfarann Jesus um svik og líkti sjálfum sér við menn á við Diego Maradona og Pelé. Þar listaði Ronaldo einnig upp hluti sem honum fannst Jesus hafa átt að segja á blaðamannafundi eftir að allt sprakk í loft upp þeirra á milli.

„Þú getur ekki sagt þjálfaranum hvað hann á að segja. Það fer út fyrir öll mörk. Ég hef ekki séð annað eins,“ segir Rooney.

Rooney og Ronaldo spiluðu saman hjá Manchester United milli 2004 og 2009 í dýrðartíð liðsins undir stjórn Sir Alex Ferguson. Þeir unnu þrjá enska meistaratitla saman og Meistaradeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×