Lífið

Stigu trylltan dans á Saint Pete

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var mikið fjör á tónleikum rapparans Saint Pete á föstudag í N1-höllinni.
Það var mikið fjör á tónleikum rapparans Saint Pete á föstudag í N1-höllinni. Viktor Freyr

Gríðarlegur fjöldi fólks var mættur í N1-höllina á föstudagskvöld að berja rapparann Pétur Má Guðmundsson, betur þekktan sem Saint Pete, augum. Hann kom fram ásamt úrvalsliði íslenkra tónlistarmanna á tónleikum sem hann kallaði Tónleikar aldarinnar.

Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í sumarsmellinum City of Joy. 

Viktor Freyr ljósmyndari var á svæðinu og myndaði stemninguna. 

Pétur auglýsti viðburðinn sem Tónleika aldarinnar.Viktor Freyr/Vísir
Þessir strákar voru í miklu stuði.Vísir/Viktor Freyr
Hendur upp!Vísir/Viktor Freyr
Herra Hnetusmjör steig á stokk í úlpu með sólgleraugu. Vísir/Viktor Freyr
Þessar skvísur voru hressar. Vísir/Viktor Freyr
Pétur kemur frá Akureyri og hefur risið hratt í tónlistarbransanum undanfarin ár.Vísir/Viktor Freyr
Margt var um manninn.Vísir/Viktor Freyr
Orkan var í hæstu hæðum.Vísir/Viktor Freyr
Steindi, Auddi og Pete tóku City of Joy.Vísir/Viktor Freyr
Jóna Margrét og Andri Björnsson frá FM957 létu sig ekki vanta.Vísir/Viktor Freyr
Saint Pete var í skýjunum með tónleikana.Vísir/Viktor Freyr
Gleðin leyndi sér ekki.Vísir/Viktor Freyr
Elvar Orri tók lagið.Vísir/Viktor Freyr
Úlfur Úlfur klikkar seint.Vísir/Viktor Freyr





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.