Skoðun

Hvers vegna eru niður­stöður PISA leyndar­mál?

Jón Pétur Zimsen skrifar

Hvað þarf námsárangur íslenskra barna að versna mikið áður en menntayfirvöld leggja allar upplýsingar á borðið?

Íslenskir skólar fengu áður niðurstöður úr PISA sem gerðu þeim kleift að skoða eigin stöðu og bera hana saman við aðra skóla. Árið 2012 og 2015 voru slíkar upplýsingar teknar saman og skólar gátu nýtt sér þær í þágu nemenda. Síðan þá neitar menntamálaráðuneytið að veita skólum þessar mikilvægu upplýsingar.

Hvers vegna?

Ísland hefur sérstaka stöðu í PISA. Hér taka nær allir 15 ára nemendur þátt, en í flestum öðrum ríkjum er byggt á úrtaki, 42 nemendum í hverjum skóla.

OECD staðfestir í landsskýrslu sinni um PISA 2022 að vegna þessarar sérstöðu Íslands, í lauslegri þýðingu:

,,Þar sem PISA-rannsóknin nær til alls þýðisins (allra nemenda) er hægt að fylgjast með niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma“.

Í ríkjum á borð við Lettland ofl, þar sem PISA byggist á úrtaki, geta þátttökuskólar fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla. Hvers vegna er ekki unnt að veita íslenskum skólum sambærilegar upplýsingar?

Af heimasíðu menntamálaráðuneytis þeirra má finna í lauslegri þýðingu:

,,…getur hver þátttökuskóli fengið upplýsingar um eigin árangur í samanburði við aðra skóla.“

Auðvitað eru niðurstöður fámennari skóla háðar tölfræðilegri óvissu. En það engin vísindaleg dyggð að halda upplýsingum leyndum vegna þess að þær eru ekki fullkomnar. Rétt er að veita upplýsingarnar með fyrirvörum og nýta þær í þágu aukins árangurs nemenda. Ekki veitir af.

Nú hafa niðurstöður PISA 2025 verið birtar fyrir sjö stærstu sveitarfélögin, en ekki einstaka skóla þar sem þær nýtast einna best.

Það er ekki nóg að tala um mikilvægi menntunar þegar upplýsingar sem gætu hjálpað skólum, að greina styrkleika og veikleika þeirra, berast ekki til þeirra.

Skólakerfið er til fyrir nemendur. Án nemenda væri ekkert skólakerfi á því þarf ráðherra að átta sig á.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins




Skoðun

Skoðun

Barn fyrir bíl

Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar

Sjá meira


×