Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2026 22:02 Rakel og Sigurður voru gestir Bítisins á Bylgjunni í morgun. Vísir Kennarar sem sinnt hafa einkakennslu í íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna segja það mikið högg að Starfsmenntunarsjóður ætli ekki lengur að endurgreiða félagsmönnum sem sækja einkakennslu. Þá segja þeir að kröfur sem menntamálaráðuneytið setji til að fá vottun sem viðurkenndur fræðsluaðili séu ómögulegar að uppfylla fyrir einstaklinga.
Kennararnir Rakel Sigurgeirsdóttir og Sigurður Borghildarson voru í viðtali í Bítinu í morgun þar sem þau fóru yfir málið. Þar kom fram að starfsmenntunarsjóðurinn Starfsafl ætli ekki lengur að endurgreiða félagsmönnum sem sækja einkakennslu í íslensku sem öðru máli. Starfsgreinasambandið og SA eru meðal þeirra sem eru aðilar að sjóðnum en samkvæmt Rakel og Sigurði munu aðeins þeir sem sækja námskeið hjá símenntunarstofnunum fá endurgreiðslu vegna íslenskunáms. „Þær bjóða gjarnan upp á nám fyrir þá sem eru byrjendur og þar eru alltaf ákveðnir pakkar. Við erum með fjölbreyttari hóp, fólk sem er komið lengra og vill kannski leggja áherslu á talið og málfræðina sem tengist því sem það er að segja, til dæmis fagorðaforða sem tengist atvinnu þeirra,“ sagði Rakel í Bítinu í morgun. Sigurður bætir við að hann hafi ekkert út á símenntunarstofnanirnar að setja sem séu fínir skólar. „Þetta er staðlaða mótið sem fólk fer í en það er bara ekki fyrir alla, til dæmis þá sem eiga erfitt með að læra í hópumhverfi. Fólk sem er í vaktavinnu getur líka átt mjög erfitt með að komast á regluleg námskeið, mánudaga til fimmtudaga frá níu til tólf í sex vikur.“ Kennarar að mennt en fá samt ekki vottun Þau segja að Starfsafl hafi tekið þá ákvörðun að ekki verði greitt fyrir kennslu nema hjá þeim sem eru skilgreindir fræðsluaðilar en menntamálaráðuneytið sér um slíka vottun. „Það ber með sér kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla. Megnið af minni einkakennslu fer fram í gegnum netið en partur af því að verða viðurkenndur fræðsluaðili er að fá brunaeftirlitið á svæðið, sem gefur manni stimpil, og heilbrigðiseftirlitið. Það er hugmynd sem meikar ekkert sens fyrir einstakling sem kennir í stofunni sinni.“ Sigurður er með BA-gráðu í málvísindum en Rakel er kennari að mennt. Hún hefur þó ekki fengið vottun hjá ráðuneytinu. Rakel segir að hún hafi verið í samskiptum við menntamálaráðuneytið sem og Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu. „Mér var allavega vísað fram og til baka. Við vorum að reyna að fá skilning á því að við erum ekki eins og Mímir, við erum ekki með stórt húsnæði með mörgum skólastofum þar sem þarf að tryggja aðgengi fatlaðra og hvort salernið uppfylli kröfur fyrir stóra hópa.“ Aðrir sjóðir ætla sömu leið Þau segjast bæði vera með biðlista eftir nemendum sem vilja komast að í kennslu. „Ég skil að starfsmenntunarsjóðir vilji hafa vottun um að viðkomandi hafi kennsluréttindi en leyfið mitt er til dæmis aðgengilegt á vefsíðunni minni,“ bætir Rakel við. Þau segja að um sé að ræða á milli 20 og 30 einkakennara sem sinna þessu starfi á landsvísu. „Þetta er högg og það var talað um við mig að aðrir sjóðir væru að fara aðra leið.“
Vinnumarkaður Skóla- og menntamál Innflytjendamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira