Gull að leysa kókaín af hólmi Samúel Karl Ólason skrifar 12. október 2026 18:57 Ólöglegur gullgröftur er ekki nýr af nálinni í Suður-Ameríku en hann hefur færst mikið í aukanna. Glæpamenn og uppreisnarmenn eru farnir að spila stærri rullu í iðnaðinum sem hefur ýmsar slæmar afleiðingar. Getty/Juancho Torres, Anadolu Fíkniefnahringir og uppreisnarhópar í Suður-Ameríku hafa á undanförnum árum snúið sér sífellt meira að því að grafa eftir gulli í stað þess að framleiða og selja fíkniefni. Þetta hefur verulega slæm áhrif á viðkvæmt umhverfi og fólkið sem býr á svæðunum þar sem þessi ólöglega starfsemi fer fram.
Gull hefur hækkað verulega í verði á undanförnum árum og þar að auki er það ekki ólöglegt víða um heim eins og fíkniefni eru víðast hvar. Það er því að mörgu leyti auðveldara fyrir glæpamenn að grafa eftir því, hylja uppruna þess og selja en að selja fíkniefni. Þá eru minni líkur á því að vera gómaður af yfirvöldum við gullgröft en við fíkniefnaframleiðslu og viðurlög minni. Umræddir hópar, fíkniefnahringir og uppreisnarmenn, búa í mörgum tilfellum yfir þúsundum vopnaðra manna og stjórna heilu héruðum ríkja í Suður-Ameríku. Nýja kókaínið Þetta er þróun sem nokkuð hefur verið skrifað um á síðustu árum en norskir höfundar nýrrar skýrslu um það hvernig þessi gullgröftur hefur komið niður á umhverfinu í frumskógum Suður-Ameríku og frumbyggjum þar segja að þetta sé að færast enn frekar í aukana. Gullgröftur sé til að mynda orðinn arðbærari en framleiðsla og sala fíkniefna fyrir glæpasamtök í Perú og í Kólumbíu en í skýrslunni er sérstaklega fjallað um þau tvö ríki. „Gull er nýja kókaínið,“ sagði einn höfunda skýrslunnar í samtali við norska ríkisútvarpið. CNN sagði frá því fyrir tæpu ári að ráðamenn í Perú hefðu vakið athygli á því að þar í landi væri ólöglegur gullgröftur orðinn um sjö sinnum umfangsmeiri en viðskipti með fíkniefni. Rannsakendur hugveitunnar Council for foreign relations í Bandaríkjunum skrifuðu fyrir tveimur árum að í Kólumbíu fengju fíkniefnahringir um helming tekna sinna frá ólöglegum gullgrefti. Geirinn væri einnig umsvifamikill í Venesúela og í báðum ríkjum hefði hann leitt til mikils skógarhöggs og mengunar. Þá fjallaði breski miðillinn The Times ítarlega um ástandið í Perú í fyrra. Auðvelt að fela uppruna gulls Áður hafa borist fregnir af sambærilegri þróun í Afríku, þar sem vígahópar og glæpasamtök hafa malað gull, bókstaflega, úr ólöglegum gullnámum sem oft eru mannaðar með þrælum. Þessu fólki er rænt af vígamönnum Íslamska ríkisins eða annarra vígahópa og það þvingað til að grafa eftir gulli. Í öðrum tilfellum leyfðu vígamenn borgurum að grafa eftir gulli á þeim svæðum sem þeir stjórna en með því skilyrði að vígamennirnir fengju alltaf hluta af því gulli sem væri grafið úr jörðu. Sjá einnig: Vígamenn mala gull í Afríku Í áðurnefndri norskri skýrslu er vísað til sérstakra pramma sem sjást nú víða í Perú og öðrum ríkjum. Þá er þeim komið fyrir í töluverðum fjölda á ám í Amason en þeir eru notaðir til að hýsa verkafólk og til að grafa eftir gullinu. Samkvæmt höfundum skýrslunnar geta tekjurnar af einum svona pramma náð allt að 51 milljón króna á mánuði. Eftir að gullið er komið úr jörðinni er það brætt og skjöl fölsuð til að hylja uppruna þess. Gullið er svo selt eins og það hafi verið grafið upp með löglegum hætti. Mikið af gullinu er selt til Bandaríkjanna, Indlands og Ítalíu. Mikil mengun fylgir greftrinum Umrædd skýrsla snýst að miklu leyti um áhrif gullgraftarins á umhverfi Amasonskógarins og á íbúa þar. Þar segir að búið sé að höggva niður gífurlega mikið af trjám vegna gullgraftarins. Þá hafi kvikasilfur sem notað er við gullgröftinn ratað út í umhverfið. Mikið magn kvikasilfurs er sagt hafa fundist í bæði mönnum og dýrum á svæðinu. Þar að auki er gullgröfturinn að valda harmleik fyrir fólkið á svæðinu. Mansal, barnaþrælkun og kynlífsþrælkun eru umsvifamikil vandamál sem tengjast þessari glæpastarfsemi. Þá hefur fólk sem reynt hefur að grípa til aðgerða gegn glæpamönnunum verið myrt. Yfirvöld í Suður-Ameríku hafa lengi reynt að sporna gegn þessum gullgrefti en með takmörkuðum árangri. Mun meiri áhersla er lögð á átökin gegn fíkniefnaframleiðslu. Þegar prammarnir eru brenndir eru nýir smíðaðir og þegar vinnumennirnir eru handteknir eru nýir ráðnir eða þvingaðir til starfanna af þeim fíkniefnahringjum eða uppreisnarhópum sem um ræðir.
Perú Kólumbía Erlend sakamál Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira