Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. október 2026 14:12 Svifsprengja hæfði þessa íbúðarblokk. Einhver fjöldi íbúa lést. Getty Fimmtán hið minnsta létust, þar af þrjú börn, þegar Rússar vörpuðu fimm svifsprengjum á úkraínsku borgina Saporíssjía í morgun. Sextán til viðbótar særðust og fleirra er saknað. Óttast er að fleira fólk kunni að vera fast undir rústum íbúðarhúsa.
Breska ríkisútvarpið hefur eftir Volódímír Selenskí Úkraínuforseta og viðbragðsaðilum að sprengjurnar hafi hæft íbúðarbyggingar í borginni. Selenskí segir Rússa jafnframt hafa gert árásir á þrettán önnur héruð Úkraínu í nótt. Í myndbandi sem Selenskí deilir frá frá vettvangi sjást björgunaraðgerðir í fjölbýlishús sem er að mestu hrunið. Today, Russia expressed its thanks for the lifting of sanctions on diesel exports by dropping five glide bombs on residential buildings in Zaporizhzhia. As of now, sadly, twelve people have been confirmed killed, including three children. My condolences to all their families and loved ones. Another fourteen people have been injured, and two of them are in critical condition – the doctors are fighting to save their lives. The status of twelve more people who may have been there is still being verified. All emergency services are at the scene, and search-and-rescue operations are underway. Overnight, thirteen of our regions came under attack. Residential buildings, infrastructure, and railway facilities have been damaged. Last night confirmed once again that in Russia, they take any easing of pressure to mean they can keep fighting, to mean they can keep dropping bombs on cities. Different signals are needed. Russia must understand that it needs to stop the war, and for that to happen, Russia must feel its losses. Right now, it is our long-range capabilities that are ensuring this. And we will respond to Russian strikes. I thank everyone who is helping.— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 10, 2026 „Sprengjan hæfði jarðhæðina og hæðirnar fyrir ofan hrundu einfaldlega niður,“ sagði Regina Kharchenko, starfandi borgarstjóri, í samtali við úkraínska sjónvarpsstöð á vettvangi. Meira en áttatíu manns taka þátt í leit og björgun. Búist er við að aðgerðir standi allan daginn og stöðva björgunarmenn vinnuna reglulega til að hlusta eftir hljóðum frá fólki sem kann að leynast undir rústunum. Borgarstjórinn sagði Rússa hafa ráðist að hjarta borgarinnar. Meðal hinna látnu væru yngstu íbúarnir. Trump rýfur einangrun Rússlands Árásirnar voru gerðar fáeinum klukkustundum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um samkomulag við Rússa um innflutning á rússneskri díselolíu. Selenskí hefur gagnrýnt samkomulagið harðlega og kallað það „afmælisgjöf“ til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Það jafngildi bandarískri fjárfestingu í stríðsrekstri Pútíns. Í viðbrögðum við árásum næturinnar sagði Selenskí að Rússar túlkuðu sérhverja tilslökun á þrýstingi sem merki um að þeir gætu haldið stríðinu áfram. „Rússland verður að skilja að binda þurfi enda á stríðið og til þess verður það að finna fyrir eigin tjóni,“ skrifaði hann á samfélagsmiðlum. Mannskæðar árásir á borgara þrjá daga í röð Saporissjía er í suðausturhluta Úkraínu, innan við sextán kílómetra frá víglínunni, og verður reglulega fyrir árásum rússneskra flygilda og eldflauga. Árásin í morgun kemur í kjölfar tveggja annarra mannskæðra árása undanfarna daga. Á fimmtudaginn létust að minnsta kosti þrjátíu og þrír þegar rússneskar svifsprengjur hæfðu tvær almenningsrútur í Kramatorsk í Dónetskhéraði. Daginn áður létust tuttugu og tveir, þar af fimm börn, þegar rússnesk eldflaug hæfði fjölbýlishús í bænum Pryluky austan við Kænugarð. Samkvæmt upplýsingum Sameinuðu þjóðanna sem breska ríkisútvarpið vísar til fjölgaði óbreyttum borgurum sem létust eða særðust í Úkraínu um 55 prósent á fyrstu átta mánuðum ársins.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira