Erlent

Navanethem Pillay hlaut friðar­verð­laun Nóbels

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
840642407_919630247689820_5644531275992630458_n

Norska Nóbelsnefndin tilkynnti rétt í þessu að Navanethem „Navi” Pillayhlaut hlaut friðarverðlaun Nóbels.

Navi hlaut verðlaunin fyrir viðleitni hennar til að efla frið og alþjóðalög auk þess að hafa sýnt fram á mikið hugrekki. Hún hafi af miklum heilindum rutt brautina í átt að heildstæðari alþjóðlegri réttarskipan.

„Verðlaunahafi ársins hefur átt lykilþátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð séu sóttir til saka,“ segir í tilkynningu nefndarinnar.

Sýnt var beint frá fundinum hér á Vísi. 

María Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar frá Venesúela, hlaut friðarverðlaun Nóbels í fyrra. Í rökstuðningi nefndarinnar sagði að hún fengi verðlaunin fyrir sleitulausa baráttu sína fyrir lýðræði í Venesúela og að tryggja friðsamleg umskipti til lýðræðis frá einræði í landinu. 

Hún endaði á að gefa Donald Trump Bandaríkjaforseta verðlaunapeninginn en hann hefur ítrekað sagst vilja fá verðlaunin.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×