Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar 8. október 2026 07:01 Spurningin er einföld og skiljanleg - og svarið er einfaldlega já. Ekki stela, en gervigreindin mun vinna vinnuna þína, á einn eða annan hátt, fyrr eða síðar. Ég sá færslu frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem hann fjallaði um erindi Eriks Brynjólfssonar, sem haldið var á vegum ráðuneytisins og Almannaróms. Ráðherra hafði eftir Erik að tvær niðurstöður væru mögulegar: „Sé tæknin aðeins notuð til að leysa fólk af hólmi telur hann hætt við að völd og auður safnist á fáar hendur.“ „Sé hún hins vegar notuð til að efla getu fólks í störfum styrkist staða vinnandi fólks og ávinningurinn dreifist víðar. Þannig megi nýta tæknina til að efla fólk fremur en að skipta því út.“ Hvort tveggja er rétt, að vissu marki. En þetta er ekki raunverulegt val á milli tveggja möguleika. Gervigreind mun vissulega geta eflt fólk í störfum. Hún gerir forritara afkastameiri, lögfræðing fljótari og hönnuð skilvirkari. En þegar sama verk er unnið með færra fólki verður erfitt að viðhalda sama fjölda starfa til lengdar. Ef fyrirtæki getur sinnt vinnunni með helmingi færra fólki, mun það fyrr eða síðar reyna að gera það. Það verða áfram til ný störf. Fólk finnur sér alltaf eitthvað að gera. En mörg þeirra verða sjálfvirknivæðanleg líka. Einfaldlega vegna þess að tæknin eykur afköst og lækkar kostnað við að framkvæma verkefni. Hvernig verður framtíðin? Ég ætla ekki að spá því nákvæmlega hvaða störf hverfa, hvenær þau hverfa eða hvaða störf verða eftir. Slíkar spár hafa takmarkað gildi. En ég get sagt þetta: það sem er tæknilega mögulegt, hagkvæmt og leyfilegt að sjálfvirknivæða verður líklega sjálfvirknivætt. Ekki allt strax, og ekki án undantekninga. En stefnan er skýr. Það mun skapa flókið aðlögunartímabil. Ný störf verða ekki endilega til jafn hratt og eldri störf úreldast. Fólk getur misst tekjur áður en nýtt verðlag, ný störf eða nýtt skipulag hagkerfis hefur náð að aðlagast. Þar liggur vandinn: hvernig brúum við bilið? Ef við horfum enn lengra fram á veginn: hvað gerist þegar stór hluti þess sem við þurfum til að hafa ofan í okkur og á er framleiddur án mikils mannlegs vinnuframlags? Hvað þá? Getum við ímyndað okkur heim þar sem nær allt sem við þurfum til að lifa góðu lífi er búið til með sjálfvirkum hætti? Ef við getum það ekki, munu næstu kynslóðir að minnsta kosti geta það. Þær munu þekkja slíkan heim sem eðlilegt ástand. Það þarf ekki að vera ógnvekjandi framtíð. Hún gæti verið ótrúlega góð. Ef minna þarf af vinnu til að framleiða nauðsynjar, þá ætti það að þýða að við þurfum annaðhvort að vinna minna eða getum notið meira með sömu vinnu. „Ætti” er lykilorðið hérna. Í samkeppnishagkerfi lækkar aukin framleiðni almennt kostnað og þar með verð. Þegar hægt er að framleiða vörur og þjónustu með minna vinnuframlagi verður ódýrara að kaupa þær. Ávinningurinn fer því ekki aðeins til þeirra sem eiga fyrirtækin, heldur ætti einnig að fara til neytenda. Aftur er „ætti” lykilorðið í þessu sambandi. Til lengri tíma getur hagkerfi heldur ekki haldið uppi mikilli framleiðslu ef sífellt færri hafa tekjur til að kaupa hana. Ef sjálfvirknivæðing lækkar kostnað en kaupmáttur almennings hverfur, verður varan einfaldlega ekki seld. Þá þrýstir markaðurinn sjálfur á lægra verð, nýtt tekjufyrirkomulag eða annars konar dreifingu framleiðslunnar. En markaðurinn leiðréttir ekki alltaf slíkt jafnvægi á fallegan hátt. Hann getur gert það með samdrætti, gjaldþrotum og atvinnuleysi. Það er ekki framtíðarsýn sem við eigum að sætta okkur við þegar hægt er að forðast hana. Hvert er hlutverk stjórnvalda? Hagkerfið mun aðlagast. Það er bara spurning um hversu flókin sú aðlögun verður. Ef sjálfvirknivæðing dregur hratt úr launatekjum stórs hóps fólks, en framleiðslan heldur áfram að aukast, skapast ójafnvægi sem endist ekki endalaust. Fólk þarf laun til að kaupa það sem hagkerfið framleiðir. Annars fylgir samdráttur, skuldavandi, atvinnuleysi eða önnur form efnahagslegrar leiðréttingar. Stjórnvöld munu bregðast við slíku ástandi — eins og stjórnvöld hafa alltaf gert þegar efnahagskerfið verður óstöðugt. Þau geta breytt skattkerfinu, aukið opinbera þjónustu, tryggt tekjur, stytt vinnuvikuna eða gripið til annarra ráðstafana sem enn eru ekki fyrirsjáanlegar. Þess vegna verður bilið brúað. Ekki endilega vegna þess að einhver hafi hannað fullkomið kerfi fyrirfram, heldur vegna þess að óbreytt ástand verður óviðunandi og ósjálfbært. Hversu markviss, sanngjörn og tímanleg viðbrögðin verða mun hins vegar ráða öllu um það hversu erfitt aðlögunartímabilið verður. Ríkisstjórn sem skilur eðli breytinganna getur mildað höggið og flýtt fyrir aðlöguninni. Ríkisstjórn sem bregst seint eða rangt við getur leyft sama ferli að þróast í langvarandi óöryggi eða kreppu. En völdin og auðurinn? Hættan á samþjöppun auðs og valds er raunveruleg, sérstaklega ef fá fyrirtæki eiga líkönin, gögnin, tölvuaflið og dreifileiðirnar. Þar skipta opin líkön máli. Þau gera smærri fyrirtækjum, opinberum stofnunum og einstaklingum kleift að nýta tæknina án þess að vera algjörlega háð fáum risafyrirtækjum. Þau geta lækkað kostnaðinn við sjálfvirknivæðingu og dreift getu til að nýta hana. Það tryggir ekki af sjálfu sér jafna dreifingu auðs. En það dregur úr líkunum á að öll tæknileg geta safnist á einn stað. Hvað get ég gert? Þarftu að gera eitthvað? Kannski bara það sem þú vilt gera. Sjálfvirknivæðingin ætti, þegar upp er staðið, að gefa okkur meira frelsi til þess. En sem borgari geturðu samt gert eitt mjög mikilvægt: minna ráðamenn á að hagkerfið er ekki markmið í sjálfu sér. Það á að þjóna fólki. Það á að virka fyrir alla. Ekki bara suma. Ef gervigreindin gerir okkur kleift að framleiða meira með minni vinnu, þá er það ekki vandamál í sjálfu sér. Verkefnið er ekki að koma í veg fyrir að hagkerfið aðlagist gervigreindinni. Það mun það gera. Verkefnið er að tryggja að aðlögunin verði eins stutt, mannúðleg og skynsamleg og mögulegt er. Höfundur er tölvunarfræðingur, fyrrverandi þingmaður og nörd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Leví Gunnarsson Gervigreind Mest lesið Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar