Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Andri Broddason skrifar 6. október 2026 18:25 Valur náði ekki að vinna upp forskot sem Slovan náði í fyrri hálfleik. Diego/Vísir Valur tapaði gegn RD LL Grosist Slovan í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Slóvenska liðið reyndist of þungur biti fyrir Val og náði heimaliðið að byggja stórt forskot sem Valur náði ekki að minnka og endaði leikurinn með 34-29 tapi Vals.
Slóvensku meistararnir tóku á móti Val í Evrópudeildinni í dag og náði lið Vals að komast í 2-0 en það endaði á að vera eina skiptið sem Valur var yfir í leiknum. Heimamenn í Slovan voru fljótir að jafna og litu aldrei til baka. Slovan náði jafnt og þétt að byggja upp gott forskot og var liðið með átta marka forskot í hálfleik, 20-12. Þegar leið á seinni hálfleikinn náði Valur að minnka forskot heimaliðsins en forskotið var því miður of stórt fyrir íslenska liðið og endaði leikurinn með 34-29 tapi. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera markahæsti leikmaður Vals og skoraði átta mörk og Bjarni í Selvindi var stuttu á eftir honum með sex mörk. Valur er því í öðru sæti riðilsins með tvö stig og trónir Slovan á toppi riðilsins með fullt hús stiga. Jafn Íslendingaslagur Í Evrópudeildinni var Íslendingaslagur þar sem Bergischer, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, tók á móti IK Savehof, þar sem Birgir Steinn Jónsson spilar. Bergischer náði að vinna góðan sigur í annars jöfnum leik, 28-25. Birgir Steinn spilaði fínan leik og skoraði þrjú mörk en Jesper Roisland, liðsfélagi Birgis, var í hörkuformi og skoraði sjö mörk. Lærisveinar Arnórs Þórs voru duglegir að dreifa mörkunum en Fynn Hangstein var markahæstur með sjö mörk og Janik Schrader og Sören Steinhaus voru stutt á eftir honum með sex mörk ásamt Tom Bergner. Óðinn að raða inn mörkum Óðinn Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu stórsigur á HC Izvidac í Evrópudeildinni. Leikurinn endaði með 14 marka sigri og endaði hann 41-27. Óðinn átti stórleik og skoraði níu mörk úr tíu skotum ásamt liðsfélaga sínum Luka Maros. Lið hans er því á toppi C-riðils með fullt hús stiga og virðist félagið vera í góðri stöðu í Evrópudeildinni.
Evrópudeild karla í handbolta Valur Handbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Selfoss - Fram | Barist við botninn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Sjá meira