Rubio: Ísland í miðjunni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. október 2026 11:35 Marco Rubio ávarpaði landann. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.
Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund hans með Þorgerði í Höfða og síðan Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í morgun. Þar hóf hann mál sitt á að geta þess að sjöhundruð þúsund bandarískir ferðamenn sæki Ísland heim á ári hverju, sendiherrann Billy Long hefði lofað því að hífa þá tölu upp í milljón. Ísland væri friðsælasta land í heimi. „Í áratugi hefur Ísland verið á strategískum stað sem skiptir máli fyrir öryggi okkar og á meðan heimurinn hefur breyst hefur landafræðin alltaf skipt máli,“ sagði Rubio meðal annars á fundinum. Hann sagði að Ísland væri í miðju norðurslóða og skipti því miklu máli fyrir sameiginlegt öryggi Bandaríkjanna, Íslands og annarra vinaþjóða. Hann lagði áherslu á að Ísland gegndi mikilvægu hlutverki fyrir sameiginlegt öryggi NATO ríkja. Samstarfið skipti miklu máli til að koma í veg fyrir átök. Þá lagði Rubio áherslu á samstarf ríkjanna á öðrum sviðum og nefndi meðal annars að Ísland hefði um árabil verið aðsetur bandarískra geimfara til æfinga. Um væri að ræða fyrstu opinberu heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands þar sem ekkert annað erindi væri uppi og sagði Rubio telja að stutt yrði í þá næstu vegna mikilvægis Íslands. Engin uppbygging án samþykkis Rubio fékk spurningar frá íslenskum sem og erlendum fjölmiðlum á fundinum. Hann var meðal annars spurður út í mögulega hernaðaruppbyggingu Bandaríkjanna á Íslandi og mögulega inngöngu Úkraínu inn í NATO, sem hann sagði af borðinu þar til stríðinu lýkur. Hann segir Bandaríkin opin fyrir viðræðum um frekari uppbyggingu á Íslandi. „Við myndum aldrei gera neitt án samstarfs við yfirvöld. Það eru tækifæri til þess að gera meira, Ísland hefur innviðina,“ sagði Rubio sem sagði að sjónir Bandaríkjanna hefðu beinst annað undanfarin ár. Heimurinn væri hinsvegar breyttur, Ísland hafi alltaf gegnt krítísku hlutverki fyrir varnir NATO. Sagði hann ógnir væru til staðar á Norðurslóðum og að þær væru fjölbreyttari en áður. Vildi ekki ræða kort Bandaríkjaforseta Þá spurði blaðamaður New York Times út í frægt Norður-Ameríkukort Bandaríkjaforseta sem birtist á Truth Social þar sem mátti sjá Ísland sveipað bandarísku fánalitunum. „Við erum ekki að tala um samfélagsmiðlafærslur. Við gerum margt saman, allt saman er það jákvætt,“ sagði Rubio þá. Hann var einnig spurður um það hvers vegna engin skip né flugvélar hefðu tekið þátt í varnaræfingunni Norður-Víkingi á Íslandi í síðasta mánuði. Sagði hann Bandaríkjamenn hafa þurft að bregðast við vegna átakanna í Miðausturlöndum og að ekki mætti lesa dýpra í þá ákvörðun. „Við erum enn með mannafla hér og ég er í heimsókn því þessi staður skiptir máli.“ Lagði áherslu á efnahagslegt samstarf Rubio var þá spurður út í kannanir Bandaríkjanna á varnarsamstarfi Íslands og Bandaríkjanna og sagði Bandaríkjamenn oft kanna hvar þau standa. Hann sagði Bandaríkin standa með Íslandi, löndin ættu sér langa sögu um samstarf og litu á sömu hlutina sem ógnir og sömu hlutina sem tækfiæri. Hann var einnig spurður hvar væru tækifæri til að dýpka samstarfið. „Öryggi kemur á undan öllu öðru, ef þú ert ekki öruggur þá geturðu ekki verið farsæll. Það sem hefur breyst er heimurinn og ógnirnar, ógnirnar fyrir tuttugu til þrjátíu árum voru aðrar en við erum með ákveðna grunnlínu sem nær 75 ár aftur í tímann,“ sagði Rubio. Hann segir tækifæri á sviði efnahagsmála mörg og að á Íslandi væru mörg frábær fyrirtæki. Eitt af því sem yrði gert til að fylgja eftir fundinum væri að fá bandarísk fyrirtæki í sérstaka heimsókn hingað til lands. Þá var Rubio spurður út í mögulegan fríverslunarsamning Íslands og Bandaríkjanna. Hann sagði tíma fríverslunarsamninga liðna en að tækifæri væru til staðar til að gera tvíhliða samninga. Slíkt hefði verið í bígerð áður en hann hefði komið í heimsókn til Íslands.
Heimsókn Marco Rubio til Íslands Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Fleiri fréttir Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Sjá meira