Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Aron Guðmundsson skrifar 6. október 2026 09:31 Guðlaugur Victor Pálsson í leik með íslenska landsliðinu. Hann er einn af reynslumestu mönnum liðsins Getty/Sebastian Frej Þrátt fyrir mikla leikjatörn og ferðalög er staðan á íslenska landsliðinu góð. Einn af reynslumestu leikmönnum liðsins er í góðu standi líkamlega og andlega séð fyrir mikilvægan leik gegn Eistlandi ytra í kvöld. „
Hún er bara frábær. Það er langt síðan við unnum tvo leiki í röð. Ég sagði líka eftir Lúxemborgarleikinn að það væri langt síðan við unnum fótboltaleik þannig að það er bara búið að vera mjög góð stemning eftir síðasta leik,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson aðspurður um stemninguna í hópnum eftir gott gengi upp á síðkastið í samtali við Sýn Sport. Klippa: Guðlaugur Victor fyrir leik gegn Eistlandi Bæði lið verið á góðu skriði fyrir leik kvöldsins, einu taplausu lið riðilsins og ljóst að sigurliðið í kvöld mun verma toppsætið fram í næsta verkefni. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli heima á Laugardalsvelli þar sem frammistaða íslenska landsliðsins olli vonbrigðum. „Við lærðum helling af fyrsta leiknum. Þetta er bara lið sem er á góðri uppleið. Þetta er líka lið sem veit í hvaða þáttum það er gott. Þeir spila sem ein heild og eru bara massífir þannig að við þurfum bara að vera klárir í okkar návígum, vera sem heild, vera sem lið eins og við erum búin að vera í síðustu tveim leikjum og vera tilbúnir í slag.“ Mikilvægi sigurs í þessum leik yrði gífurlegt og kæmi okkur svo sannarlega bara í gott bílstjórasæti um það að taka toppsætið. „Algjörlega og fókusinn liggur þar. Það er búinn að vera góður fókus í allri ferðinni og góður fókus líka fyrir fyrri leikinn gegn Eistum líka, við lærðum mikið af honum og fórum inn í hina tvo leikina og gerðum vel og ætlum að gera það sama núna. Langt verkefni að líða undir lok, fjórði leikurinn á 11 dögum, hvernig er staðan á þér sjálfum? „Hún er bara fín, hún er bara mjög fín. Já, bara andlega séð og líkamlega, mjög fín.“ Kemur það á óvart svona fyrirfram að menn hafi verið að óttast um álagið og lengdina, að þessi leikjafjöldi færi illa í menn? Er þetta bara ekkert mál? „Ég segi það nú ekki að þetta sé ekkert mál en maður vissi svo sem ekkert við hverju maður átti að búast. Þetta er búin að vera mikil keyrsla, sérstaklega með ferðalögin inn á milli leikja. En við erum bara með frábært læknateymi og sjúkrateymi. Við erum með bara góða stjórn á öllu, fitnessþjálfarann okkar, hann er með púlsinn á þessu öllu saman. Maturinn búinn að vera frábær og hótelin góð þannig að við sofum vel. Þannig að við bara gerum allt rétt og reynum að gera allt eins og við getum til að vera klárir í þessa leiki.“ Viðtalið við Guðlaug Victor Pálsson í heild sinni má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Leikur Eistlands og Íslands hefst klukkan korter í sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport. Upphitun fyrir leik hefst klukkan sex.
Landslið karla í fótbolta Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira