Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Aron Guðmundsson skrifar 6. október 2026 10:31 Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands sem hefur byrjað Þjóðadeildina vel og getur farið langt með að tryggja sér toppsæti riðilsins með sigri í kvöld. Vísir/Anton Brink Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, býst við dæmigerðum „Skagaleik“ gegn Eistum í Tallinn í kvöld þar sem liðin mætast í mikilvægum leik í Þjóðadeild UEFA.
Bæði lið eru taplaus eftir fyrstu þrjár umferðir riðlakeppninnar og staðan er sú að sigurliðið í kvöld mun verma toppsæti riðilsins fram í næsta landsleikjaglugga. Með sigri fer Ísland langt með að tryggja sér toppsæti riðilsins og farmiða í B-deildina en liðið byrjaði þó keppnina á vonbrigðaframmistöðu gegn Eistum heima á Laugardalsvelli í leik sem endaði með 1-1 jafntefli. Eistar hafa komið á óvart og sótt sterk úrslit. Klippa: Arnar fyrir leikinn gegn Eistlandi „Þeir fengu góðan meðbyr eftir fyrstu tvo útileiki sína,“ segir Arnar landsliðsþjálfari um mótherja kvöldsins í samtali við Sýn Sport. „Tveir erfiðir leikir örugglega að þeirra mati á móti okkur og Búlgurum. Að ná í stig og meðbyr er bara sterkasta vopn íþróttamannsins og fleytir þeim svo áfram í sigur á móti Lúxemborg. Allt í einu eru þeir með bullandi sjálfstraust. En það má ekki gleyma því að þeir eru örugglega líka mjög þreyttir, hafa spilað mikið með sama liðinu og búa ekki yfir jafn mikilli dýpt í sínum leikmannahóp og við. Það er náttúrulega ástæða fyrir því að liðið er þar sem það er á þessum blessaða styrkleikalista FIFA.“ Trúin hafi hins vegar eflst hjá liðinu. „Svo hafa þeir áhorfendur með sér núna. Völlurinn er mjög skemmtilegur og býður upp á mikil slagsmál. Grasið er þó ekki upp á sitt besta, þungur völlur. Þetta verður dæmigerður Skagaleikur, á túninu uppi á Skaga. Barátta, læti, vinna seinni bolta. Við þurfum að vera tilbúnir í þessa baráttu til þess að eiga möguleika á að innbyrða þrjú stig.“ Viðtalið við Arnar í heild sinni má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Leikur Eistlands og Íslands hefst klukkan korter í sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport. Upphitun fyrir leik hefst klukkan sex.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira