Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Aron Guðmundsson skrifar 6. október 2026 08:33 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar einu af mörkum Íslands í síðasta leik gegn Búlgaríu þar sem að hann endaði þó með að fara meiddur af velli. vísir/Anton Gylfi Þór Sigurðsson mun spila stóra rullu í leik Íslands gegn Eistlandi ytra í Þjóðadeild UEFA í kvöld. Gylfi er að spila nokkuð laskaður en vill spila hverja mínútu í öllum leikjum að sögn landsliðsþjálfarans.
Ísland mætir Eistlandi í Tallinn í kvöld. Sigur í leiknum fer langt með að tryggja Íslandi toppsæti riðilsins en Eistar hafa einnig verið að gera góða hluti og eru taplausir í riðlinum líkt og Ísland. Sigurliðið í kvöld verður í toppsætinu fram í næsta landsleikjaglugga. Arnar Gunnlaugsson þurfti að kalla inn þrjá nýja leikmenn milli leikja nú þegar dregur nær þessum langa landsleikjaglugga. Fjórir leikir á ellefu dögum en staðan á hópnum er góð. „Við fengum inn þrjá nýja og ferska leikmenn milli leikja. Mér finnst þetta hafa reddast nokkuð vel,“ segir Arnar í samtali við Sýn Sport. „Það áttu auðvitað eftir að eiga sér stað einhver forföll þegar leið á gluggann. Við lentum í basli strax í upphafi. Ég hugsa að flest lið séu að eiga við einhvers konar vandamál að stríða sem þarf bara að leysa. Það hjálpar til að við höfum stækkað hópinn okkar töluvert.“ Klippa: Arnar fyrir leikinn gegn Eistlandi Arnar er ánægður með hungrið sem þeir Alfons Sampsted, Sævar Atli Magnússon og Brynjar Ingi Bjarnason sýndu gagnvart því að koma til móts við liðið. „Ekkert mál. Þrátt fyrir að þeir viti að þeir muni kannski ekki fá margar mínútur inni á vellinum eru þeir til taks. Það er mjög ánægjulegt fyrir okkur. Með tilkomu þeirra kemur ný dýnamík inn í hópinn. Menn eru kannski orðnir þreyttir hver á öðrum eftir langa viðveru saman. Það var mjög gaman að finna fyrir þeirra áhuga og metnaði að koma til móts við okkur.“ Gylfi Þór er klár Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið öflugur í landsleikjaglugganum. Hann kom inn á sem varamaður í sigrinum gegn Búlgaríu á dögunum en gat ekki klárað leikinn vegna meiðsla. Raunar er staðan sú að Gylfi Þór hefur verið að spila undanfarna landsleiki rifbeinsbrotinn, með brynju til að hlífa sér, en hann er klár í slaginn í leik kvöldsins. „Gylfa langar að spila alla leiki, var vafalaust svekktur út í mig fyrir að hafa ekki leyft honum að spila allar mínútur í öllum leikjum. Hann mun spila stórt hlutverk á móti Eistlandi. Er klár.“ Viðtalið við Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfara Íslands, má sjá í heild sinni hér í spilaranum ofar í fréttinni. Leikur Eistlands og Íslands hefst klukkan korter í sjö og verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport. Upphitun þar fyrir leik hefst klukkan sex.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira