Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar 5. október 2026 08:30 Pútín hótar Vesturlöndum að nota kjarnorkuvopn ef þau ráðast á Kalíngrad. Þetta sagði hann á öryggisráðstefnu í nýlega. Hann er eini þjóðarleiðtoginn sem hefur haft uppi slíkar hótanir. Eftir því sem best er vitað eru ekki uppi nein áform af hálfu Evrópu að gera árás á Kalíngrad, en það sem er áhyggjuefni er hvaða ástæður kunna að liggja að baki þessari hótun forsetans sem er keimlík þeim sem áður hafa komið frá honum eftir að Rússar gerðu innrás í Úkraínu í febrúar 2022. Þessi stríðsátök hafa staðið í nær fimm ár og hafa kostað rúma milljón mannslífa og stórkostlega eyðileggingu mannvirkja og innviða. Nú síðast að sprengja brýr sem tengja Kænugarð saman. Að baki liggur sá draumur Pútíns að endurheimta fyrrum áhrifasvæði Sovétlýðveldisins, hvers fall han telur mesta sögulega slys aldarinnar. Mörg þeirra landa sem áður tilheyrðu áhrifasvæði Sovétríkjanna eru nú að eigin ósk fullgildir meðlimir í Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu – vilja vera hluti af Evrópu - og hafa að sjálfsögðu engan áhuga á að deila þessari draumsýn með Pútín forseta. Af hverju hótar forseti Rússlands ítrekað notkun kjarnorkuvopna? Skýringar á því kunna að vera eftirfarandi: Forseti Rússlands kann að vera að undirbúa átök við Vesturlönd vegna Kalíngrad sem hefur ekki landtengingu við Rússlands þrátt fyrir að vera mikilvæg herbækistöð þeirra við Eystrasaltið. Skipulagðar lestarferðir frá Belarús í gegnum Litháen er eina landtenging Rússa við þetta yfirráðasvæði. Suwalki-hliðið er tæplega 100 km löng vegalengd. Nái Rússar þessu landsvæði á sitt vald er landtenging þeirra við Kalíngrad tryggð. Að búa til tilefni til hernaðaraðgerða vegna ímyndaðs ágangs Vesturlanda á þessu landsvæði kann að vera ein skýring á því hvers vegna Pútín gerir Kalíngrad að sérstöku umræðuefni. Önnur hugsanleg skýring er sú að Pútín er enn á ný að vara Vesturlönd og þá sérstaklega Evrópu við því að styðja varnarbaráttu Úkraínu. Hræða þau til að láta af þessum stuðningi sem skiptir Úkraínu og reyndar Evrópu sköpum. Vinni Rússar þetta stríð er einungis spurning um tíma hvenær næsta Evrópuríki stendur frammi fyrir sömu tilvistarógn af hálfu rússneskra stjórnvalda. Þriðja skýringin er sú að Rússar líti á notkun kjarnorkuvopna sem eðlilegan og sjálfsagðan hluta af því vopnabúri sem nota má gegn andstæðingum á borð við Úkraínu eða Evrópu ef þörf krefur. Margt af því sem hefur komið fram í máli og skrifum rússneskra stjórnmálamanna og herforingja að undanförnu bendir til þess að þeir líti t.d. á beitingu taktískra kjarnorkuvopna sem pólitíska ákvörðun sem réttlæta má á hernaðarlegum forsendum fremur en mannlegum. Þar virðist engin hugsun vera að baki hjá rússneskum leiðtogum hversu afdrifarík og alvarleg sú ákvörðun er eða hvaða afleiðingar notkun taktískra kjarnorkuvopna getur haft fyrir þær þjóðir sem byggja Evrópu og fyrir mannkynið allt. Niðurstaðan er sú að það sem var tabú áður er það ekki lengur. Við verðum að gera ráð fyrir því að Rússar geti gert alvöru úr þeim síendurteknu hótunum að beita kjarnorkuvopnum til að ná pólitískum og hernaðarlegum markmiðum í Evrópu. Og ef það gerist mun Ísland ekki fara varhluta af þeirri ógn sem því fylgir. Þrátt fyrir mikla aukningu í rússneskum fjölþáttaárásum víða um heim og allt í kring um Ísland eru stjórnvöld hér ekki að taka til varna eða undirbúa aðgerðir sem taka mið af þeim raunógnum sem við stöndum frammi fyrir. Fjárframlög til lögreglu, landhelgisgæslu og almannavarna standa í stað á milli ára. Þar er engin raunaukning. Á meðan nágrannaþjóðir okkar keppast um að byggja eða taka ný skotvarnarbyrgi í notkun til að skýla almenningi ef átök við Rússa brjótast út, er ekkert slíkt að gerast á Íslandi. Á meðan aðrar þjóðir eru að efla neyðarbirgðir matar og eldsneytis heyrist ekkert af slíku af hálfu íslenskra stjórnvalda. Meira segja bæklingurinn sem senda átti almenningi með fróðleik og ráðum hvernig bregðast eigi við hernaðarvá sem steðjað getur að Íslandi hefur ekki enn komið í hús Íslendinga. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar