Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2026 18:04 Heimir Hallgrímsson á TSC Arena í Baka Topola í Serbíu, þar sem leikur Írlands við Ísrael fer fram í kvöld. Getty/Stephen McCarthy Leikmenn ísraelska landsliðsins bera svört sorgarbönd í kvöld þegar þeir mæta Írunum hans Heimis Hallgrímssonar í Þjóðadeildinni í fótbolta. Tveimur ísraelskum blaðamönnum hefur verið bannað að mæta á fund Heimis eftir leikinn.
Dramatíkin hefur verið mikil í kringum leiki Írlands og Ísraels en seinni leikur þjóðanna er í Serbíu í kvöld, fyrir luktum dyrum, og er hann sýndur á Viaplay. Írar voru með sorgarbönd þegar liðin mættust í Ungverjalandi fyrir viku síðan, til minningar um alla sem látið hafa lífið í átökunum á Gaza. Þetta virðist hafa fengið Ísraelsmenn til þess að sækja um leyfi UEFA til að bera sorgarbönd í kvöld og það leyfi hefur fengist. Samkvæmt ísraelska knattspyrnusambandinu munu leikmenn bera sorgarböndin til minningar um þá sem voru myrtir þegar Hamas og aðrir vígahópar réðust inn í Ísrael 7. október 2023 og drápu yfir 1.200 manns. Yfir 74.000 manns hafa verið myrtir af Ísraelsmönnum á Gaza síðan þá. @UEFA has approved the Israel Football Association’s request for the national team to wear black armbands in tonight’s match against @IrelandFootball in memory of those murdered in the October 7 massacre.May their memory be a blessing. pic.twitter.com/nWyl32B4oP— ISRAEL FA (@ISRAELFA) October 4, 2026 Mikill titringur hefur verið vegna leikja Írlands og Ísraels en seinni leikur þeirra er í Serbíu í kvöld. Það er heimaleikur Írlands en Írar treystu sér ekki til að hafa leikinn í Dublin og ákváðu strax í júní að spila frekar á hlutlausum velli. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir mikil læti í tengslum við leikinn. Blaðamannafundi Heimis í Serbíu í gær var þannig til að mynda slitið snarlega eftir spurningar ísraelskra fjölmiðlamanna sem snerust um nýlegt flugrán milli Dubai og Tel Aviv og meint kynþáttaníð írsks leikmanns í garð leikmanns Ísraels. Heimir reitti Ísraelsmenn til reiði í upphafi landsleikjatarnarinnar með ummælum sínum um að Írar væru „ekki að spila með þjóðarmorði heldur gegn þjóðarmorði“. UEFA hefur staðfest við Irish Times að tveir ísraelskir blaðamenn fái ekki að mæta á blaðamannafundinn eftir leik í kvöld vegna hegðunar sinnar í gær. Þegar Írar unnu Ísraelsmenn 3-0 í Ungverjalandi fyrir viku neituðu leikmenn írska liðsins að taka í hendur Ísraelsmanna og lutu höfði á meðan þjóðsöngur þeirra var spilaður. Þeir hefðu kosið að þurfa ekki að spila leikina en neyðast til þess þar sem UEFA hefur ekki bannað Ísraelsmönnum þátttöku í sínum mótum þó að þeim sé bannað að spila heimaleiki sína í Ísrael. Írska knattspyrnusambandið hafði óskað eftir því við UEFA að þurfa ekki að mæta Ísrael og fjöldi Íra, þar á meðal 160 íþróttamenn, hvatt til sniðgöngu. Einn leikmanna Írlands, markvörðurinn Gavin Bazunu, dró sig úr hópnum vegna leikjanna. Niðurstaðan varð þó sú að leikirnir færu fram og úr hefur orðið erfiðasta landsleikjatörn sem Heimir og hans menn hafa nokkurn tímann þurft að takast á við.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Þjóðadeild karla í fótbolta Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Írland - Ísrael | Seinni leikurinn sem enginn vildi spila Heimir Hallgrímsson hefur sagt að sínir leikmenn hefðu gjarnan frekar viljað sleppa því að mæta Ísraelsmönnum, í Þjóðadeildinni í fótbolta, en nú er komið að seinni leik liðanna eftir að Írland vann 3-0 sigur þegar liðin mættust á sunnudag. Leikið er í Serbíu þó að um heimaleik Írlands sé að ræða. 4. október 2026 18:17 Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira
Írland - Ísrael | Seinni leikurinn sem enginn vildi spila Heimir Hallgrímsson hefur sagt að sínir leikmenn hefðu gjarnan frekar viljað sleppa því að mæta Ísraelsmönnum, í Þjóðadeildinni í fótbolta, en nú er komið að seinni leik liðanna eftir að Írland vann 3-0 sigur þegar liðin mættust á sunnudag. Leikið er í Serbíu þó að um heimaleik Írlands sé að ræða. 4. október 2026 18:17