Sport

„Mun skilja sál mína eftir í búrinu“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er stórt kvöld fram undan hjá Krumma.
Það er stórt kvöld fram undan hjá Krumma. vísir/sigurjón

Hrafn Þráinsson stígur inn í búrið í síðasta sinn á sínum ferli í kvöld og það kemur ekkert annað til greina en að enda ferilinn á sigri.

Hrafn, eða Krummi eins og hann er jafnan kallaður, mætir þá Bretanum Will Bean í þriðja skiptið á ferlinum. Þeir mætast á Glacier Fight Night í Fram-heimilinu. Fyrri bardagar þeirra enduðu án niðurstöðu og því er allt undir núna.

„Það er skemmtilegt að fá að taka síðasta dansinn heima. Ég hlakka mikið til að dansa fyrir framan mitt fólk í mínum síðasta bardaga,“ segir Krummi en þetta verður í fyrsta og eina skiptið sem hann nær að berjast á Íslandi.

Klippa: Síðasti dansinn hjá Krumma

„Ég er orðinn 39 ára gamall og er að reka fyrirtæki. Ég hef aldrei haft risadrauma með ferilinn en er kominn eins langt með ferilinn og ég vildi. Ég geng í burtu þakklátur.“

Það er mikil spenna hjá honum að fá að mæta Bean og spennan er eflaust svipuð hjá Bretanum.

„Það er búin að vera drama og bölvun á bak við þessa bardaga. Í fyrsta bardaganum árið 2023 þá var tímavörðurinn utan við sig. Lotan fór 30 sekúndur fram yfir og þá vinnur hinn. Svo áttuðu menn sig á mistökunum og það var lagfært. Eftir meira drama var þetta dæmt no contest. Í seinni bardaganum þá fæ ég putta í augað frá honum eftir að hafa slegið hann niður tvisvar. Það þurfti að sauma saman á mér augað. Með því óþægilegra sem ég hef lent í,“ segir Krummi en hvað gerist nú?

„Allt er þegar þrennt er. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að láta þetta ekki enda í höndum dómaranna. Ég mun klára þetta með rothöggi eða uppgjafartaki. Mig grunar að það gerist í annarri lotu en það gæti líka komið í þriðju. Ég mun gera þetta að hörkushowi og það verður allt skilið eftir. Ég mun skilja sálina eftir í búrinu og gera mitt allra besta til að vinna."

MMA

Tengdar fréttir

„Held ég muni pakka henni saman“

Þriðja Glacier Fight Night bardagakvöldið fer fram í Úlfarsárdal á morgun og er búist við mikilli flugeldasýningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×