Hættur við að hætta við að hætta Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 15:47 Carlos Queiroz stýrði Gana á HM í sumar og komst liðið í 32-liða úrslit. Getty/Julian Finney Carlos Queiroz tilkynnti að hann væri hættur sem þjálfari Gana eftir HM í fótbolta í sumar. Hann sneri svo þeirri ákvörðun en er nú aftur hættur.
Hinn 73 ára gamli Queiroz, sem á sínum tíma var aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá Manchester United og þjálfaði líka Real Madrid og portúgalska landsliðið, hefur komið víða við á ferlinum. Hann tók við landsliði Gana í apríl, skömmu fyrir HM, og varð þar með aðeins annar þjálfarinn í sögunni til að mæta sem landsliðsþjálfari á fimm heimsmeistaramót í röð. Áður hafði hann stýrt Portúgal á HM 2010 og Íran árin 2014, 2018 og 2022. Þessi þrautreyndi þjálfari hætti eftir HM en tók svo aftur við Gana í september og stýrði liðinu í upphafi undankeppni Afríkumótsins. Þar hefur liðið hins vegar tapað fyrstu tveimur leikjum sínum, 2-0 gegn Fílabeinsströndinni og 4-2 gegn Gambíu. Í dag var svo tilkynnt að Queiroz væri hættur og leit hafin að arftaka hans. „Eftir viðræður af fullri gagnkvæmri virðingu höfum við, knattspyrnusamband Gana og ég, komist að samkomulagi um að segja upp samningi mínum sem aðalþjálfari landsliðsins. Þetta var ekki auðveld ákvörðun en miðað við núverandi aðstæður komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri rétt að slíta samstarfinu,“ segir Queiroz í fréttatilkynningu.
Fótbolti Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Breiðablik - FH | Meistararnir gegn buguðum silfurkonum ÍBV - Stjarnan | Geta tryggt sér bronsið Þróttur - Gri/Nja | Liðin sem léku um bikarinn Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sjá meira