Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar 1. október 2026 12:31 Undanfarin 18 ár hef ég starfað sem heila- og taugaskurðlæknir með áherslu á hryggjaraðgerðir í Bandaríkjunum. Á síðustu tveimur árum hef ég komið reglulega heim til Íslands til að framkvæma aðgerðir á hrygg, einkum vegna taugaklemmu af völdum brjóskloss eða slitbreytinga. Það var leitað til mín og ég beðin um aðstoð við að gera þessar aðgerðir utan Landspítala. Fyrsta aðgerðin utan sjúkrahúss á Íslandi var gerð í Orkuhúsinu í júní 2024. Þetta eru stuttar aðgerðir sem framkvæmdar eru með smásjá og einstaklingur útskrifast samdægurs. Í venjulegu árferði er þörf fyrir að minnsta kosti 300 slíkar aðgerðir á íslandi á ári. Einstaklingur með einkenni vegna klemmu á taug í hrygg er oft með mikla verki, dofa og jafnvel lömunareinkenni. Algengt er að fólk geti ekki lengur gengið, staðið, sinnt daglegum grunnþörfum og orðið óvinnufært. Ef þrýstingi á taug er ekki aflétt, getur það leitt til varanlegs taugaskaða. Þegar reyndur sérfræðilæknir hefur metið að aðgerð komi til greina miðað við ástand, einkenni og myndgreiningu næst gífurlega góður árangur. Einstaklingur upplifir yfirleitt gífurlegan létti strax eftir aðgerð og færni hans eykst til muna. Það er því augljós samfélagslegur ávinningur af aðgerð en sjúkdómurinn hefur meðal annars áhrif á heilsufar, geðheilsu, fjölskyldulíf og atvinnulíf. Á Íslandi þyrfti að framkvæma um 30 slíkar aðgerðir á mánuði en af ýmsum ástæðum gat Landspítali ekki lengur annað öllum fjöldanum og biðlistar hlóðust upp. Þannig hefur ástandið því miður verið árum saman. Samningur var gerður meðal annars við Orkuhúsið um þessar aðgerðir til að vinna á vandanum en fjöldi aðgerða var skammtaður af Sjúkratryggingum Íslands og miðað við tíu aðgerðir í mánuði. Þrátt fyrir að mannafli, tæki og aðstaða hafi verið fyrir hendi til að sinna öllum sem þurftu á þjónustunni að halda, var tekin ákvörðun af stjórnvöldum að sinna ekki fleirum. Ég sem læknir var sett í það hlutverk að forgangsraða einstaklingum og ákveða hver þyrfti meira á aðgerð að halda en annar. Allir þráðu þeir að fá bót meina sinna en ég mátti ekki framkvæma fleiri aðgerðir þar sem kvótinn var búinn. Vandi allra var brýnn og því er þetta ósanngjörn staða að vera í og þurfa að skilja einstaklinga eftir í fullkominni óvissu. Þessi staða gengur ekki upp og enginn sparnaður næst með þessu fyrirkomulagi. Samfélagslegur kostnaður af óvinnufærum einstaklingum er margfaldur á við kostnað af aðgerð. Fólk sem er komið á eftirlaun og hefur skilað þjóðinni ævistarfi á skilið að fá úrlausn sinna mála. Að láta fólk þjást að óþörfu í mánuði og ár er óboðlegt. Kostnaður við lyf, sjúkraþjálfun og kostnaður sem hlýst af öðrum sjúkdómum sem fylgja hreyfingarleysi og streitu er líka margfaldur. Í starfi mínu hef ég orðið vitni að algerum umskiptum í lífi fólks. Smiðir sem voru frá vinnu um árabil voru komnir aftur af stað. Ömmur geta aftur farið í golf og sinnt barnabörnum. Fólk sem hafði þurft verkjalyf um árabil voru hætt töku þeirra. Dæmin eru óteljandi. Nú er uppsafnaður vandi svo mikill að mörg hundruð manns gætu fengið bót meina sinna með skurðaðgerð. Samfélagslegur kostnaður við þennan fjölda hleypur á milljörðum króna á ári. Við sem þjóð viljum vera stolt af heilbrigðiskerfi okkar. Hér er brotalöm sem verður að laga strax, læknar eiga ekki að vera í því hlutverki að velja og hafna, hver fer gangandi út í lífið daginn eftir aðgerð, og hver fær að sitja þjáður um ófyrirséða framtíð. Höfundur er heila- og taugaskurðlæknir í Orkuhúsinu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun