Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Andri Broddason skrifar 30. september 2026 18:45 Vangaveltur ríkja hvort að Cristiano Ronaldo hafi spilað sinn síðasta leik fyrir portúgalska landsliðið. Gualter Fatia/Getty Images Cristiano Ronaldo er á förum frá Danmörku þar sem portúgalska landsliðið var við æfingar og samkvæmt tilkynningu frá honum mun hann ekki leika meira með liðinu í þessum landsleikjaglugga. Hann tók neyðarfund með forseta portúgalska knattspyrnusambandsins og þjálfara liðsins fyrr í dag.
Spænski miðillinn Marca greindi frá því að Ronaldo sé á leið frá Danmörku þar sem Portúgal átti að mæta danska landsliðinu í A-deild Þjóðadeildarinnar. Ronaldo hefur ekki verið sáttur með krísufundinn sem hann var á með Jorge Jesus, landsliðsþjálfara Portúgals, en það hringdi viðvörunarbjöllum þegar Pedro Proenca, forseti portúgalska knattspyrnusambandsins, sat einnig fundinn. View this post on Instagram A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) Á samfélagsmiðlinum Instagram steðfesti Ronaldo að hann væri á förum frá landsliðinu. Hann tekur fram í færslunni að hann muni segja sannleikann þegar augnablikið til þess gefst en þangað til óskar hann portúgalska landsliðinu góðs gengis í komandi leikjum. Cristiano Ronaldo er bæði leikjahæsti leikmaður portúgalska landsliðsins og markahæstur. Hann hefur spilað 234 leiki fyrir landsliðið og skorað í þeim 146 mörk. Síðasta markið sem hann skoraði fyrir Portúgal var gegn Króatíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í sumar þar sem hann skoraði úr vítaspyrnu. Fyrr í dag sagði Jesus að vandamálið með Ronaldo væri leyst og að hann myndi æfa í dag með liðinu. Svo virðist sem vandamálið hafi ekki verið leyst þar sem hann sást fara frá hóteli liðsins í svarta bifreið sem ók honum upp á flugvöll. Ronaldo fór ekki á æfingu með þeim leikmönnum sem voru á bekknum gegn Noregi heldur fór hann frekar í ræktina og tók æfingu sjálfur. Samkvæmt portúgölskum miðlum hefur hann ekki verið sáttur við að hafa setið á bekknum allan leikinn gegn Noregi. Þetta er í fyrsta sinn í 18 ár sem hann kemur ekki við sögu í leik portúgalska landsliðsins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Portúgal Portúgalski boltinn Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Leik lokið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira