Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 1. október 2026 11:53 Margrét Valdimarsdóttir verkefnastjóri Framúrskarandi fyrirtækja hjá Creditinfo segir þeim fyrirtækjum sem hlotið geta vottunina muni mögulega fækka. Skilyrðið sé hvatning til að fara að lögum. Anton Brink Eitt helsta mælitæki á góðan rekstrarárangur, stöðugleika, þrautseigju og sjálfbærni íslenskra fyrirtækja er vottunin Framúrskarandi fyrirtæki. Einungis um 2% allra fyrirtækja landsins standast skilyrðin ár hvert. Creditinfo hefur nú hert skilyrðin, þau fyrirtæki sem falla undir lög um kynjahlutfall í stjórn þurfa að fylgja þeim lögum til að geta talist Framúrskarandi fyrirtæki.
Einhver fyrirtæki gætu dottið út „Það að Creditinfo beini sjónum sérstaklega að þessu atriði hefur ekki aðeins táknræna þýðingu. Það getur haft bein áhrif á hvaða fyrirtæki teljast Framúrskarandi árið 2026,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, verkefnastjóri hjá Creditinfo. „Nákvæm greining liggur að baki vali fyrirtækja sem komast á listann og ekki einungis horft á góða afkomu, fyrirtækin þurfa að vera stöðug, standa traustum fótum og uppfylla ákveðin skilyrði um rekstur og um stjórnarhætti og þar kemur þetta skilyrði inn.“ Hún staðfestir að fyrirtæki sem hafa áður verið á listanum geti nú fallið út. „Þeim fyrirtækjum hefur hins vegar gefist kostur á að gera breytingar hjá sér og uppfylla þannig skilyrðin.“ Hún segir viðbrögð atvinnulífsins við þessari kröfu Creditinfo misjöfn en mörg fyrirtæki séu þó meðvituð um jafnréttismál. Árangur metinn út frá fleiri þáttum en afkomu „Flest Framúrskarandi fyrirtæki eru þegar farin að huga að jafnrétti í stjórnum og rekstri sínum og mörg þeirra uppfylla því lagaskilyrðin. Breytingin getur engu að síður orðið hvati fyrir þau fyrirtæki sem eftir standa til að skoða samsetningu stjórna sinna.“ „Tilgangur þessa er ekki að fækka fyrirtækjum á listanum. Með þessu viljum við hvetja fyrirtæki til að tryggja að stjórnir þeirra séu í samræmi við gildandi lög.“ Margrét segir að um leið gefi breytingin ákveðið merki um hvert atvinnulífið er að stefna. „Árangur fyrirtækja er í auknum mæli metinn út frá fleiri þáttum en afkomu einni saman. Stjórnarhættir, ábyrgð og jafnrétti verða hluti af þeirri mynd. Von Creditinfo er að sú áhersla skili sér út í atvinnulífið með því að fyrirtæki skoði stjórnir sínar, hugi að jafnrétti og tryggi að rekstur þeirra sé í samræmi við þau lög sem gilda um íslenskt atvinnulíf.“ Hvað segja lögin og hverju hafa þau skilað? Lögin voru samþykkt árið 2010 og komu til framkvæmda árið 2013. Þau ná meðal annars til hlutafélaga og einkahlutafélaga þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli. Í hlutafélögum með þrjá stjórnarmenn skulu bæði kyn eiga fulltrúa og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír skal hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Sambærileg ákvæði gilda um einkahlutafélög og þar er jafnframt kveðið á um að bæði kyn eigi fulltrúa þegar stjórn er skipuð tveimur eða þremur einstaklingum. Konum hefur fjölgað í stjórnum en ekki í framkvæmdastjórnum „Nýjustu tölur Hagstofu Íslands sýna að staðan hefur þróast verulega frá því lögin voru sett, en einnig að enn er nokkuð í land fyrir suma flokka fyrirtækja,“ segir Margrét. Árið 2025 voru konur 43,4% stjórnarmanna í almennum hlutafélögum með 50 starfsmenn eða fleiri þar sem stjórn hafði fjóra eða fleiri stjórnarmenn. Í einkahlutafélögum í sama flokki voru konur 36,9% stjórnarmanna. Þegar stjórnir voru skipaðar þremur einstaklingum voru konur 33,3% stjórnarmanna í almennum hlutafélögum og 35,7% í einkahlutafélögum. Tölurnar sýna jafnframt að hlutfall fyrirtækja með 50 launamenn eða fleiri sem eru með blandaða stjórn hefur aukist. Árið 2025 voru 90,7% almennra hlutafélaga , með fjóra eða fleiri stjórnarmenn með kynjahlutfall á bilinu 40–60%. Í einkahlutafélögum í sama flokki með fjóra eða fleiri stjórnarmenn var sambærilegt hlutfall 78,8%. „Þróunin er þó ekki sú sama í öllum flokkum. Til dæmis voru aðeins 53,1% einkahlutafélaga með tvo stjórnarmenn og 50 starfsmenn eða fleiri, með fleiri en eitt kyn í stjórn árið 2025. Það var þó aukning frá 45,6% árið áður,“ útskýrir Margrét. Lögin hafa því skilað árangri. Áhrif þeirra seytluðu ekki niður í framkvæmdastjórnir fyrirtækja eins og vonast hafði verið til. Á síðasta ári voru um 14% framkvæmdastjóra í stærstu fyrirtækjum landsins konur en nær 19% í litlum fyrirtækjum. Meðal framkvæmdastjóra Framúrskarandi fyrirtækja var hlutfall kvenna enn lægra, eða 12,9%.“ En af hverju skipta kyn máli í stjórnum fyrirtækja? „Rannsóknir sýna okkur að fyrirtæki með blandaða stjórn og framkvæmdastjórn skila meiri arðsemi, betri ákvarðanatöku, meiri nýsköpun og meiri starfsánægju.“ Þetta sagði Ásta Dís Óladóttir, prófessor og stofnandi Rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands þegar hún ræddi stöðu kynjanna í atvinnulífinu hér á Vísi í fyrra. Ásta Dís Óladóttir prófessor og stofnandi Rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands. Hún segir skilyrði Creditinfo geta ýtt við fyrirtækjum að beina kastljósinu að jafnréttismálum og fylgja lögum. „Þetta er mikilvægt merki um að fyrirtæki geti ekki kallast framúrskarandi ef þau fylgja ekki lögum um kynjahlutföll í stjórnum sem gilda um þau. Viðurkenning Creditinfo er sýnileg út á við og skilyrðið gefur hluthöfum því frekari ástæðu til að huga að því hvernig þau skipa stjórnir sínar," segir Ásta Dís. Þetta skilyrði er því jákvætt skref, en fyrirtæki þurfa líka að skoða hvernig þau velja fólk í æðstu stjórnunarstöður.Það verður sérstaklega fróðlegt að sjá hvort einhver fyrirtæki missi viðurkenninguna vegna þessa skilyrðis. Þá kemur í ljós hvort breytingin hefur bein áhrif á fyrirtækin, auk þess sem hún sendir mjög skýr skilaboð til atvinnulífsins.“ Jöfn tækifæri eru ákvörðun „Stjórn fyrirtækis markar meginstefnu þess, hefur eftirlit með rekstrinum og ræður forstjóra. Forstjóri og framkvæmdastjórn stýra daglegum rekstri og taka ákvarðanir um hvernig stefnunni er fylgt eftir. Konur og karlar þurfa að hafa jöfn tækifæri til að hafa áhrif á hvoru tveggja. Rannsóknir okkar sýna að kynjahlutföll hafa jafnast í stjórnum þeirra fyrirtækja sem lögin ná til, en konur eru enn í miklum minnihluta í æðstu stjórnunarstöðum. Þar skipta ráðningarferlin máli og ég held að fólk í atvinnulífinu sé orðið meðvitaðra nú en það var, að ef alltaf er leitað í sömu tengslanetin þá breytist ósköp lítið. „Jöfn tækifæri eru einfaldlega ákvörðun sem stjórnir félaga þurfa að taka í samráði við forstjóra félaga," segir Ásta Dís. Þessi grein er hluti af samstarfi Sýnar og Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki
Jafnréttismál Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira