„Það er bara á okkur að stíga upp núna“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 26. september 2026 19:13 Stefán Teitur Þórðarson Anton Brink/Vísir Íslenska karlalandsliðið mætti Eistlandi í fyrstu umferð C-deild Þjóðardeildarinnar í dag. Það er óhætt að segja að úrslitin hafi verið mikil vonbrigði eftir 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í dag. Stefán Teitur Þórðarson ræddi við Sýn Sport eftir leik. „
Ég held að hann hafi spilast akkúrat eins og við héldum að hann myndi spilast“ sagði Stefán Teitur Þórðarson leikmaður Íslenska liðsins eftir leik í dag. „Við vorum yfir á þessum sviðum sem að við héldum að við myndum vera yfir fyrir leikinn“ „Í fyrri hálfleik vorum við svolítið að þreyta þá og hreyfðum boltann fínt. Komumst nokkrum sinnum á bakvið þá en svo komum við út í seinni hálfleik og við erum alltof hægir sóknarlega“ „Við förum voðalega lítið á bakvið þá fannst mér og við ógnum þeim aldrei. Þeir fá svo tvö dauðafæri sem að við gefum þeim og svo þetta víti auðvitað“ Nokkrir leikmenn Íslenska landsliðsins voru að spila stöðu sem þeir hafa ekki endilega margir hverjir spilað oft áður þá helst aftarlega á vellinum. Stefán Teitur þar á meðal en hann byrjaði leikinn í hafsent í dag. „Mér fannst varnarleikurinn vera bara flottur í dag. Það var ekki vandamálið okkar í dag. Vandamálið var sóknarleikurinn hjá öllu liðinu og við gerðum það ekki nógu vel“ „Við sköpuðum alltof lítið af færum á móti þjóð eins og með fullri virðingu Eistlandi. Við eigum að skapa miklu meira en við gerðum í dag“ Hvað var það sem vantaði uppá til þess að skapa fleiri færi en raun bar vitni? „Tempó og bara hraða. Fara á menn einn á einn og gefa fyrir. Gæðin í fyrirgjöfunum okkar í dag voru léleg, það er bara þannig. Það er bara á okkur að stíga upp núna í næsta leik og gera miklu betur“ Lúxemburg er næsti andstæðingur Íslands á þriðjudaginn kemur. „Ég held við getum tekið fullt með okkur inn í það. Við erum mjög góðir á boltann og við stjórnum leiknum frá A-Ö“ „Það skiptir svo sem engu máli þó við stjórnum leiknum frá A-Ö. Við þurfum að vera miklu árásargjarnari inni í teig og keyra miklu meira á þá“ sagði Stefán Teitur Þórðarson.
Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Landslið karla í fótbolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport „Hann sagði já takk“ Fótbolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Sjá meira